Kvennablaðið - 19.03.1913, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 19.03.1913, Blaðsíða 1
Kvennablftðið koit ar 1 kr. 60 au. inn- anlande, erlendis 2 kr. [60cent vestan- hafa) */• vprðains borgist fyrfrara, en */» fyrir 15. júli. UppaÖgn skrifleg bundin við ára- mót, ógild nema komin sé til út- get. fyrir 1. okt og kaupandi bafl borgað að fullu. 19. ár. Reykjavík, 19. mars. 1913. M 3. Útsýn Enskar konnr og kvenréttindamálin. Af því ísl. blöðin flytja aldrei nema örstuttar athugasemdir um kosningarrétt- arbaráttu enskra kvenna, þá er réttmætt að lesendur Kvennabl. fái stutt yfirlit yfir sögu þessa máls og hvernig hún stendur nú. Vér verðum að líta til baka tii árs- ins 1867., þegar John Stuart Mill bar upp breytingartillögu við kosningarréttarfrum- varp karlmanna, sem veitti konum sama kosningarrétt. Undirskriíta áskorun til Parlamentisins var þá send út í snatri, og á 14 dögum undirskrifuðu 1500 alþektar konur nöfn sín undir hana, Samt var breytingartillagan feld, en samþykt lög um að veita búandi karlmönnum kosningar- rétt. Árið eftir stofnuðu konur fyrsta kven- réttindafélag sitt þar í landi: »National Union af Women Suffrage Societies«. For- maður var Mrs Millecent Fawcett, sem enn er fyrir því félagi. Maður hennar var vinur Mills, og fylgdust þeir að i þessu máli. Enda var Mrs. Fawcett fyrsta kon- an, sem talaði þar í landi opinberlega á fundum. Santján ára friðsöm agitntion. Konur unnu nú alvarlega að þvi að agitera fyrir þessum málum, bæði við þing og þjóð, í sautján ár. En engu varð um þokað í þessu máli. Þær héldu fjölmenna fundi, og fengu einróma fundarsamþyktir og áskoranir til stjórnarinnar að veita kon- um kosningarrétt. Þær sendu Parlament- inu yfir 9000 áskoranir, sem bera nöfn 3 milj. kvenna, margfalt hærri tölu en þvi hafði verið send í nokkru öðru máli. Meiri hluti þiugmanna í neðri deild hafði heitið þeim fylgi sinu, svo alt virtist benda á að sigurinn væri að eins tímaspursmál. Árið 1884 bar frjálslynda stjórnin, sem þá sat að völd- um, upp kosningarlagafrumvarp, sem veitti miklu víðtækari kosningarrétt, þannig að mikill hluti verkamanna í sveitunum fengu hann lika. Við það var sú breytingartil- laga ger, að veita konum lika kosningar- rétt. Hún var feld, vegna þess að Glad- stone, sem þá var forsætisráðherra, talaði á móti henni, og skoraði á alla þingmenn, sem væru henni meðinæltir og hefðu lofað fylgi sinu, að hætta við það, og greiða at- kvæði á móti, því ef hún yrði samþykt, þá segði stjórnin af sér. Þeir létu sér það að kenningu verða, og sviku öll sín fyrri loforð. Mr. Gladstone hét þá að hann skyldi greiða veginn fyrir þingmannafrumvarpi um kosningarrétt kvenna sama ár, og gefa því nægan tíma til að ganga í gegn um deildina. En þegar til kom, var það tekið út af dagskrá daginn, sem það átti að koma til annarar umræðu. í 20 ár unnu konur nú áfram þolinmóðlega að þessari sömu agitation; þær mótmæltu aðeins stillilega þessum svikum, en héldu enn rólegu, lagalegu agitationinni áfram. Margar konur voru reyndar farnar að missa vonina. Árið 1897 sendu þær Parla- mentinu feyki stóra undirskriftar áskorun með 250,000 nöfnum undir. AIIs höfðu þær sent þinginu síðan 1867 þrjátíu og tvisvar sinnum undirskriftar áskoranir. En 1897 tók Parlamentið málinu mjög illa og skammaði konurnar fyrir þráa þeirra og uppreisnaranda.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.