Kvennablaðið - 01.10.1896, Page 7

Kvennablaðið - 01.10.1896, Page 7
79 um sig, og fann hvernig vilji hans styrktist til að stríða fyrir hana, sem trúði honum svo vel, og barnið þeirra, sem enn þá hafði ekki grun um haust- storma og fölnuð blóm. -----<mo------ ^|^SKORUN sú, sem stóð í 9. töiubl. Kvbl. hefir meðal annars haft þann á- rangur, að ýmsar merkiskonur á Sauð- árkrók og þar í kring hafa skrifað iands- höfðingjafrú E. Stephensen, og boðizt til að taka börn úr jarðskjálftasveitunum; enn með því að þessi boð gátu ekki komið fyr enn með „Thyra“, varð ekki hægt að sæta þessu, enda var þá þegar búið að koma hér fyrir öllum börnum þar að austan, enn eigi að síðr má þakka þetta góða og rausnarlega tilboð. -------------- Barnaföt. Af því ýmsir kaupendur Kvbl. kafa ðstkað eftir að það flytti tilsögn um barnafatnað og al- gengustu tízku á honum, vil jeg, þðtt það sje ðþægilegt að gjöra það vel skiljanlegt mynda- laust, reyna að koma með ýmsar bendingar í þeirri grein, sem bafa má ef til vill dálítið gagn af. Tízkan á barnafótum breytist alltaf, einkum á utanyflrfótum telpnanna, kjðlum, svuntum, káp- um, höttum og hflfum. Og svo er hún svo marg- breytt, að sín telpan getur oft, þótt margar sjeu saman, haft ðlíka kjðla og kápur í lagi, og þö allar verið klæddar eftir nýjustu tízku. Þetta ár og í fyrra hafa ermar á kjólum verið víðar að ofan, rykktar eða felldar á öxlum og þar sem þær hafa verið saumaðar á framerm- arnar rjett fyrir ofan olnboga. Þó þarf ekki að rykkja þær þar sem þær eru saumaðar á undir- ermina, nema þess þurfi vegna víddar. Á litlar telpur er mjög tíðkað að hafa kjóltreyjurnar víð- ar, annaðhvort tvi- eða þrírykktar niður frá háls- málinu allt í kring um það, með einum saum undir hendinni á ytra borðinu (en fððrið nær- skorið), og svo fellt smátt eða rykkt neðst fram- an á framstykkinu og afturstykkjunum. Treyjan krækt eða hneppt að aftan og brydd að neðan.— Pilzið rykkt í kring, en heldur meira að aftan; klaufin aftan á, og fest við treyjuna. Belti krækt að aftan. Eða þá að haía axlastykki á treyjunni líkt og á skyrtum, og rykkja undir þau eða ofan á. Stykkin og beltið eru þá oft úr öðru efni, sem á við lit kjðlsins. Líka hafa verið hafðir slopp- kjðlar i einu lagi upp, rykktir undir axlastykkin, og svo stundum rykktur eða felldur kragi yfir eða á öxlunum, sem leggst ofan á ermina, og saumast niður með handveginum, ofan fyrir stykk- in. Við þessa kjóla má hafa belti eða ekki, eftir vild. Nú er tízka, að þeir sjeu ekki mjög stutt- ir, ná hjer um bil ofan á miðjan kálfa. Kápurnar eru alla vega. Á litlar stúlkur eru þær fallegar víðar, annaðhvort með axlastykkjum, felldar undir þau, eða með heilum boðung, sem slær út að neðan, og heilt, vítt bak, rykkt neðan til við mittið með hnepptri spennu yfir og fest svo í sauminn undir höndunum. Stðrt „slag“ (kragi) yfir, sem er í laginu eins og kringla, en hálsmálið sett í miðjuna og klippt í sundur að framan. Vasar eru á báðum boðungum, sjeu þeir heilir, líkir og á karlmannsjökkum, með vasalok- um. Ermarnar víðar að ofan. Drengjaföt breytast minna. Mest tíðkast á þá matrðsaföt, það er stuttbuxur, lítið ofan fyrir hnjeð, og við treyja með kraga, sem nær ofan á bak og fram fyrir, svo langt niður sem líkar. Optast er boðungurinn fleginn, svo kraginn saumast við hálsmálið likt og kragi á flegnu vesti, nema hvað kraginn er öðruvísi í laginu, sem flestir þekkja. Venjulega er kraginn lagður með ullarstimum, eða mjöum böndum, og brjðstið, sem er haft und- ir treyjunni, er oftast lagt kringum hálsinn með jafnmörgum leggingum. Neðan í treyjunni er teygjuband, svo hún haldist að. Vel þæft vað- mál, „marine“-blátt, brúnt eða grátt, er mjög hentugt og falíegt íg„matrósa“föt á drengi. Sokkar á börn þykja fallegastir litaðir svart- ir, og eiga að ná nokkuð upp fyrir hnje. Bezt

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.