Kvennablaðið - 01.09.1896, Qupperneq 2

Kvennablaðið - 01.09.1896, Qupperneq 2
66 Sainskotin. ^Ífonandi er að áskorun sú, sem prent- nð er hjer að framan, fái góðar undir- tektir hjá almenningi. Hjer í Rvík er þegar búið að gefa aliríflega af ýmsum mönnum, og munu flestir taka þátt í því, að svo miklu leyti, sem efni leyfa. Kvennfólkið er einnig tekið að safna til samskota, enda munu allir fúsir að hjálpa eftir mætti. í öðrum iöndum eru konur oft frum- kvöðiar að þeim fyrirtækjum, sem miða til að eyða bágindum og efla mannúð og velmegun. Óefað er að svona stórkost- legir viðburðir hljóta að snerta alla hugs- andi menn, konur sem karla. Það er ekki að eins kristileg og sið- ferðisleg mannúðarskylda, að taka þátt í siíkum viðburðum og eftir megni að draga úr afleiðingum þeirra, heldur einnig þjóð- ræknisskylda. „Ekkert mannlegt er oss óviðkomaúdi“. Lítið því á ástandið í þessum jarðskjálftahjeruðum bæði með til- finningu og skynsemi. Nú er tækií'æri að sýna hluttekning- arsemi í bágindum, og nú er einnig tæki- færi að sýna ættjarðarást og þjóðrækni, Vjer aurum ekki saman neiaum öimusu- gjöfum tii að seðja hungur manna í svip með. Flestir búeudur í þessum sveitum munu sem stendur hafa nóg að eta og drekka. Margir efnamenn eru þar, sem auð- vitað bíða mjög mikinn hnekki í bú- skapnum, en standa þó nokkurn veginn ef'tir sem áður. Samskotin eru handa fátækliugum og efnalitlum bændum, sem áður hafa komizt af, en nú geta ekki reist rönd við þessu ófyrirsjáanlega tjóni; þau eiga bæði að votta hluttekningu í bágindunum og hjálpa þeim, svo þeir láti ekki hugfaliast, þótt jarðir þeirra skemm- ist og sýnist í fyrstu lítt byggilegar, en haldi áfram að reyna að sitja þær og bæta. Taki nú ailir höndum saman í þessu, kariar sem konur, börn og gamalmenni, og gefl þó ekki væri meira enn 10—20 aura, þá er vonandi, að bæta megi svo úr þessum vandkvæðum, ef ekki bætast við aðrir stórir skaðar, að þess sjái lítil merki í efnaíegu tilliti að fám árum liðnum. En ölí von er til að menn þreytist og verði kjarkiitlir til framkvæmda þegar þeir sjá þannig margra ára verk síu verða á svipstundu að rústum einum, og vork- unn væri það þótt þeím kæmi þá til hugar að yfirgefa þessi hjeruð, og leita heldur eitthvað þangað, sem minni hætta væri á ferðum. Það er s&tt, að okkar land er „und- arlegt sambland af frosti og funa“, og það er sorglegt, að einmitt þau hjeruð, sem hvað veðursælust eru, skuli liggja svona opin fyrir hinu eyðiieggjanda afli náttúrunnar, en við vonum þó og ósk- um, að ekki þurfi að eyðast þar byggð, ef fje er fyrir hendi til að bæta það, sem bætt verður. Við ísleudingar erum svo heppnir, að þurfa ekki að taka þátt í herkostnaði stórþjóðanna, þar taka oft konur þátt í þegar einhver sjerleg hætta þykir vofa yfir, og hafá oft jafnvel seit til þess skrautgripi sína. Það gjörðu ungversk- ar konur 1848, það hafa pólskar konur oftsinnis gjört, það gjörðu ameríkskar konur í frelsisstríði Bandaríkjamanna og

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.