Kvennablaðið - 05.05.1911, Page 3
KVENNABLAÐIÐ
19
Fundarboð
á 6. alþjóðlega kvenréttinda stórþingið.
F*. 12,—17. júní næstkoraandi veröur 6. al-
þjóða kvenréttinda stórþingið haldið í Stock-
hólmi. Pessi 22 lönd, sera bundist hafa saman
i Alþjóða kosningarréttar-sambandsfélagi kvenna
haía rétt til að senda 12 fulltrúa hvert: Ástralía,
Austurríki, Bandarikin, Belgía, Búlgaría, Bæheim-
ur Canada, Danmörk, England, Finnland, Frakk-
land, Holland, ísland, Ítalía, Noregur, Rússland,
Sviss, Serbia, Svíþjóð, Suður-Afríka, Ungverjal.,
og Pýzkaland. — Sérstakt boð er sent öllum þeim
löndum, þar sem konur hafa kosningarrett, að
senda sérstakan stjórnkjörinn fulltrúa. — Sömu-
leiðis er öllum sambands-landsfélögum, sem eru
meðmælt þessari hreyfingu, boðið að senda
»systra«-fulltrúa (fraternal delegates) eins og
allir þeir, sem eru þvi fylgjandi að konur hafi
með atkvæði sínu, rétt til að verja hugðarmál
sín og hagsmuni í þjóðfélaginu, eru velkomnir
að vera viðstaddir.
Kosningarréttarhreyfingin hefir tekið svo
miklum framförum á síðustu 6 árum, að á hverju
af þessum 5 stórþingum höfum vér átt sigri að
fagna. Þetta ár er að því leyti ekki eftirbátur-
inn að það getur sett ríkið Washington á sama
listann og önnur þau riki í Ameríku, þar sem
konur hafa kosningarrétt.
Vegna ötulleika og áhuga~sænskra kvenna,
hefir sænska stjórnin kosningarrétt kvenna til
yfirvegunar (og þingið hefir nú einnig tekið upp
frumvarp um það efni, eins og ríkisþing Dana
og alþingi íslendinga;. Fjölmennur alþjóða-
stórfundur, með skýrslum um vaxandi áhuga í
öðrum löndum,? fyrir þeim hagsmunnm, sem
kosningarréttur kvenna hefir í för með sér, þar
sem hann er kominn á, muu verða þessari
breytingu öruggur styrkur.
Oil þau sambandsfélög, sem eru í Alþjóða-
sambandinu eru því alvarlega ámint um að
senda fulla fulltrúatölu á fundinn. — Hverþjóð,
sem gengur i samband við oss, styrkir vort
sameiginlega málefni, og veitir þeim löndum
sem byrjuð eru á starfinu, hug og dug.
Vér bjóðum alla vini kosningarréttarkvenna
hjartanlega velkomna á stórþingið í Stockhólmi.
Carrie Chapman Catt, formaður.
Millicent Garrett, 1 varaform.
Annie'Furuhjelm, 2. varaform.
Martina Kramers, Anna Lindemann og
Signe Bergman, ritarar.
Adele Stanton Coit, gjaldkeri.
VI. lieimsþingid
um pólitískan kosningarrétt kvenna
í Stockholmi 12.—17. júní 1911.
Miðnéfndin fyrir VI. heimsþinginu, um
pólitískan kosningarrétt kvenna, hefir hér
með þá ánægju að bjóða meðlimum frá
kvenréltindafélögum, ásamt öllum körlum
og konum, sem áhuga hafa á þessu máli,
að taka þátt í heimsþinginu, sem á að
halda í Stockholmi 12.—17. júní 1911.
Hluttökubeiðnir óskast sem fyrst send-
ar til skrifstofu heimsþingsins Lástmakara-
gatan 6, Stockh. Skriflegar inntökubeiðnir
sendast til »Rö s t r á tt s kon gressen,
Stockh ol m «
Óskandi er að hluttökugjaldið, semer
5 krónur pr. mann, (nema fyrir kjörna full-
trúa) ásamt nafni og utanáskrift, sendist
uin leið og liluttökubeiðnin. Til þess að
fá þingmerkið og dagskrá, verða allir strax
eftir komu sína, að snúa sér til skrifstof-
unnar.
Allar spurningar og pantanir sem snerta
bústað meðan á þinginu stendur, skulu
sendast til frú Fanny Petterson, Scheele-
gatan 15, Stockholmi.
Þingið verður haldið í hátíðasalnum á
Grand Hotel. Hin hátíðlega þingsetning
fer fram í stóra salnum á »Musikaliska
Akademien«. Opinberir fundir verða auk
þessa haldnir í »Dramatiska« leikhúsinu
og í A-salnum i »Folkets hus«.
í sambandi við þing þetta verða ýms-
ar skemtiferðir gerðar í nágrennið kring-
um Stockholm, og gestunum sýnt alt
það inerkasta í borginni af sérfróðum
fylgdarmönnum.
Eftir þingið verður séð um skemti-
ferðir handa gestunum til Uppsala, Visby,
ásamt ferð fyrir marga saman upp í Lapp-
land.
Meðan á þinginu stendur verður opin
listaverkasýning eftir sænska listamenn,
karla og konur.
í þeirri von að VI. heimsþingið verði
fjölsótt af öllum vinum kosningarréttar