Öldin - 01.04.1895, Blaðsíða 15

Öldin - 01.04.1895, Blaðsíða 15
OLDIN 63 ekkert ómögulegt. Svíinn cr maður kon- unghollur; dæmi konuugs síns fylgir hann í illu sem góðu. Einkum ber hann milda lotning fyrir minni Gústafs liins gamla. Nú, ef það verður sýnt og sannað, að sá Gústaf hafi í banalegu sinni yflrlýst því, að kenning Lúthers væri villukenning, og neitað þeirri trú með eiði og fyrirdæmt hana, einnig að bann hafi þá beðið yngri son sinn, vin p&fans, Jóhann, að hann skyldi bæta það sem faðirinn hefði brotið, ef hann yrði konungur-------- “Hvað dirflst þú að segja ?” mælti þá Messenius fljótlega og di’ó ekki dulur á undrun sína. “Sú bersýnlega lygi stríðir beintá móti fulltrúanlegum staðfestum orð- um Gústafs konungs og öllum hans við- skilnaði! ’ “Hægur minn góði vinur!” mælti Jesúítinn stuttaralega. “Nú máenn frem- ur sanna, að annar grundvallari Lúthersk- unnar og vinur, Karl níundi, hefir líka lýst því í sinni banalegu, að siðabótin væri guðlast og óhamingja — — ” Messeníus leit framan í munkinn undrandi. “0g þegar nú loksins má sanna, að Gústaf Aðólf sjálfur haíi áður en hann gaf upp andann í orustunni við Luzen, verið snortinn af andans hræringu, og dáið eins og villimaður, en þó með miklu samvizku- biti og sálarstríði----” Messeníus varð rauður í andliti. “Þá eigum við,” hélt Jesúítinn áfram með óbifandi dirfslcu, “þá eigum við engan eftir af Vasaættinni. nema hinn brjálaða Jóhann þriðja og hinn sannkaþólska Sig- mund, sem ekki þarf að ómaka oss. Þegar nú hin sænska þjóð sannfærist um, að þess- ir mestu konungar hennar hafa annað- hvort verið eða orðið að lokum páfans vin- ir, mun hreistrið um síðir falla frá augum hcnnar, og mun hún þá með iðrun og yfir- bót játa synd sína og hverfa siðan aftur í skaut hinnar einu sáluhjálplegu kyrkju.” “Og hvernig hygst þú, æruverði faðir, að geta sannfært Svíana um fráfall kon- unga þeirra, þvert ofan í bersýnilegar sannanir ?” “Ég hefi þegar sagt,” sagði Jesúítinn vingjarnlega, að það afreksverk geti eng- inn gert ncma hinn spakvitri Jóhannes Messeníus. Menn vita, að þú ert iærðasti maður Svíaríkis og þess mesti sagnameist- ari. Menn vita, að þú hefir haft með hönd- um og hefir enn ýmisleg skjöl og skilríki, sem enginn annar hefir. Neyt nú þessa færis nieð kænsku og skarpleik ; set skjöl saman, sem aldrei hafa verið til, smíðaðu atburði, sem aldrei hafa skeð-----” “Hvað dirfist þú að segja?” varð Messeníus að orði, og brá mjög við. Jesúítinn misskildi geðshræringu hans. “Já,” sagði liann, “þetta er hættuspil mik- ið, en fjærri því að ekki megi takast. Skyndilegur flótti til Póllands kemur þer og úr allri liættu.” “0g það er ég-------ég sem þú skorar á að gera þetta ?” “Já,” svaraði Hierónýmus í sama tón. “Ég skil vcl, að Gústaf Aðólf verður tor- veldast við að eiga, og fyrir því tek ég hann að mér sjálfur. Þú hefir svo á þinni könnu einungis þá Gústaf af Vasa og Kari níunda, og hlýtur að gefa þeim þann svip og útlit, sem dugi til hjálpar voru helga málefni og til nytsemdar kyrkjunni.” Abi a me, male spiritu !”* sagði Messeníus, óður og uppvægur, og kom sú bræði hans Jesúítanum mjög á óvart, alt livað slægur sem hann var. “Erkifantur, lygari, níðingur! sem leggur hendur á hið helgasta; hyggur þú að ég, Jóliannes Messeníus, hafi ár eftir ár leitað þeirrar frægðar að verða fyrsti sagnameistari Norð- urlanda, til þess alt í einu, á svo svívirði- legan og dæmalausan hátt að níðast á þeim sögunnar sannleika, sem ég hefi komið fót- um undir með svo miklum erfiðismunum ? -----Far þú burt, burt á augabrag-ði, burt *) Vik frá mér, illur andi!.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.