Kvennablaðið - 30.01.1906, Side 8
8
KVENN ABLAÐIÐ.
bergi, 21 bústaður með tvö herbergi og 4 bústaðir
rneð þrjú herbergi, en öllum fylgir sérstakt eldhús,
búr og klæðaskápur. Á lyrsta gólfi er sameiginlegur
matsalur, set.usalur, lestrarsalur og baðherbergi. Sömu-
leiðis eru þar einnig verzlanir, saumastofur o. fl. Matur
fæst þar einnig keyptur í matsöluherbergjunum. Húsa-
leigan er sanngjörn.
Sömuleiðis er nýlega búið að byggja þar nýtt
hús þar sem mörg heimili geta lagt saman að fá sér
mat mikið ódýrara en ella af því þau væru í sam-
lögum með það. Þetta félag er lagað eftir amerísk-
um sameignarfélögum, og mun vera það fyrsta í
•inni röð á Norðuriöndum.
Einnig er i Stokkhólmi vorkakvenna heimili,
sem hefir staðið síðan 1899. í fyrstu var það ætlað
24 verkakonum, en nú or það stækkað svo, að það
rúmar 60. Sérstakt stórt herbergi kostar, með góðum
húsbúnaði og hita, 10—12 krónur um mánuðinn.
En ef 2—3 búa saman, þá að einshelminginn. Þar
er líka sameiginlegur matsalur og oldhús með fjölda
mörgum gasvélum, svo hver getur búið sér sjálfum
mat og kaffi, Einusinni í viku er sameiginleg skemt-
un ýmis konar. Hús þetta hefir enn þá ekki gotað
svarað kostnaðinum, heldur verið styrkt af félag-
inu: „Heimili verkakvenna11.
Til þess að koma í veg fyrir barnadauða fátæka
verkafólksins í Berlín, hefir félag verið stofnað þar í
borginni tíl þess að hjáipa fákætum mæðrum, svo
að þær þurfi ekki að vinna svo mikið, að þær verði
að hæt.ta við að hafa börnin á brjósti.
Prú Lina Morgenstern er, einB og kunnugt er,
sú, sem heflr fyrst komið á fót þýzku, ódýru skola-
eldhúsunum.
Smám saman er nú búið að koma á fót skóla-
eldhúsum i öllnm úthverfum Beriíuar, sem seija ó-
dýran mat, og nú síðast í Schöneberg, sem hefir
fært svo út kvíarnar, að frá því að vera lítil byrjun,
þá lætur það nú úti dagiega að meðaltali hér um
bil 225 matarskamta. Að vetrinum borda þar dag-
lega 250—300 börn, kl. in/2 árd. Á sumrin er þar
lítil aðsókn. Alþýðu-eldhússkólarnir fá árlega mikl-
ar gjafir fra ýmsum. Sömuleiðis styrkja kaupmenn
þá, með því að láta þá fá vörurnar mjög ódýrar.
Tiu milliónir af fuglum verða að láta lífið árlega
til þess að amerískar skrautkonur hafi eitthvað til
að skreyta hattana sína Ineð. Milli 25— 30 milliónir
fugla flytjast árlega til Engiands. Svo telst til, að
á ári hverju séu 2—300 milliónir fugla drepnir til
að skreyta með hatta hégóndegra kvenna um allan
heim. *
ll-U-l . I !■■■■ ■«!■■■ ■11... 'U «1 ■ I ■■■■'— ■■II I ' ■ »'-f ' I.1H
Útgefandi: Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
BIÐJIÐ ÆTÍÐ VH
(sbr. Kvennablaðið i des. 1905).
M. ZADIGS þvottaduft, finar sápur, ilmvötn, tann-
duft, hörundsmeöal, skóáburður, o. m.
fli, einkasala i
THOMSENS MAGASÍNI,
REYIiJAVÍK.
Ágæti Kína-Lífs-Elixírsins sést bezt
á eftirfarandi smáklippingum:
Sinadráttur í kroppnum um 20 ár.
Eg hef brúkað Elixírinn eitt ár og er nú
sama sem laus orðinn við þá plágu og finst
eg vera sem endurborinn. Eg brúka bitt-
erinn að staðaldri og kann yður beztu þakk-
ir fyrir, bvað eg befi baft gott af honum.
Norre Ed. Svíþjóð.
Carl J. Anderson.
Taugaveiki, svefnleysi og lystarleysi.
Hef leitað margra lækna, en árangurslaust.
Fór því að reyna ekta Kína-Lífs-Elixír
Waldemars Petersens og fór að batna til
muna, er eg hafði tekið inn úr 2 ílöskum.
Smiðjustíg 7, Reykjavik, júní 1903.
Ghiðný Aradóttir.
Máttleysi. Eg sem er 76 ára, hef l1/*
ár hvorki getað gengið né nolað hend-
urnar, en hefi nú batnað það af Elixírn-
um, að eg get gengið til skógarvinnu.
Ry Mark, Hróarskeldu, marz 1903.
P. Isaksen.
Frá því eg var 17 ára, hefi eg þjáðst
af blóðleysi og magaslæmsku. Eg hef
leitað ýmsra lækna og notað 57ins ráð, en
árangurslaust. Eg fór þá að nota ekta
Kína-Lifs-Elixír frá Valdemar Peiersen og
líður nú betur en nokkurn tíma áður, og
vona, að mér batni til fulls af bitternum.
Hotel Stevns, st. Hedinge 29. nóv. 1903.
Arne Chi’istensen (26 ára).
Biðjið berurn orðum um Waldemars
Petersens ekta Kína-Lífs-Elixír. Fæst al-
staðar. Varið yður á eftirstælingum.
Fæst alstaðar á 2 kr. flaskan.
Prentsm. Gutenberg.