Kvennablaðið - 19.03.1913, Page 5

Kvennablaðið - 19.03.1913, Page 5
KVÉNNABLAÐIÐ 21 þeirra voru sendar út á orustuvellina i »Rauða- kross«-þlónustu. En sumar höíðu gert sin ráð sjálfar. Pær hluþu inn á meðal riddaraliðsins og köstuðu sþrengikúlum inn í óvinafylkingarnar. Tólf- af þeim féllu meðan þær voru að þessu, og voru grafnar með karlmönnunum, sem féllu þenna dag. Á undan þessu áhlaupi voru fjór- j ar konur sendar til Peking í leynilegum erind- um. Til þeirra hefir aldrei spurst og ætlað er að þær hafi verið leynilega drepnar. Tvær aðr- ar her-konur voru sendar að leita þeirra, og um þær vita menn það, að þær voru teknar af lífi opinberlega. — Fjórar konur frá Shanghai voru að minsta kosti innskrifaðar sem dátar í herfylk- in og drepnar — þær voru dulklæddar sem her- menn. Ungur maður nokkur sagði okkur, með leyftrandi augum af stolti, að systir sinhefðidrep- iðeinn af Manchu-hershöfðingjunum þannig, að hún hefði miðað beint á hann frá »línunni«. í þessu, sem i öllu öðru i Kina, þá er eins og að þétt huia af óvissu sé yíir allri þessari upp- reist kvennanna. Við höfum beðið konur um að safna skýrslum um þessa viðburði, og skrifa okkur sanna sögulega skýrslu eða yfirlit um alt það, sem konurnar gerðu til að styrkja stjórn- arbyltinguna. En síðan ég fór frá Shanghai, hefi egekki fundið neina kvenréttindakonu, sem hefir talað ensku, svo eg hefi orðið að tala við þær með túlki. En eg heíd að ofanrituð skýrsla muni vera rétt og laus við ýkjur af öllum við' burðum. (Framh.) Rödd frá fyrri tímum, Menn halda að það sé nýtt tímanna tákn að heimta, að konur fái verklega sér- mentun til þess að geta unnið fyrir sér, og margir hrista höfuðin og óska að hinir góðu, gömlu tímar kæmu aftur, þegar ungu stúlkurnar gengu hálfiðjulausar og biðu eftir biðlinum, og ef þær lærðu eitthvað, þá var það að eins til þess að undirbúa sig undir húsmóðurstöðuna, þótt oft færi svo að hana fengu inargar þeirra aidrei, og yrðu að lifa ósælu ölmusulífi hjá ætt- ingjum sinum, af þvi að þær höfðu ekk- ert lært, sem þær gátu lifað af sjálfstæðu lífi. En oft hefir það líka komið i ljós að víðsýnustu og vitrustu mennirnir hafa haft sömu skoðanir á þessu efni eins og við höfum nú á tímum. Hinn stórgáfaði sænski rithöfundur, CartJonas Lowe Almquist, f. 1763, einn af merkilegustu og fjölhæfustu sænskum rithöfundum lýsir skoðun sinni á þessu máli, i ritgerð, sem hann kallar: »Heiður vinnunnar« á þessa leið: »Konan á að undirbúast til að leysa öll þau störf af hendi, sem henni eru fær, svo hún með guðshjálp geti unnið fyrir sjálfri sér með sjálfstæðri atvinnu. Hún má ekki ætla sér að gifta sig, sem úrræði til þess að sjá sér farborða, því þá mun hún gera mann sinn ógæfusaman, og eyði- leggja sjálfa sig. Þaö er svívirðing fyrir konur að vera ómagi manna sinna, eins og það er skömm fyrir karlmenn að fæð- ast af slíkum konum. Það er virðingarsök fyrir hverja konu að hafa ekki samfarir við nokkurn mann, nema hún elski hann. Hún breytir sví- virðilega ef hún tekur hvaða mann sem væri, sem gæti fætt hana og klætt óg gefið henni hús og heimili og eiginkonu nafn. Þess vegna á hún að læra einhverja atvinnugrein, og stunda hana með glöðum og góðum vilja, svo hún neyðist ekki fá- tæktar vegna, til þess að taka saman við einhvern, sem hún ekki elskar, þvi það er stór synd. Konan á ekki að trúa þeim, sem segja sterkan vilja og skýra vitsmuni, að hún gæti lært það, sem hún þarf á að halda til þess að geta unnið fyrir sér á heiðar- legan hátt, sjálfri sér til ánægju og sæmd- ar. Hún má heldur ekki trúa þeim, sem segja að konunnar ákvörðun sé að lifa í þrældómi, og undir annara stjórn, og að þær missi kvenleika sinn, ef þær vinni sjálfar fyrir sér með sjálfstæðri vinnu. Konan á eins og karlmaðurinn að hlýða guði og þjóna lionum, á hvaða hátt sem góð þjóðfélagsskipun heimtar. En það er langt frá því, að vera þrældómur, og því, að hlýða öllum fyrirskipunum annara Engin kona getur gert nokkurn eigin- mann algerlega hamingjusaman, ef hún elskar hann ekki. Þess vegna má karl- manninum þykja vænt um að konurnar

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.