Kvennablaðið - 20.07.1910, Blaðsíða 1
Krennablaðiðkost-
ar 1 kr. 60 au. inn-
anlands, erlendis 2
kr. [60 cent vestan-
hafs) */» v*»rðsins
borgist fyrfram, en
*/» fyrir 16. júli.
t'cuual'labib.
Uppsogn skrífleg
bundin við ára-
mót, ógild nema
komin sé til út-
get. fyrir 1. okt
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
16. ár.
Reykjavík, 20. júli 1910.
M 6.
^ambandsfundur
Kvenréttindafélags Islands.
Fyrsti reglulegi sambandsfundur Kvenrétt-
indafélags íslands, eftir að sambandið var stofn-
að, var haldinn i Reykjavík dagana 29.—30.
júni síðastliðinn. Mættar voru á fundinum
sem fulltrúar: frk. Hólmfriður Árnadóttir fyrir
hönd Kvr.fél. ísafjarðar, frk. Guðríður Sigurð-
ardóttir kvennaskólaforstöðukona, fyrir hönd
Kvr.félags Blönduóss, fröken Ingibjörg Péturs-
dóttir frá Sauðárkróki fyrir hönd Kvr.félags
Sauðárkróks, og 3 fulltrúar frá Kvr.fél. Reykja-
víkur, þær frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir, fröken
Laufey Valdimarsdóttir og frk. Kristin Arason,
sem eru framkvæmdarnefnd Sambandsins.
Fundirnir voru haldnir í kvennaskólanum,
sem skólanefndin góðfúslega lánaði til þessa.
Fyrsta verkefni fundarkvenna var að kjósa sér
formann, og að öðru leyti skifta verkum milli
fulltrúa Reykjavíkurfélagsins, sem eftir sam-
bandslögunum eiga að vera framkvæmdarstjórn
sambandsins, og var frú Briet kosin formaður
frk. Kristín Arason gjaldkeri og frk. Laufey
Valdimarsdóttir ritari.
Fyrsta mál á dagskrá var um það, hvern-
ig haga skuli útbreiðslu kvenréttindafélags-
skaparins, og hvað gera skyldi til þess að efla
almennan áhuga meðal ísl. kvenna á framfara-
málum kvenna. Umræður um það urðu langar
og kom öllum fulltrúunum saman um, að eina
ráðið væri að senda konur í fyrirlestraferðir
hingað og þangað um landið, bæði í kaupstaði
og þéttbýlli sveitir. En að svo stöddu sáu
fundarkonur sér ekki fært að ráða neina fasta
fyrirlestrarkonu til til þess starfa vegna féleysis.
En samþykt var að leitast við að fá tvær fé-
lagskonur, þær frk. Laufey Vilhjálmsdóttur og
frk Hólmfríði Árnadóttur, sem báðar áttu leið
norður í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslur til að
halda þar fræðandi fyrirlestra, og leitast við
að fá kvenréttindafélag Akureyrar til að ganga
í Sambandið.
Þá var rætt um og ákveðið, að skora á öll
kvenréttindafélög landsins, að gera tilraun til
að útbreiða þenna félagsskap í grend við sig,
og að halda almenna, fræðandi fyrirlestra og
umræðufundi um þessi mál. Sömuleiðis var
ákveðið, að kvenréttíndafélögin skyldu gangast
fyrir öllum kosningaundirbúningi frá kvenna
hálfu, í þeim bæjum og sveitum, þar sem þau
eru, og sjá um, að hæfar konur fengjust til að
taka við kosningu, í hvert sinn er kjósa skal í
þær nefndir, sem konur hafa rétt til að sitja í.
Pá kom fram tillaga um, að skorað væri á
öll kvenfélög landsins að ganga í samband
kvenréttindafélags íslands. En með því að
sambandslögin gera það að skilyrði, að öli
sambandsfélögin hafi engin önnur mál á dag-
skrá en pólitískan kosningarétt og kjörgengi
kvenna, ásamt öðrum slikum kvenréttindamálum,
þá þótti það ekki tiltækilegt, að svo stöddu, með
þvi líka að alþjóða kosningarréltarfélagið, sem
kvr.fél. íslands nú er að ganga í samband við,
hefir ströng skilyrði í lögum sinum um, að
aðalstefnuskrá félaganna skuli vera pólitiskur
kosningarréttur kvenna, með sömu skilyrðum
í hverju landi og karlmenn þar hafa hann.
En þar á móti varákveðið að rita sem flestum
kvenfélögum og skora á þau, að taka kven-
réttindamálin líka upp ástefnuskrá sína. Sömu-
leiðis var ákveðið, að rita kvenréttindafélögum
Akureyrar og Seyðisfjarðar og skora á þau að
ganga í Sambandið.
Pá var rætt um, á hvaða hátt konur gætu
unnið að því, að þær fái sem fyrst pólitiskan
kosningarrétt, sem væri grundvöllur allra ann-
ara réttinda, og var tillaga samþykt um það,
að sambandsstjórn kvenr.fél. íslands hlutist til
um, að fá konur í sem flestum sýslum lands-
ins til að bera fram tillögur um það á þing-
málafundunum fyrir næsta alþingi, og fá þing-
menn þeirra til að fylgja þvi fram, að ný stjórn-
arskrárbreyting verði ger á næsta alþingi,
og konum verði veittur stjórnarfarslegur kosn-
ingarréttur og kjörgengi með sömu skilyrðum
og karlmönnum, ásamt jöfnum aðgangi að öll-
um æðri mentastofnunum landsins og embætt-
um með sömu skilyrðum og karlmönnum.
Pá var rætt um og samþykt, að sækja um
ferðastyrk til næsta alþingis handa einni konu,
sem fulltrúa frá Kvenréttindafélagi íslands, á
alþjóðakvenréttinda stórþingið, sem halda á í
Stokkhólmi 1911, sem væri í fylsta samræmi
við þá stefnu, að kynna ísland og stjórnmál
þess sem mest erlendís, og var framkvæmdar-
nefndinni falið að sjá um það.