Kvennablaðið - 01.09.1896, Síða 7

Kvennablaðið - 01.09.1896, Síða 7
71 Menntim og vinna. Það þarf anda til að aka mykju; en þeir skilja það ekki skólagutlararnir. Og anda og íþrótt þarf til að vera góður skraddari. skósmiður, járnsmiður; það þarf líka anda til að standa fyrir hótelli, svo að það verði annað en basl og fyrirhöfn. Hægast er fyrir sýslumann, prest eða annan lærðan mann að þeir draslist á- fram andalausir; enda er andinn oft slík- um mönnum að eins til trafala, sem Vinje sagði. Einhver fínasta kona, sem eg þekki, sönn „dama“ og listakona, sagði einu sinni: „Það er ekki hægt að láta ó- merkilegasta fólkið gera neitt, því það eru engiu ómerkileg störf til. Til ailrar vinnu þarf hyggið og fínt fólk“. Við töluðum um vinnufólkið og hún sagði: „Það verður ekkert lag á verkunum, fyrr en konur, sem eru sannar „dömur“, fara að verða vinnukonur og leggja vit og tilgang i vinnuna. Og hún bættiþví við: „Þær eru sannar „dömur“, sem kunna það“. Hún hafði satt að mæla. (Þýtt eftir Arne Garborg). Hannyrðir. Skrifveski. Tak góðan vaxdúk, helzt grænan, 30 þuml. á lengd og 13 á breidd, legg sljett á borðið og klipp fóðrið eftir, það er fallegast úr silkitaui eða „lasting", blátt, grænt, rantt, eða Bem hverjum líkar bezt. Bæði borðin eru köstuð saman. Á þeim endanum, sem ofan á skal liggja, eru hornin höfð ávöl. En hinn endinn er brydd- ur með mjóu ullarbandi og er svo brotinn inn á, svo hann myndi hólf fyrir pappir, þerripappir o. fl. Veskið er svo brytt með ullarborða allt í kring og bönd fest í endana til að hnýta það saman með. Innan á fóðrið eru saumaðar sliðr- ur af vaxdúknum, og fest niður með „hexesting" fyrir pennasköft, blýant, skæri, ein fyrir pappírs- hníf, og ein eða tvær mátulegar fyrir umslög. Það er nauðsynlegt á ferðalögum. Bókakápa úr vaxdúk er mjög hentug utanum bækur, sem opt þarf að fara með. Taka skal vaxdúk jafnbreiðan lengdinni á bókinni, sem það á að vera utan um, og svo langan, að hann geti brotizt upp á spjöldin 2—3 þuml., þegar hann er lagður utan um; síðan skal brydda báða end- ana og brjóta þá inn á svo mikið sem þurfa þykir. Að því búnu skal brydda kápuna að ofan og neðan með mjóu bryddingabandi, og þá er kápan tilbúin. Vilji menn prýða hana með því að sauma fangamark i miðja fremri siðuna eða uppdrátt í kring og efst nafn bókarinnar, sem á að leggjast innan í, þá er það fallegra. Tólf samskonar kápur af ýmsnm stærðum er góðjóla- gjöí eða afmælisgjöf banda bókamönnum. Hvítur vaxdúkur er hentugur í dúka á nátt- borð og kommóður í svefnberbergjum. Að utan má höggva lauf á þá eða brydda þá, og sauma svo með krosssaum bekk í kring, með bláu eða rauðu bródergarni. Uppdráttinn má fyrst annað- hvort teikna eða pikka á dúkinn eptir því með hvaða saum bann er gjörður. ------+3K*----- Eldhússbálkur. Sunnudagsbýtingur. 25 kvint smjörs er brætt í potti og upp i það brært 25 kv. hveitis. Það er þynnt með 2 pelum af mjólk, sem hrærist saman við í pottinum, þangað til deigið tollir ekki við sleifina eða pottinn. Þá er potturinn tekinn ofan og deigið látið kóina; síðan eru 25 kv. sykur, 6 eggjarauður og rifið býði af sítrónu hrært saman við. Seinast eru eggjahvíturnar látnar saman við. Það er látið í formið og bak- að l'/j kl.t. Býtingurinn er borinn á borð með rauðri saftsósu.

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.