Kvennablaðið - 01.12.1897, Blaðsíða 2

Kvennablaðið - 01.12.1897, Blaðsíða 2
92 um kostnaðarminni en evrópski vbúningur- inn, enda vilja æði margar okkar helzt bera hann. Hjer hagar vitanlega allt öðruvísi til, ■og upp til sveita er jafnan minni sundur- gerð í klæðaburði en í borgum. Auk þess verðurjafnan hver að sníða sjer stakk eft- ir vexti, ef vel á að ganga, og fyrir fátæk- linga verður fæði, húsnæði og hiti, alltaf fyrstu skilyrðin. En þeir sem hafa nægileg efni ættu þó að líta jafnan þokkalega út i klæðaburði hverrar stjettar sem þeir eru. Einkum er það óviðkunnanlegt, að húsmóð- irin gángi illa til fara, ef annars er kostur. Það þarf ekki að viðhafa neina eyðslusemi fyrir því, ef þrifnaður, hagsýni og nýtni er viðhöfð. Ef fötin eru hrein, fara vel og eiga vel saman, þá getur oft litið svo út, sem þau sjeu meira verð en hin, sem fara illa, eiga illa saman og eru óhrein. Feg- urðartilfinningin og hagsýnin ræður þar mestu um. Peisan er óhentug, þegar vinna skal erfiðisverk, og eins við eldhússtörf. En þurfi húsmóðirin sjálí ekki að vera við frammi- verk, nema til að skammta eða líta eftir, þá væri mjög viðkunnanlegt, að hún væri heldur í peisu en „dagtreyju", ef hún fer vel. Það má alveg nota eins peisurnar út og treyjurnar, en þær eru alltaf snotrari. Flauelið á ermum og börmum og slipsið gjörir þær tilbreytingameiri. Þær getá líka verið rúmar og liðugar, þó þær fari vel. Það má auk heldur hafa þær prjónaðar, prjóna víðar lengjur eða smokk í prjón- vjel, klippa hann svo sundur eptir lykkju, þæfa svo smokkinn og pressa hann, og sníða úr honnm peisuna. Smokkurinn þarf að vera svo víður, að úr honum fáist herða- breidd baksins. Lengdin þarf hjer um bil 4 álnir þæfðar. Þessar peisur eru svo lið- ngar og þægilegar, að vinna má í þeim þess vegna alla vinnu. Sama er að segja með ógiftu stúlkurn- ar. Þær eiga að halda sjerdálítið tilhvers- dagslega, eftir því, sem störfum þeirra hag- ar. Það er betra að vera ætið þokkalega og smekklega en þó látlaust klædd, en að vera einstöku sinnum fín, en oftast illa og hirðulauslega til fara. Þegar þær eru við innanbæjarstörf, geta þær vel litið hrein- lega og þokkalega út. Þær ættu að tæta sjer falleg vaðmál í föt, en hætta við að kaupa ónýt klæði. Þær geta mjög vel verið í peisunni við rokkinn sinn. Það er gaman að sjá fólk við vinnu glaðlegt og þokkalegt. Um það ber öllum saman, sem ferðast erlendis, að mikill munur sje á því, hvernig stúlkur þar líti út við dagleg störf sín eða hjer. Hjer mætti oft halda að þær stæðu í moldarverkum eftir þvf að dæma, hvernig þær llta út. En oft má líka sjá hvað fegurðartilfinning- in og hreinlæti gjörir að verkum, þegar lit- ið er á stúlkur sem ganga alveg að sömu störfum og aðrar stúlkur, sem eru eins og rifinn ræfill úr svelli, en geta þó gengið vel og hreinlega til fara. Þið hafið aldrei svo mikið að gera, stúlkur góðar, að þið getið ekki verið greiddar og hreinar í and- liti. Oftast getið þið líka verið þokkalega klæddar, ef þið notið fötin ykkar vel og hagsýnilega. Þið ættuð t. d. að hætta við að vera í nátttreyjunum ykkar eða ljósleit- um ljereftstreyjum að deginum; það var einu sinni siður (eða öllu heldur ósiður), víða á bæjum, en nú er það, sem betur fer, að leggjast niður, en það má ekki koma fyrir, ekki einu sinni á morgnana, meðan verið er að hreinsa til í baðstofunni. Þið eigið að greiða ykkur og þvo um leið og þið farið á fætur; þið segið, ef til vill, að enginn tími sje oft til þess. Jú, ef þið farið þeim mun fyrri að klæða ykkur. Eng- um húsbændum mislíkar það þó þið lítið vel út, ef þið vanrækið ekki störf ykkar fyrir það, heldur þykir það jafnan kostur. Sú stúlka, sem er jafnan þokkalega og hreinlega klædd við vinnu sína, mun jafn- an verða þrifin og hirðusöm húsmóðir, og þolir varla sóðaskap eða hirðuleysi á heim- ili sínu. Sama er að segja með vinnuna; það stendur ekki á sama, hvaða lag er haft

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.