Kvennablaðið - 31.05.1919, Side 3

Kvennablaðið - 31.05.1919, Side 3
KVENNABLAÐIÐ 35 mönnum. En árlega fjölga litlu aumargest- irnir á Barnaeynni. Það eru alt saman fátœk alþýöuskölabörn. — ForstöÖuna hefir á hendi alþýðuskólakennarinn C. Waisberg. (Frh.) Móðbréf. Alt hefir sinn tíma, segir prédikarinn. Þetta á ekki sízt við um gömlu fötin okkar, þegar vorið kemur með löngu björtu kvöldin, þá langar okkur enn þá einusinni til að fara að dæmi slöngunnar, skifta um ham og verða flunkurnýjar frá hvirfli til ylja. Mér finst lang- líklegast að fíkjublaðið hennar Evu móður okkar, hafi átt að vera til prýðis, mér finst eg sjá í anda, augun í henni full af barna- legri undrun, þegar slangan smeygði sér úr gamla hamnum gljáandi og rennileg. Síðan höfum við aldrei getað við þetta losnað, frem- ur en erfðasyndina. í dimmviðri og rigningatíð lítum við með mikilli velvid á gömlu flikurnar, sparsemin þýtur upp í votviðrinu. Við getum orðið svo langt leiddar, að lenda í djúpum hugleiðingum um hégómaskap kvenfólksins og hærra þroskastig karlmanns- ins, sem sjáist bezt á tildurlausum og hent- ugum fatnaði. En alt er þetta gleymt þegar sumarsólin kemur, þá hættum við alveg að hugsa um þroskastigið, og lítum með öfund og aðdáun á móðblöðin. Hugurinn getur vilst til annara landa, þar sem til eru konur rík- ari en nokkrar trollarafrúr, töfrandi og breyti- legar, meistaraverk af skraddarans náð, sem gætu fleygt árslaununum okkar fyrir einn einfaldan búning. — Rennilegar eigum við að vera í ár, pilsin eru yfirleitt stutt og þröng, sum ekki meira en 90 cm. á vídd. Má þá segja um þær sem þau béra — mátulegt er meyjar stig — mál mun vera að gifta sig. — Mörg pils eru rykt og því nokkuð víð um mjaðmirnar, en sýnast þrengri neðst. Önnur vefjast um kon- una í mjúkum skáfellingum, sem oft eru dregnar saman í annari hliðinni, í mittinu. Skuggamynd af konu í þesskonar pilsi ætti að minna á grískan vasa. Treyjurnar á úti- fötum eru síðari en áður, — margar eru með mjóum beltum, falla mjúkt og liðlega. Silkivesti eru mjög mikið notuð, ýmist áföat eða laus, undir opnum treyjum. Hnappar eru mikíð notaðir, þeir eru altaf svo þægi- legir ef telja á „skal — skal ekki", en hvers vegna enda þeir aldrei á stakri -tölu? Treyjurnar eru oft stungnar, eða með þráð- mjóum „listum". Kiminóermar sjást á mörg- um kápum og treyjum. Ermar á kjólum eru þröngar eða engar. Nýjustu yflrhafnirnar virðast vera kynblendingar af slögum og kápum, víðastar um mjaðmirnar, ermarnar einhvernvegin samvaxnar bakinu, — penninn verður staður þegar eg ætla að reyna að lýsa þessu. — Þá eru allskonar slög mikið notuð. Sumar slá þeim yfir aðra ðxlina eins og einstaka reykvízkar stúlkur báru möttul- inn þegar kalt var — áður en sú leiðinlega kápuöld rann yflr þetta land. Móðlitúrinn? Vorliturinn á göngufötum er sagður brúnt og grátt, þó svart og dökk- leitt haldi sér í móð. Nýju móðlitirnir eru sterkur grænn litur, með bláum blæ og einkennilega riðrautt, sem best á við dökk- hærðar stúlkur. — Efnin eru mjúkt krepsilki og silkiprjónies gróft og fínt, allskonar silki- efni og hýjalín. Ef við lítum í gluggana hjá Fonnesbech, einhverri fínustu týzkubúð Kaupmanna- hafuar — þá gæfi okkur á að líta! Hvað segið þið um hvítan hýjalínskjól, með legg- ingum úr gul-hvítu klæði og með skúfum? Eöa um bleikrauðan kjól úr silkikrepi, prýddan með útsaum úr Ijósbláu ullargarni, sem myndar þverrákir. Dálitlir Ijósbláirskúfar voru niðurmeð hliðarsaumunum, með nokkurra þumlunga railiibili. Þarvarlíka einfaldur kampavínslitur kjóll úr silkikrepi, með sléttum undirkjól úr silki í sama lit. Undirkjóllinn, hálsmál og ermar prýtt með samlitum tréperlum. Þar voru hvítir ullarkjólar úr chevioti, útsaumaðir með grófu svörtu ullargarni. Þar mátti sjá kjóla, sem mintu á hökla. Einn var þar blár að llt með giltum reitum, eins og skákborð. Sá tilvonandi eigandi ætti að geta sungið: „Den Ungersvend han tabte og Jomfruen hun vandt.

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.