Dagskrá

Útgáva

Dagskrá - 13.01.1897, Síða 5

Dagskrá - 13.01.1897, Síða 5
Það er því furðu djarftaf ritstj. »íslands« að staðhæfa það blátt áfram að hjer sje enginn ahugi til með þessu máli, þvert ofan í sannleikann og vitund allra manna. Jafn undarlegt er það að hann skuli ekki vera of hygg- inn til þess að blanda persónulegum skömmum inn í þetta mál. Hann má þó vita að altur fjöldinn af þeim mönnum sem fjallar um endurskoðunina muni meta það harla lítils. — En mestri furðu gegnir þó að hann skuli ímynda sjer að hann geti talið almenningi á Islandi trú um, að allt sje ónýtt og einkisvert sem þjóð og þing hefur gjört í þessu máli, og að »skilnaðurinn« hans sje það einasta góða og heppilega, án þess að hann skýri með einu orði hvað ætti að koma í staðinn fyrir hið núverandi fyrirkomulag, hvort Islendingar væru færir um að taka á móti breytingunni eins og nú stendur, eða hvernig ætti að koma henni til leiðar. Endurskoðunarmálið er ekki persónulegt mál. Það varðar alla Islendinga jafnt og er byggt á sögu lands- ins og rjetti. — Það stendur ekki nje fellur með nein- um einstökum manni, heldur með pólitiskri framsókn allr- ar þjóðarinnar. Endurskoðunin hefur í f'ór með sjer eðlilega breyt- ing á pví ástandi setn vjer nú lifuut undir en aðskiln- aðurinn ekki. Það er því ekki nóg að slá því fram óhugsað og óröksfutt að »aðskilnaðurinn» sje heppilegri í sjálfu sjer heldur er. endurskoðunin. — Til þess að uppástunga um algerðan aðskilnað sje frambærileg, þarf að minnsta kosti að benda á þær aðalbreytingar á grundvallarskip- un landsins sem skilnaðurinn hlyti að leiða afsjer, (sbr. sldpun æðstu stjórnar, landvörn, rekstur íslenskra mála í útlöndum o. s. frv.). Loks er endurskoðunin lógleg og möguleg án pess að gntndvallarskipun ríkisins sje breytt, en aðskilnaður- inn ekki. Það er því furðulegt, að nokkur maður skuli láta sjer detta í hug að vekja »almennan áhuga» og »leið- toga« til þess að fylgja fram því sem engin minusta von er til að geti fengist, og um leið til þess að yfirgefa það mál- efni, sem getur unnist — án þess aðhann beri annað fyrir sig heldur en lausleg ummæli eptir einhverjum framliðnum, dönskum stjórnarandstæðing, fullyrðing um það út í blá- inn að Danir muni vilja selja Island fyrir nokkur þús- und krónur, og tilgátu úr lausu lopti um tilhlutan annara þjóða um þetta mál, þvert ofan í allt sem þjóðarjettur og stjórnvenja siðaðra ríkja gæti leyft. — Ljúkum vjer svo að tala um þetta mál að sinni, því fremur sem vjer þykjumst vita að fleiri muni minn- ast á það en Dagskrá áður en langt um líður. Útreikningur. Það er ef til vill vel »útreiknað« af ritstj. »íslands« að láta sem blaðiö hans sje sta rst og ódýrast allra blaða á Islandi. En það er ekki rjett reiknað. Rlenn hafa átt kost á því áður að sjá jafnstór blöð, t. a. m. »Fjallkonuna« tvöfalda, og virðist það síst betra fyrir kaupendur blaðsins að það sje haft í svo stóru broti, og látið koma út einu sinni á viku, heldur en að það væri haft helmingi minna, og látið koma út tvisvar vikulega. »Dagskrá« og »Fjallkonan« eru svo líkar að stærð að þær mega kallast jafnar; Island kemur út einu sinni í viku, Dagskrá helmingi optar. — Dagskrá og Island eru sem allranœst jafnstór i’löð. Munurinn er helst sá að »Dagskrá« kostar 3 kr. yfir árið, en »Island« 3.i6. En þó hefur ritstj. »íslands« verið að dylgja mikið um það að »Dagskrá« væri mjög lítið blað. Það er ckki álitið »fint« að tala mikið um það hvað dýrseldir keppinautar manns sjeu — jafnvel ekki á almennum varningsmarkaði. I’egar ræða er um bók- menntir eða önnur lík fyrirtæki mnndu þó enn færri verða til þess. — Blöð og bækur eru eins og menn vita mjög misdýr um allan heim, enda er það ekki ein- utigis pappírinn einn sem seldur er. »Dagskrá« hefur aldrei minnst á það hve dýr önnur blöð væru, eða »hvort aðrir ritstjórar sendu blöð sín með pósti eða utanpósts«. Vjer höfum álitið og álítum enn, að slíkt sje ósamboðið nokkru blaði sem vill leita sjer kaupenda meðal siðaðra manna. Enda skulum.vjer ekki leggja frekara til um verðlagning »íslands«. — En vjer vildum þó að eins geta þess úr því ritstj. þess blaðs ekki kynokaði sjer við að fara að meta blöð annara til dýrleika, að »Dagskrá« er jafn efnismikið blað eins og »ísland«, og ekki dýrari. Skipaskálinn. »Dagskrá« hefur fengið góðar undirtektir undir uppá- stungu sína um að reisa skála hjer í bænum til skipa- bygginga, sbr. »Dagskrá» 38. tbl. Vjer höfum átt tal við ýmsa helstu smiði bæjarins um þetta mál, og virðist þeim öllum að það fyrirtæki væri bæði gagnlegt fyrir handverk þeirra, og mundi borga sig vel fyrir bæjarfjelagið. En auðvitað er þess ekki að vænta, að neinn ein- stakur maður fáist til þess að leggja fje til byggingar- innar og ætti þá annaðhvort bærinn eða alþingi að veita peninga, til þessa móti afborgun á hæfilega löngum tíma. Ef einhver smiður sem vel þekkir til þessa, gcrði áætlun um kostnaðinn við bygginguna, mundi það að

x

Dagskrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.