Dagskrá - 24.08.1897, Qupperneq 1
Ycrð órgAngs .yrír clrlri kanp
cndur innnnla'ids.
4 krónur.
Kemur ut hvern virkan dap.
Ver?) ársfjórðungs (minnst
75 arkir) kr. 1,50. í
R.vik mánaðarl. kr. 0,50.
— Arsfjórð. crlcndis 2,50.
11,46-47.
Reykjavík, þriðjudaginn 24. ágúst.
897.
Afdrif Valtýs-flugunnar.
Á laugardaginn var loksins gert algjörlega út af við
»fluguna« — sem cins og kunnugt er hefur verið að
smáskríða sama'n allan þingtímann út, þó hún hafi
vcrið drepin jafnharðan.
Meiri hiutinn í neðri deild sýndi það greinilega við
atkvæðagreiðsluna á laugardaginn að honum var vel ljóst
hvað gjöra þurfti til þess að koma flugunni fyrir kattar-
nef — enda munu nú flestir játa, að ekkert hafi verið
betur valið til þess að hindra minni hlutann í þeirri
deild frá því að koma sínu fram heldur en frumvarp það
sem sett var upp á móti — líkt Valtýsfrv. í smátriðun-
um, en gagnstætt því í aðalatriðinu.
Það er meiri hluta neðri deildar að þakka að stjórnar-
máli Islendinga er bjargað á þessu þingi. Enginn getur
með rjettu byggt neina bindandi viðurkenning á umsögn
efri deildar einnar um þett.a mál, sem ríður í bága við
aðgerðir hinnar eiginlegu bjóðfuiitrúasamkomu — og
svo mikið verður í öllu falli alyktað af laugardagsfund-
inum í neðri deild að alþingi í heild sinni vill ekki þiggja
neina stjóniarbót, er gj'órir ráð fyrir að sjermálunum
sje haldið fóstuin í ríkisráðinu.
Að öðru ieyti kom það mönnum naumast á óvart
hvernig málinu láuk í neðri deild. Menn hafa nú um
nokkurn tíma getað sjeð þaö nokkurn veginn fyrirfram
að fyigismenn endurskoðunarmálsins í þinginu höfðu alla
yfirburði yfir Valtýs-sinnum ekki ei lungis að tölunni,
heldur einnig að hyggindum og samheldi, því það mun
þegar fyrir nokkru hafa verið farið að brydda á ósam-
lyndi milli hinna ýmsu smáráðgjafa í »stjórnarráði« herra
Þórhalls Bjarnarsonar um það hvernig ætti að halda spil-
inu áfram.
Mátti vel marka það á því að hyggindabragð eitt
er Guðlaugur Guðmundsson var frömuður að, strandaði
á torgreind Valtýs og vafalaust einnig á samkomulags-
leysi með hinum öðrum forsprökkum í innlimunarpolitik
minni hlutans.
Svo var sem sje mál með vexti að Guðlaugur þótt-
ist sjá það fyrir að fiugan mundi vera í hættu stödd við
3. umræðu í neðri deild og gjörðist hann því fylgjandi
breytingartillögu nokkurri við 1. gr. (meginákvæöi meiri
hlutans) þar sem gjört var ráð fyrir að ríkisráðið skyldi
fjalla um ahnenn eöa sameiginleg m d íslands og Dan-
merkur — en slíkt ákvæði hefði að vísu riðið í bága
við rjettarkröfur Islendinga um »óskert landsrjettindi frá
elstu tímum« — en ekki verið því til fyrirstöðu að
sjenuálin væru skilin frá ríkisráðinu.
Þennan millumveg ætlaði Guðl. að fá ýms atkvæði
úr báðum fiokkum til að safnast um, og var það að
vísu ekki óviturlega ráðið frá hans sjónarmiði, sem eins
og kunnugt er orðið, leggur enga áher.shi á lagalegan
rjett Islands, og stendur á sama, þó honum sje fleygt
fyrir borð, aðeins ef einhverjar aðrar breytingar komist
á, sem hann og hans líkar imynda sjer að hafi svokall-
aða »praktiska« þýðingu, og sem svoeiga að leiða íslend-
inga smátt og smátt áfram til hins fyrirheitna lands.
Þetta fyrirheitna land, er nú reyndar ekkert annað, en al-
ger pólitisk innlimun landsins í Danmörk og tap allra eigin-
legra sjerrjettinda íslands í ríkinu — cn það heldur
Guðlaugur að saki ekki neitt, og því mun hann hafa
gjört það í góðu skyni að verða formælandi hinnar áð-
urnefndu breytingartillögu. —
Fyrir Valtýsflokkinn var þetta hið mesta snjallræði;
því lagamennirnir í þeim flokki hefðu, ef frv. hefði kom-
ist í gegnum þingið með þeirri breyting, getað sagt,
að þetta væri »sama* frv. sem Valtýr hafði fyrst kom-
ið með, og flaggað því fratn, að allt þingið væri nú á
sama máli orðið um »fluguna«. — Þetta hefðu þeir get-
að alvegjafnvel eins og þeir hafa getað fengið það af sjer,
að standa framan í almenningi með fuliyrðingar um, að
ábyrgðarmál gegn ráðgjafanum, fyrir ríkisráðsgjörðir
hans, mundu verða dæmdar í hæstarjetti, að Samvinna
þingsins við ábyrgðarlausan ráðgjafa, værijafnheillavænlcg
eins og samvinna þess við ráðaneyti, sem stendur undir
gildum abyrgðarlögum, og að það væri cnginn rjctlnr-
missir í því fólgin, að þiggja tilboð scm skilyrði um
fráfall rjettarkröfu var látið fyigja o. s. frv. og hefövt
þeir á þennan hátt helst getað haft von um að geta
stráð sandi í augu kjósenda við hinar nýju kosningar.
En sumir meistararnir í Valtýs-liðinu gátu ekki grip-
ið þelta — og því varð þetta bragð Guðlaugs að engu
— enda er naumlega hrugt að búast við að s;i flokkur
komi miklu til leiðar, sein snýst ulan um vanhx g i: d 1-
brail Valtýs Guðmundssonar, þrátt fyrir það þó jafn