Kvennablaðið - 24.04.1907, Síða 2

Kvennablaðið - 24.04.1907, Síða 2
‘26 &venn;ablaí>ií>. eins og aðrar fleiri þegjandi. En eftir að eg las þessa grein, finnst mér ómögulegt að ganga fram hjá henni, án þess að láta opinberlega i ljósi skoðun mína á velferðar- máli okkar kvennanna. Eg er mjög þakklát hinni heiðruðu ritstýru blaðsins fyrir áhuga þann, er hún sýnir í orði og verki, til að heíja okkur upp á stig frelsis og réttinda, og það er eðlilegt, að henni gremjist að svo fáal* veita henni lið, eða láta ásjást í lieinu, að þær kunni að meta starf henn- ar. Þó eg taki mér penna í hönd til að rita þessar línur, er eg þó óefað ein af þeim alt of fáu konum, sem njóta frelsis og sann- * girni í heimilisverkum sínum og daglega lífinu, enda á eg þann mann, sem ekki bind- ur mig á klafa ófrelsis og lítilsvirðingar. En því er ver og miður, að það eru marg- ar konur, sem eru ófrjálsar og lítils metn- ar hér á landi. Það er eldgamall vani, sem alt of lengi hefir ríkt yfir lífsbraut kvenna, enda er margt sorglegt dæmi að íinna, sem slík kúgun hefir getið af sér. Það gefur hverjum manni að skilja, að kvenmanninum er eins meðsköpuð þráin til frelsis og réttinda, eins og karlmannin- um, sem hún verður að kæfa niður á hverju augnabliki lífs síns, þangað til dauð- inn gerir enda á lííi hennar, sem þá oft og tíðum er orðin þung byrði. Hversu glæsileg eru kjör þeirrar konu, sem á drykkjumann, er grætir hana og misþyrmir benni, þegar hún vill fagna honum? Hversu glæsileg eru kjör þeirrar konu, sem svo er ófrjáls, að hún má ekkert hafa handa á milli, nema það, sem maðurinn skamtar henni í þann og þann svipinn, og það stund- um af þeim eigum sem hún á sjálf? Hversu glæsileg eru kjör þeirrar konu, sem fyrir dags-erfiði sitt fær að launum ávítur og að- finnslur manns síns? Þannig mætti tilfæra mörg dæmi, sem sýna hina ófrjálsu hlið kvennmannsins í smáu sem stóru. Og það ætti að vera meiri áhugi íslenzka kvenfólksins en er í öllum efnum, og við höfum nóg að berjast fyrir. Eg er í engum vafa um það, að allar konur yngri sem eldri vilja komast að há- leitara takmarki, en þær hafa hingað til náð. Þær hafa áhuga á því, og vilja það, en brestur kjark til að ræða opinberlega þessi framfaramál sín, og mörg kona, sem finnst sig vanta næga þekkingu til að ræða um slíkt, — enda er upplýsing okkar kvenn- manna víða á landinu svo ófullkomin enn, að við getum tæplega skrifað sendibréf skammlaust. Er því eðlilegt, að við drög- um okkur i hlé að láta lærðari menn, kon- ur sem karla, »kritisera« ritgerðir okkar. Staða kvenna í mannfélaginu hefir fram að þessum tima verið á lágu stigi; ekki vegna þess, að kvenmanninum séu gefnir minni hæfileikar frá skaparans hendi, en karlmanninum, heldur vegna þess, að aldarandinn og rótgróinn vani hefir varnað þeim að njóta þeirra réttilega. Þegar á alt er litið liöfum við engu minni skyldum að gegna en karlmennirnir. Við »erum mæð- ur og fóstrur æskulýðsins«, við verðum að taka hann á okkar arma, sjá um að ala hann upp á erfiðustu árunum, sjá um, að hann hafi fæði og klæði og margt fleira sem mæðrum er kunnugt um, er börn liafa haft á hendi. Við eigum að sjá um, að heimili okkar séu þrifaleg, að alt sé í röð og reglu, og við eigum að sjá um fæði og klæði handa yngri og eldri sem á heimil- unum eru. Þetta er æfistarf flestra kvenna, og hærra mega þær ekki líta margar hverj- ar, þótt þær séu gæddar þeim hæfileikum, sem lyft gæti þeiin á hærra stig mentunar og manngildis. En sein betur fer, er þetta óðum að færast í áttina til hins betra. Við erum komnar inn á brautina, sem liggur að hærra og frjálsara takmarki, þótt aðal- starf okkar sé óunnið enn. Við verðum að hafa það hugfast, konurnar, að þó við sjálfar, sem komnar erum á fullorðins 'ár, getum búist við því, að njóta ekki ávaxt- anna af baráttu okkar, þá eigum við flest- ar unga og uppvaxandi kynslóð undir hendi, sem getur notið Jieirra. Og eg skil ekki annað, en hver móðir vilji með ánægju verja kröftum sínum til þess, að dætur hennar, sem eiga sömu lífsstörfum að gegna á lífsleíðinni, geli komist að fullkomnara marki, en hingað til hefir átt sér stað. Það er ranglátt, sem alt fram að þessum tíma

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.