Kvennablaðið - 01.12.1897, Blaðsíða 4

Kvennablaðið - 01.12.1897, Blaðsíða 4
94 nærri 15 árum eldri en hún, þegar hann bað hennar. Henni hafði fundizt milcið til um gáfur hans og virðingar, en hann hafði sagt henni, að hann gæti elcki lifað án henn- ar, og að hann hugsaði sjer hana með sjer í öllum sínum framtfðar vonum. Henni var það nóg. En upp á síðkastið var hann hættur að segja sllkt. Hún hafði hugsað sjer að hún mundi lifa auðugu og tilbreytingasömu lífi, þegar hún skifti hinu gamlaheimili sínu í Cambridge, þar sem hún hafði búið hjá frænku sinni, við heimili manns síns, sem fjekkst við bókstörf og listir í Lundúnum. Enn í stað þess fannst henni það mjög leið- inlegt. Maður hennar var oft að heiman; hann var eigandi og ritstjóri „London-Jour- nals“, og safnaði efni í nýja bók. Honum þótti vænt um heimili þeirra, sem var 70 kílómetra uppi í landi, afskekkt og kyrt, en henni var illa við það. Hún var bæði hrygg og grörn, og var að velkja því fyrir sjer í einveru sinni, hvað sjer væri gert rangt til. Loks komst hún að þeirri nið- urstöðu, að hjónaband hennar væri stór yf- irsjón, að hún væri að eins leikfang manns síns og að henni væri hætt að fara frarn. Maður hennar fann mjög vel, hve breytt hún var orðin, og það kvaldi hann, að hann var hræddur um, að hún sæi eftir að hafa gifzt manni, sem var svo miklu eldri en hún. Hann ímyndaði sjer, að hún væri leið á ást hans, sem henni í raun og veru þætti of lítil. Hugsanir hennar, um að til- finningar hans væru breyttar, voru tóm 1- myndun. Hann var að eðlisfari stilltur og jafnlyndur, og hugsanir hans snerust enn þá allar um hana. Hún varð alltafkaldari, fálátari og vonlausari. Þannig varð djúpið alltaf meira á milli þeirra. Kvöld eitt kom hann heim eftir hálfs- mánaðar burtveru, og sagði henni undir eins, að hann yrði eftir 2 daga að fara til Edinborgar. Aldrei hafði henni fundizt hann hafa gert henni jafnrangt til, og svo ljetti hún á sjer með þungum ávítum. Hún sagði margt, sem Tómasi manni hennar þótti hart að heyra. Hún sagði, að hún hefði gifzt honnm, af því hún hefði verið' svo ung, að hún hefði ekki skilið, hvaðæ þýðingu það hefði; hún talaði um, að von- ir sínar og þroski hefði brugðizt. Loks bað hún hann að gefa sig lausa, svo að hún gæti lifað út af fyrir sig og náð fuilum and- legum þroska. Það er vafasamt, hvort hún skildi sjálf orð sín. Hann hlustaði þegjandi á hana; hún sá aðhonumhafði mjög brugð- ið, en hvort það var af sorg eða reiði vissi hún ekki. „Þú hlýtur að vera brjáluð kona“, sagði hann þegar hún þagnaði, „en þú skalt fá vilja þinn. Jeg skal ekki halda þjer nauð- ugri í fangelsi".— Síðan hafði hann farið burtu snúðuglega; þettahafði bitið á hann, af því hann var þá bæði líkamlega og and- lega þreyttur. Seinna kom hann aftur til hennar og leiddi henni blíðlega fyrir sjónir, hvaða afleiðingar þetta áform hennar hefði. Henni gramdist rósemi hans og hún sat við sinn ' keip. Síðan var allt undir búið til skiln- aðarins. Því var hagað svo, að hann yrði um nóttina í Lundúnum; daginn eftir fór hann norður. Þá var það, er hún ætlaði að taka sam- an flutning sinn, að hún lauk upp skríni til að gæta að einhverjum smámunum og rakst þá á gamlan böggul af brjefum frá manni hennar til hennar áður en þau giftust. Hún settist á gólfið milli skrínanna með brjefin. í kjöltunni; hún ætlaði að lesa þau, enn þá einusinni, og brenna þau svo, en þá duttu úr einu þeirra fáein þurkuð liljublómstur, og hún fór að lesa brjefin með blómin í hendinni. Innileikurinn í brjefunum full- vissaði hana á ný um hina miklu ást hans. Aumingja Elíza lagðist grátandi á gólf- ið — ó, hvað hafði hún gjört? Hún vildi undir eins skrifa honum; hann fengi þá brjefið næsta morgun, og gæti svarað henni áður en hann færi norð- ur eftir, eða, ef til vill, komið sjálfur. Hún skrifaði svo innilegt iðrunarbrjef, sem nokk_

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.