Kvennablaðið - 01.12.1897, Blaðsíða 5

Kvennablaðið - 01.12.1897, Blaðsíða 5
05 ur kona getur skrifað; þegar því var lokið, mundi hún eftir liljublómunum, lagði þau innan í brjefið og bætti við eftirskrift, þar sem hún minnti hann á daginn, þegar þau köfðu týnt þessi blóm saman. Nú í dag var svarið komið frá honum; í því voru liljublómin og þessi fjögur þýð- ingarmiklu orð. Tómas hafði þá lokið verkinu, sem hún hafði byrjað. Hún hafði látið hann sjá inn i hjarta sitt, og hann hafði með fyrirlitn- ingu rekið hana frá sjer. Nú fannst henni sjálfsagt, að hún gæti ekki þegið neirin styrk af manni sínum. Hún átti sjálf fje nokkurt, sem hún hafði fengið að erfðum; hún var mjög vel menntuð og hafði nokkr- ar gáfur. Hún hugsaði sjer að fara til Par- ísar til að verða fullnuma málari. Hún skrifaði til manns síns: „Svar þitt hefir sannfært mig um, að mitt fyrsta áform var rjett. Það dettur víst ekkert ofan yfir þig, þó jeg hafi farið eftir því. Jeg bið þig að láta mig vera lausa við peningahjálp af þinni hálfu“. Hún lagði brjefið þar sem hún vissi að Tómas hlaut að sjá það, og úr því batt ekkert hana við heimilið. Frú Crawley (frb. krolí) í Maríuborg- argötu var ein af því fólki, sem mátti muna betri daga. Það var að mestu leyti manni hennar að kenna, sem hafði verið mesti braskari. En þó hún hefði borið ógæfuna vel, þótti henni vænt um, að nýi leigjandinn hennar, frú Poyntz, gekk ekki fram hjá henni þegjandi, heldur kom til hennar og talaði oft við hana. Frú Poynts hafði ekki mikið meðferðis, og þó hún væri bæði barn- ung og falleg, þá leit út fyrir, að hún ætti hvorki ættingja eða vini. Eliza Vane — því það var frú Poyntz — hafði barizt sjálf áfram í 5 ár hjálpar- laust. En hún átti örðugt uppdráttar. Mál- verk hennar náðu ekki miklu áliti, og loks var hún farin að skrifa sögur og lýsingar í blöðin. Henni gekk það ekki mjög illa, en henni fannst samt, að hún væri orðin vonlaus, þreytt og kjarklaus. Jú, henni hafði farið fram! Þessi fimm ár höfðu breytt henni svo, að hana langaði nú mest til að hverfa úr heiminum. En í dag, á aðfangadag jóla, hafði það atvik komið fyrir hana, sem ekki hafði komið fyrir í þessi fimm ár. Hún hafði sjeð manninn sinn á götunni. Hún hafði hugsað um hann öll þessi fimm ár og seinasta tímann miklu meira en áður og iðrast þess sárlega, hvern- ig hún hefði farið að ráði síuu. En það hafði að eins fengið enn meira á hana að sjá hann ; hann var orðinn gamall og grá- hærður. Hann var lotinn og gekk 1 hægðum sínum; hann svo einmana, sýndist henni. Hún sat nú í stofu sinni í húsi frú Crawleys og var þungt í huga. Hún hafði tekið sjer sæti við skrifborðið að gömlum vana, en hún skrifaði ekki einn staf, en sat hugsandi. Þá klappaði frú Crawley á dyrnar. „Jeg vona að jeg komi ekki í óhentug- an tíma ? Eða ætluðuð þjer að skrifa núna?“ „Jeg get ekki skrifað eitt orð. Gerið þjer svo vel að koma inn“, sagði Eliza og setti fram stól handa gestinum. »Yður er svo ljett um ritstörfin« sagði frú Crawley, og stundi við. »Einu sinni fór jeg líka að leggja það fyrir mig, en blöðin vildu ekki taka neitt af mjer«. »Þjer hafið ekki haldið nógu lengi á- fram ?« Jú, það hjelt hún, og sagði frá ýmsum vonbrigðum sínum í þessum efnum. Það seinasta sem jeg sendi var kvæði. En rjett á eftir steðjaði að mjer allt mitt mikla ólán, svo jeg hafði ekki tíma til að huðsa um ritstörf. Það var annars skrítið hvernig atvikaðist með það kvæði. »Hvernig var það ?« spurði Eliza en veitti þessu svo sem enga eftirtpkt. »Það var dálítið, sem jeg hefi allafhaft samvizku af síðan, þó það væri ekki mjer að kenna. En jeg skal sýna þjer blaðið, það er í skrifpúltinu mínu«. Eliza sat og beið þangað til frú Crow- ley kom aftur. Það hafði henni aldrei til

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.