Kvennablaðið - 19.04.1913, Blaðsíða 3

Kvennablaðið - 19.04.1913, Blaðsíða 3
KVÉNNABLAÐIÐ 27 Fáein orð um eldhúsfrelsi og búrréttindi. wfaö getur verið gott fyrir »dömur« og »frúr« í kaupstöðum að fá meira frelsi, en fyr- ir okkur, kvenfólkið í sveitunum, held eg það skifti litlu máli«. Nokkrum sinnum hefl eg heyrt konur mæla á pessa leið. Og þær be'ra ýmsu við. Segjast ekki vera vaxnar því að fá aukið frelsi, þær skorti ment- unarþroska til að kunna með að fara. Aðrar segja, að þær séu svo önnum kafnar, sem mæður og húsmæður eða vinnukonur, að þær mundu ekki geta tekið þátt í opinberum störfum eða hagnýtt sér meira frelsi en þær hafi nú. Og því er ekki að leyna, að við karlmenn láum öðru hverju að heyra það, að ráðríki okkar mundi koma í veg fyrir notin, er af auknu frelsi kynni að mega hafa að öðrum kosti. Og þó engu af þessu sé borið við, þá eru sumar mæð- ur og meyjar svo fínar og teprulegar, að telja það beinlínis ókvenlegt, að eiga þátt í sveita- málurn, hvað þá í landsmálum. í landsmálum! Ekki nema það þó, fyrir kvenfólk, að fara að sitja á fundum með karlmönnum og skifta sér af almennum málum! Og þó kastaði tólfunum þá fyrst verulega, ef frelsisaldan bæri þær inn í stjórnmálin! Mér er nær að halda, að sumar ungu stúlkurnar líti svo á, að stjórnmálaaf- skifti beri vott um sérstaka lítilsvirðingu fyrir kvenlegu eðli. Veigalitlar virðast mér þær margar þessar viðbárur. En ámælisvert er það ekki að sama skapi. Pað er ekki langur tími siðan að mikill hluli allrar þjóðarinnar efaðist um gildi frels- isins fyrir einstaklinginn. Og er þá eigi að undra, þótt fuglabúrsvist kvenna á liðnum öldum hafi takmarkað loft- hæðina í huga þeirra. Pað má svo að orði kveða, að frelsi kvenna hafi eigi náð út fyrir eldhússdyrnar að þess- um tíma. En það er saifnast að segja, að eldhúsin hafa ekki verið svo björt eða loftgóð hingað að, að þau hafi verið mcð öllu hættulaus fyrir líkamann, hvað þá fyrir andann. Enn þá síður má hann við reyk og loftleysi. Hann hlýtur að hafa rúmt um sig til þess að þroskast og dafna. Honum er alt öðruvísi farið en munum þeim, er geymast bezt sem næst hlóðunum eða elda- vélinni, þrátt fyrir það, að hann getur vanist þcirri hangikjötsvist svo, að hann uni henni sæmilega. Hann getur jafnvel orðið eins og fugl í búri, kann bezt við sig í tjóðri vanans. Má eg nú spyrja? Hvenær haldið þið að þið verðið vaxnar því að fá frelsi á borð við karlmennina? Pið teljið skort á mentun því til fyrirstöðu. En hvenær rætist úr þeim skorti, á meðan frelsi ykkar er svo tak- markað, að þið komist ekki inn fyrir þrösk- uldinn á mentastofnunum þeim, er vænta má að hafi bezt tök á að þroska anda ykkar? Eg sé ekki betur en að ófrelsið standi hér i vegi fyrir aðalskilyrðunum. Nei, engar viðbárur! Gerið kröfur til jafn- réttis, hættið ekki fyr en þær eru uppfyltar, þá fáið þið lykilinn að þeim mentunarþroska, sem þjóðin getur veitt bæði með skólum sín- um og opinberum störfum. Engin kona má láta sér nægja eldhúsfrelsið hvorki fyrir sig né dætur sínar framvegis. Pað getur verið, að sumum konum þyki þau réttindi nægja, að eiga ráð á búrlyklinum, en færri munu þær vera og er það gott. Það eru veigalítil réltindi, sem komast fyrir í búr- krókunum, jafnvel hversu mikið sem þar er saman komið af nauðsynjum lífsins, hvað þá þegar þau eru af skornum skamti. Nei — búr- réttindin hafa alt af verið þröng, skammarleg þrælaréttindi. Þær konur, sem neita því, að baráttan fyrir frelsi og réttindum kvenna sé þýðingarmikið starf, þær eru blindar af eldhúsreyk vanans og skilja ekki, hvað frelsið getur haít að þýða í baráttunni íj'rir daglegum þörfum sálar og lík- ama, — því sálin hefir sinar þarfir á sinn hátt eins og líkaminn. En eg skal engar krókaleiðir fara í þessu máli. Hverjar athaínir þjóðfélagsins eru þannig vaxnar, að þær komi að eins við karlmönnun- um? Hver eru þau störf þess, er konum séu óviðkomandi? Tökum til dæmis landbúnaðinn. Snerta af- leiðingar af linignun hans eða framförum ekki nokkurn veginn jafnt karla og konur? Eða samgöngufærin, ætli þau geti talist miklu þýð- ingarminni fyrir konur, jafnvel þó því yrði borið við, að þær noti eigi vegi eða brýr að sama skapi og karlmenn, eða taki sér sjaldnar far með skipum? í fám orðum sagt: Mega at- vinnumálin til sveita og sjávar eigi vera jafn- mikil áhugamál kvenna og karla? Er það ekki sameiginlegur hagur manns og konu, þegar afurðir aukast, vaxa í verði, og útlenda varan fæst með betri kjörum? Hjálpar það ekki til þess að uppfylla þarfirnar sameiginlega? Skifta mentamálin ekki ámóta mikið alt þjóðfélagið, karla og konur? Er kristindómur- inn konum síður viðkomandi? Og er nokkurt vit i því að segja, að að eins annan helming

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.