Kvennablaðið - 30.09.1907, Page 3

Kvennablaðið - 30.09.1907, Page 3
KVENNABLAÐIÐ. 67 svo gestirnir sæju það ekki; það er svo ó- kvenlegt o. s. frv. En hvað er þá kvenlegt? Er kvenlegt að vera sá aumingi, að komast ekki á bak á hest, eða bæjarleið, án karl- mannshjálpar ? Er kvenlegt að hrópa: „Guð almáttugur!" ef barn rekur upp org eða fluga eða mús — þessi hræðilegu dýr(!) — sjást ein- hverstaðar nærri ? Það er blátt áfram upp- gerð og tepruskapur, hverjum heiðarlegum manni, karli og konu til stórskammar og sví- virðu. Enn vitum við ekki, hvernig alþingi og stjórn verða við kröfum okkar um kosninga- rétt. Enginn óskar innilegar en eg, að svör- in þau verði góð og engin kona mundi fús- ari hagnýta sér þann rétt en eg. En eg vil hafa meira frelsi, andlegt frelsi, svo við verð- um færar um að hrinda af okkur þeim bönd- um, sem binda okkur við gamlar kreddur; kreddur, sem aldrei hefðu átt að vera til. Byrjum með því að kenna stúlkubörnunum, að þær sjeu menn fyrst og fremst; hugsandi, frjálsar verur, á jafnháu stigi og karlmenn; „neisti af guðs lifandi sálK. Kennum þeim, að þær geti gengið óstuddar, þurfi ekki að standa undir verndarvæng karimanna. Þá rís upp hið sanna kvenfrelsi á íslandi. Og þá getur enginn sagt, að við höfum ekkert við kosn- ingarétt að gera. Þar vildi eg vera, sem kvenþjóðin hefði fundið sálu sína,—aliar konur. Yæribúin að grafa hana upp úr dýki prjáls og uppgerðar. Því við enim engir hugleysingjar. Við þor- um að reyna, að „vogun vinnur og vogun tapar“, ef við gætum einungis allar trúað, að það sé kvenlegt. Hefðum ætíð hugfast, að teprudrósin, sem ekki getur riðið yflr áar- sprænu eða hoppað yfir iæk óstudd, er þús- undfalt minna virði en hin, sem leggur alla krafta sína fram til þess, að stríða og sigra, án þess að hugsa um, hvort það sé ókven- legt eða ekki, þó hin fyrnefnda sé ef til vill álitlegri sýnum eða betur búin. Renni sú öld yflr Island, að t.ízkubrúðan og teprudrósin verði athiægi allra! þá er kven- frelsi í iandi. Fyr ekki. Þiugeysk sveitastídka. ----— » —-------- Draumarnir mínir. Eg á svo marga inndæla drauma, sem eru mjúkir og bliðir; einn er stuttur, annar langur, en allir svo ljúflr og þiðir. Þó dáleiða blíðast og dilla mér sætast draumarnir mínir, sem aldrei rætast. Og eg finn, hvernig draumarnir fjötra mig fastara og þéttara vefja þeir sig og blíðara að brjóstinu mínu og binda mig ásmegin sínu, láta mig heyra ijóðanið leiða mig inn í sælan frið, seiða að augum mér sólperlur glitrandi svæfa mig ölduhljóm titrandi. Alt sem eg þrái, svo ákaft, svo heitt hverja ástríðu, er gerir hjarta mitt þreytt og von, sem að veitir mér yndi og vekur mér barnsgleði’ í lyndi, ljósálfar bera mér ljúflega, þítt, leita að öllu, sem finst mér blítt, færa mér óskirnar hjartkærar, hillandi hjúpa mig sólblæju gyllandi. Alt, sem að gerir mér lífið langt, alt lamandi veikjandi, hart og strangt, alt, sem að þrekinu eyðir og óskirnar mínar deyðir; alt, sem eg hata, sem hata eg mest — sú hugraun leikur mig kaldast og verst — eg fæ að horfa’ á það dapurt, deyjandi í duftið aílvana höfuðið beygjandi. í draumunum er eg heil, ekki liálf, svo hugprúð og göfug, það er eg sjálf laus við alla mína mörgu bresti. í vökunni er eg veik og smá af vananum fjötruð, í hugsun lág, að engu verður draumurinn dýri, bezti. María Jóhannsdóttir. Sagan af Glsta Berling. Eftir Selma Lagerlöf. (Framh.) Alt þetta, sem leiddi af sér svo mikla ógæfu, var þó gert í góðu skyni. Júlíus gamli, einn af Riddurunum, sem var svo vanur öllu þess- háttar, hafði búið út sýningu, einkum til þess að Maríanna skyldi fá að ijóma þar í allri sinni fegurð,

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.