Kvennablaðið - 31.05.1919, Page 2

Kvennablaðið - 31.05.1919, Page 2
34 KVENNABLAÐIÐ um að velja þær í nefndir til þess, sem sét- þekking kvenna gæti bezt notið sín. Það hefir oft litið út, sem þeim væri ekkert illa við að konurnar létu sem minst á sér bera, og sem minst tillit væri til þeirrá tekið, ef dæma skal eftir því, hvernig þeir undan- tekningarlítið hafa gengið fram hjá þeim við flestar nefndarkosningar. En konurnar eru nú sem stendur aðeins tvær, þeir 14, — svo þeir hafa öll töglin og hagldirnar, — ábyrgðina og heiðurinn af þvi, hvernig bænum er stjórnað. Barnadagurinn. Á öllum Norðurlöndum haía menn nú í mörg ár vanist við að vakna einn góðan veðurdag upp við að alt væri á fiugi og ferð. Bílar og vagnar fara um göturnar með alla- vega skrítilega klæddar ungur stúlkur. Það einkennilega er, að þessir vagnar þjóta ekki áfram, heldur fara hægt og hægt, og ungu stúlknrnar inni í þeim veifa í höndunum sparibyssum og buddum, eins og þær ætlist til að eitthvað sé í þær látið. Og á götun- um morar alt líka af ungum stúlkum, sem eru þar í sömu erindagerðum. Þær hafa allar merki, því þetta er sérstakur dagur, sem þær vinna fyrir. Það er Barnadagurinn eða Barnahjálpardagurinn, eins og Ðanir kalla það. í hverri borg, sem nokkuð kveður að eru þessir Barnadagar nú orðin föst skemtun. Því þá er svo sem meira og fleira gert en betlað. Auðvitað er það gert í stórum stíl og sumir eru sárgramir yfir þvf, að þeir hafi ekki frið inni á heimilum sínum, auk heldur á götunum. En þá eru allar skemtanir fáan- legar að kveldinu, því listamennirnir leggja sinn stóra skerf af vinnu til Barnadagsins. Tilgangurinn til þessarar fjársöfnunar er líka vinsæll. Því fé skal verja til að koma fátækum og munaðarlausum borgarbörnum dálítinn tíma upp í sveit, til þess að þau fái gott loft, mjólk og hvíld írá skólum, og góð- an mat. Svo þau hressist og fái roða í kinnar og kjöt á kroppinn. En sumstaðar hafa menn líka farið aðra leið. Komið upp eða keypt sumarheimili fyrir börnin, og látið svo, einhverja góða konu eða karl stauda fyrir því. Börnin í bæjum eru svo veikluð oft og tíðum, að þeim veitir ekki af að komast í gott sveitaloft. Veldur margt því, en ekki síst hin illu og óhollu húsa- kynni, sem margt af efnaminna fólkinu verð- ur að búa við. » Og fátt er líka vinsælla en „Barnahjálpin “ í stórbæjunum. Skólakennararnir gangast oft fyrir að skrifa í sveitirnar og setja auglýs- ingar í biöðin (sem þau gefa, af því það er í þessu skyni) til sveitafólksins, að biðja það að taka nú 4—6 sumarvikur einhvern fá- tækan skólakrakka, og lofa honum að vera þar og líða vel í sumarleyfinu. En þar. sem þarf svo að gefa með börnunum eru notaðir pen- ingarnir, sem safnast inn Barnahjálpardag- inn, og ýmsir barnavinir leggja af mörkum í þessum skyni. Járnbrautirnar veita þeim ókeypis far til og frá, og bæjarstjórnirnar styrkja þetta líka smstaðar. Oft er glatt á hjalla, þegar sá lang- þráði dagur rennur upp, að börnin fari af stað. Þau fara ætíð öll sömu dagana. Þá verður að fylgja þeim á járnbrautarstöðvarnar, og koma þeim inn í vagnana. Síðan er litið eftir þeim á allri ferðinni. Oft hafa samskotin, sem inn komu þenna eina dag, verið talsvert á 2. hundrað þúsund krónur. Má af þeirri tölu marka hvað vin- sælt fyrirtækið er. Stokkhólmsbúar hafa hér, sem víða annarstaðar, litið á þetta mál með bæði opnu hjarta og höndum. Þeir gera svo mikið fyrir uppeldi og heilsu barnanna, hvar sem bví verður við komið. Þeir hafa íengið Barna- hjálparnefndinni heila eyju þar úti í skerja- garðinum til sumarbústaðai- handa fátækum börnum. Þessi barnaey er sögð vera „hrein- asta paradís, að fegurð og heilnæmi". Þangað er ætlast til, að öll fátæk börn í Stokkhólmi verði send á sumrin með tímanum. En enn þá hefir það þó að eins verið nokkuð á annað þúsund börn, sem komist hafa þangað. Allur kostnaðurinn við það hefir verið greidd- ur af samskotafé eða gjöfum frá einstökum

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.