Öldin - 01.04.1895, Page 10
58
ÖLDIN.
Handrita-x>jóf:-taðue
úr Yatikan-bókasafninu í Rómaborg er ný-
lega upp kominn og varð það til þcss, að
því merka safni hefir nú á ný verið lokað.
Þjófnaðurinn komst upp þannig, að menta-
málastjóra Itala var boðið til kaups hand-
rit, sem hann minti að hann hefði áður séð
í Vatikan-safninu. Skýrði hann þá bóka-
verðinum trá því, sem tafariaust komst að
því, að mörg merkishandrit voru á burt.
Víst er orðið um 41 eintök, en 39 af þeim
eru nú afturfengin, en nefnd heíir verið
skipuð til að gegnumganga alt safnið og
rannsaka hvert fleira af handritum heflr
verið stolið.
Teigleður úr línolíu
er ein nýjasta uppflndingin, segir blaðið
“Tradesman” í Lundúnum. Uppflnnarinn
var að gera tilraunir við olíu þessa í því
skyni, að fá gerða nýja tegund af g]já-
hvoðu, og fékk þá þetta nýja efni. Ilann
segir að að eins útheimtist 15% af náttúr-
legu teigleðri til að gera eftirlíkinguna svo
að hún þekkist á engan hátt frá þessari
framleiðslu náttúrunnar. Tilbúningurinn
segir hann sé svo einfaldur, að einkaleyfl
fáist ekki og því um að gera að halda
leyndu hvernig efnið er búið til og hvaða
efni önnur en línolía, útheimtast.
Vírgirðingar sem telefónþráður.
Iljarðbóndi mikill í grend við Black IIiils,
í Suður-Dakota, heflr fundið upp á að hag-
nýta venjulega vírgirðing umhverfis land-
eign sína sem telefón-þráð og hepnast það
ágætlega. Sjálfur býr hann í þorpi í mílu
fjarlægð, og fékk telefónfélag til að leggja
telefónþráð þessa einu mílu og tengja við
girðinguna. Síðan getur hann talað við
vinnumenn sína á búgarðinum án þess að
fara út úr skrifstofu sinni í bænum. — Er
ekki ólíklegt, að þetta leiki fleiri.
Frétta fleigir sannnefndur.
I síðastl. Sept. var send hraðfrétt frá Man-
chester á Englandi til Victoria í British
Columbia og henni svarað af'tur á 11 mín-
útu. Mánuði síðar var skeyti sent frá Nerv
York til Lundúna og því svarað aftur á 5
sekúndum.
Ný-gull.
Franska blaðið “Journal de 1’ Horlogerie”
skýrir frá því, að nýlega sé uppfundin
málmblöndun, er svo líkist gulli, að blend-
ingurinn verði naumast þektur frá því, og
er liann gerður af 94% kopar og 6% anti-
mony. Þegar þessar málmtegundir eru
jafnt sameinaðar orðnar, eru þær blandnar
ákveðnum mæli af magnesium og kalk
carbonate, til þess að gefa hinum nýja
málmi nægan þéttleik. Þennan málm-
blending má svo teigja, þenja og beygja
eins gull væri og þegar hann heflr verið
slíþaður líkist hann mjög gulli. Lit sinn
lætur þessi málmblendingur elcki þó hann
verði fyrir ammoníu og saltsýru-gufu.
En þessi málmur er ekki alveg eins kost-
bær eins og guli, því pundið má búa til
fyrir 25 cents.
Tóbaks-eitur.
Því heflr til þessa verið haldið fram, að
“nicotin” í tóbaki sé banvænasta efni þess
Nú segir blaðið “British Medical Journal,”
að tvær aðrar eitui’tegundir í tóbaki séu
miklu verri: “pyridin” og “collodin.”
Nicotin framleiðist í vindlum og sígarett-
um, en hinar eiturtegundirnar í reykpíp-
um eru sagðar tjórfalt banvænni en nokk-
urntíma nicotin. Þess vcgna ráðleggur
blaðið þeim, sem reykja úr pípum, að láta
reykinn síast gegn um bómull eða ull, eða
einhver slík efni, áður en hann kemst inn
fyrir tanngarðinn. Þá álítur blaðið og
heppilegt, að menn iærðu af Tyrkjunum
að kasta hverjum vindli rúmlega hálfreykt-
um. Og mundi þá einnig gott að reykja
aldrei til botns úr pípu, en í þess stað að
kasta botniaginu í hvert skifti sem í hana
cr látið.