Dagskrá

Útgáva

Dagskrá - 24.08.1897, Síða 3

Dagskrá - 24.08.1897, Síða 3
sem frá því fyrsta hafa verið blindir fyrir því hvernig löggjöf islendinga átti að sntía sjer í botnvörpumálinu. Það er ekki ólíklegt að íslenskar trawlútgerðir kornist á innan skamnis og pd mun mönnum fara að lærast hvað Islend- ingar gcta grætt á því að veita hinum inniendu trawlskipum sjerrjettindi innan landhelgi fyrst um sinn þar sem bátafiski er nú ekki notað af landsmönnum. Allar hrókaræður manna um »leppa« sem muni fá atvinnu við þetta falla um sjálfa sig fyrir þeirri mótbáru: að trygg- ingardkvœði hvers innihalds sem alþing vill, má setja inn í lögin, til þess að hindra málamyndarsamninga útlendinga, og þeirra innlendra manna er kynnu að vilja ganga í slíkan fjelagskap. Hvað snertir grein þá sem nú var sett inn í lögin, væri þýðingarlaust að setja þar tryggingarákvæði, því þcssi væntanlegu íslensku trawlskip geta einmitt síður gjört landsmönnum ógagn heldur en hin útlendu fyrir þá sök að þau standa undir inn- lendri valdstjórn, en verða að hlýða öllum sömu lögum sen> hin útlendu. Það eina sem ]>ví getur vakið grcmju andmælendanna er það að þeir sjá einstöku innlenda menn græða á trawlveiðum, í stað þess að áður hafa menn getað huggað sig við það að allur arðurinn af þessum vciðiskap hefur streymt í vasa útlendra tnanna. Pað er íslenska »jafnaðarmennskan« að enginn eigi neitt; f>d eru allir jafnir. — Og pað er sú ríkja?idi grundvallarskoð- un í fjármála-politík vorra háttvirtu samgönguskarfa, sumra hverra, að einn grannin verði fátækari, við það að ann&r verði ríkari! — Hversu óútgrundanleg eru vísdómsráð vorra djúpsæu þjóðmálagarpa, eins og annars. Hlægilegur forsetaúrskurður. Þórhallur Bjarnarson úrskurðaði í gær við atkvæða- greiðsluna um botnvörpulagaákvæði Jóns Jakobssonar í neðri deild að fiskifræðingur og stjórnmálaspekingur Halldór Daníelsson af Mýrunum mætti greiða atkvæði sitt „um aptur“ eptir beiðni löggjafans sjálfs og ef til vill eptir nokkurri vinsamlegri bending frá þeim er sátu andspænis áðurnefndum Sóloni í deildinni, en þeim varð sumum mikið kappsmál að friða sjóinn fyrir landsmönn- um, hvað sem öðrum iiði. Það væri ekki svo illa til fallið ef herra Þórhallur gæti leitt þá venju inn að menn mættu „reyna aptur" — einnig eptir nafnakaii, og breyta atkvæðum sínum eptir því sem menn sæu að verkast vildi, auðvitað þó því að eins að hin síðari atkvæðagreiðsla væri persónu- legri meining forseta í vil. Hr. Þórhallur hefur jafnan virst hafa mikla tilhneyg- ing til þess að „reyna aptur" — ekki einasta við munn- ega atkvæðagreiðslu lieldur munu kunnugir menn halda að honum muni ekki hafa verið á móti skapi þótt „reynt væri aptur“ að koma Valtýsflugunni inn eptir að hún hafði vcrið tekin aptur og tví fellcl í þinginu. Atkvæðagreiðsla. Forseti: »Fyrst ekki fleiri taka til máls, bcr jeg málið upp til atkvæða. Þeir sem sumþykkja gjöri svo vel að standa upp«. Skrifararnir telja: upp standa 5. Fors.: »Þeir sem eru á móti!« Skrifararnir telja; upp standa 5. Fors.: »Það verður að reyna aptur og bið jeg þá sem samþykkja, að giöra svo vel að standa upp!« Skrifararnir telja; upp standa 8. Fors.: »Þeir sem eru á móti!« Skrifararnir telja; upp standa 8. Fors.: »Þetta gengur ekki og verður því að við- j hafa nafnakail«. Það er gjört og er þá rnálið fellt með 14 atkv. j gegn 9. Atkva;ðagreiðslur líkar þessari eru algengar hjer á þinginu. Það er rjett eins og þingmenn hafi enga sann- j færingu fyrir málum þeim, sem um er að ræða, þótt þau j sjeu mikils varðandi fyrir alla þjóðina og þótt búið sje | að ræða þau fram og aptur og mönnum ætti að vera j þau Ijós. Það er hlægilegt að menn sem kosnir eru J sem fulltrúar þjóðarinnar, skuli ekki hafa rænu eða dáð j í sjer til þess að greiða atkvæði annaðhvort með eða móti, heldur vera þess valdir að tíma þingsins sje eytt í annað eins hringl og átti sjer stað í gær; hann er þó j ekki svo langur að þingmenn þess vegna þurfi að kepp- ast við að hugsa upp einhvern barnaskap til þess að eyða honum og vinna þannig þjóðinni skaða og gjöra sjálfa sig blægilega í augum allra áhorfenda; auk þess er það næsta ótrúlegt að nokkur maður sje svo áhuga- laus og andlega sofandi að honum standi alveg á sama um nokkurt mál, er miklu varðar frá almennu sjónar- miði. Það lítur annars helst út fyrir að nauðsynlegt sje að semja lög er ákveði að þingmenn sjeu ávallt skyldir að greiða atkvæði í öllum málum, enda virðist ekki of- mikið heimtað þótt það væri gjört, jafnvel þótt ræða væri um fjárveitingu til einhvers er horfði framan í þing- menn meðan atkvæðagreiðslan færi fram, og stofna svo eitt embættið enn viö þingið til þess að ýta við þing- mönnum þegar þcir ciga að standa upp. ö'. 7. J. Dáin cr í gær hjcr í bæmim frú Herdls Bencdictscn. (ekkja Benedictsens kaupmanns, f. í Stykkishólmi) rúmlega sjötug að aldri. í dag ljest kaupmaður Gunnlaugur Briem í Hafnarfirði.

x

Dagskrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.