Lögberg-Heimskringla - 20.08.1959, Síða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 20. ÁGÚST, 1959
3
útgáfu tveggja blaða hafa
verið slíkir, að mörgum beztu
mönnum í hópi Vestur-íslend-
inga hefir oft komið til hugar,
að heppilegra væri og heilla-
vænlegra að sameina bæði
blöðin, enda yrði þá efnisval
auðveldara og gæti orðið fjöl-
breyttara og kaupendahópur-
inn stærri.
Á ársþingi Þjóðræknisfé-
lagsins í lok febrúar 1955, var
svohljóðandi tillaga sam-
þykkt:
„Þar sem að bréf hafa kom-
ið fram frá útgáfufélögum
beggja blaðanna, Heims-
kringlu og Lögbergs, sem taka
það fram hve erfitt sé orðið
um áframhaldandi útgáfu
blaðanna, og fara fram á það,
að Þjóðræknisfélagið gangist
fyrir annaðhvort sameiningu
blaðanna eða stofnun nýs
blaðs með þeim skilningi, að
ef nýtt blað verði stofnað, að
þá hætti núverandi vikublöð-
in að koma út, — leggur
nefndin til, að málinu sé vísað
til væntanlegrar stjórnar-
nefndar til alvarlegrar at-
hugunar og fyrirgreiðslu, sem
nauðsynleg reynist, eftir sam-
ræður við hlutaðeigandi út-
gáfufyrirtæki.“
„Stjórnarnefnd Þjóðræknis-
félagsins tók málið síðan til
athugunar, og komu útgefend-
ur blaðanna á fund stjórnar-
nefndarinnar. Á fundi stjórn-
arinnar í aprílmánuði, 1955,
var samþykkt eftirfarandi:
1) Þjóðræknisfélagið taki
að sér frekari rannsókn um
möguleikana á stofnun nýs
blaðs, ef Lögberg og Heims-
kringla hætta að koma út.
2) Að Þjóðræknisfélgaið
leiti til Thor Thors, sendi-
herra, Valdimar Björnson,
ritstjóra og Dr. Richard Beck
um, hvort þeir vilji starfa í
ráðgefandi nefnd varðandi
málaleitun útgáfufélaganna."
Við þrír, sem tilgreindir
vorum féllumst allir fúslega á
það að eiga sæti í slíkri nefnd,
og komum við saman til
fundar í Winnipeg dagana 24.
og 25. júlí 1955. Við urðum
sammála um sameiginlegt
nefndarálit, og var það síðan
samþykkt á sameiginlegum
fundi stjórnar Þjóðræknisfé-
lagsins og útgefenda blaðanna
HEIMSKRINGLU og- LÖG-
BERGS, með öllum atkvæð-
um alveg samhljóða. Nefndar-
álit okkar þriggja var svo-
hljóðandi:
„Við undirritaðir vorum
skipaðir í ráðgefandi nefnd til
að athuga útgáfu íslenzku
blaðanna, Lögbergs og Heims-
kringlu og fjárhagslegan
rekstur þeirra, og gera tillög-
ur um framtíðar fyrirkomulag
blaðaútgáfu íslendinga vestan
hafs. Nefndarmennirnir höfðu
samband sín á milli bréflega
og öfluðu sér skriflegra upp-
lýsinga frá stjórn Þjóðræknis-
félagsins og útgefendum
beggja blaðanna. Nefndin
kom síðan saman til fundar í
Winnipeg sunnudaginn, 24.
júlí, 1955. Næsta dag átti
nefndin stöðuga fundi með út-
gefendum blaðanna, ritstjór-
um þeirra, og stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins. — Enn-
fremur kynntu nefndarmenn
sér ítarlega sundurliðaða
rekstursreikninga beggja blað
anna.
Af öllum þessum viðræðum
og skýrslum hefir nefndinni
orðið það ljóst, að bæði blöðin
hafa mörg undanfarin ár verið
rekin með verulegum fjár-
hagshalla. Augljóst er, að
rekstri blaðanna hefir verið
haldið uppi með miklum fjár-
framlögum örfárra manna.
Einsýnt er, að það er ótryggt,
hversu lengi slíkra framlaga
og fórna kann að njóta við.
Reynslan hefir sýnt, að
þegar forvígismennirnir í
þjóðræknismálunum falla frá,
eru skörðin vandfyllt, og vafa-
samt er að treysta eingöngu
áhuga og framlögum þeirra,
er við eiga að taka. Nefndin
er þerirar skoðunar, að það
sé lífsnauðsyn sambandi og
samvinnu íslendinga vestan
hafs og þjóðræknisstarfi
þeirra, að útgáfa íslenzks
blaðs geti haldið áfram. Það
er og nauðsynlegt til vernd-
unar og eflingar sambandsins
milli íslendinga beggja megin
hafsins.
Til þess að tryggja áfram-
haldandi blaðaútgáfu Vestur-
Islendinga, telur nefndin eftir
farandi aðgjörðir líklegastar:
(1) Blöðin Lögberg og
Heimskringla skuli sameinuð
og framvegis koma út sem
eitt vik’ublað, sem beri nafn
beggja blaðanna. Undir heiti
blaðsins skal skráð: Gefið út
að tilhlutun Þjóðræknisfélags
íslendinga í Vesturheimi.
(2) Útgefendur blaðanna
Heimskringlu og Lögbergs
skulu hver um sig skipa þrjá
menn í útgáfunefnd hins nýja
blaðs. Nefnd þessi ber ábyrgð
á stefnu blaðsins, útgáfu þess
og rekstri. Nefndin kýs sér
sjálf formann. Blaðið skal
óháð í stjórnmálum og trú-
málum.
(3) Útgefendur Heims-
kringlu og Lögbergs skulu af-
henda stjórn hins nýja blaðs
lista yfir áskrifendur sína.
Þeir skulu kappkosta að styðja
hið nýja blað af fremsta
megni og hvetja kaupendur
beggja blaðanna til að gergst
áskrifendur að hinu nýja
blaði og styrkja það.
(4) Núverandi ritstjórar
Lögbergs og Heimskringlu,
þeir Einar Páll Jónsson og
Stefán Einarsson, skulu ráðn-
ir til að vera sameiginlega rit-
stjórar hins nýja blaðs. Launa-
kjör þeirra skulu eigi rýrð frá
því sem nú er. Frú Ingibjörg
Jónsson skal beðin að annast
áfram kvennadálk blaðsins.
(5) Hið nýja blað skal hefja
útgáfu sína svo fljótt sem
stjórnarmenn þess telja æski-
legt og framkvæmanlegt, þó
ekki seinna en 1. janúar,
1956.“
Þrátt fyrir það, að allir virt-
ust sammála um þessa með-
ferð málsins urðu þó hindran-
ir á veginum, og það er fyrst
nú, að úr framkvæmd verður,
og blöðin verða sameinuð frá
1. águst næstkomandi. Þessi
sameining á sér því langan að-
draganda, og sannarlega verð-
ur ekki unnt að segja að rasað
hafi verið um ráð fram við
þessa ákvörðun. Það má víst
telja, að öll skynsamleg rök
hníga að þessari sameiningu.
Blöðin hafa nú orðið sameig-
inlegt markmið og deilur
þeirra tilheyra sögunni og
skulu gleymdar. Markmið
beggja blaðanna er hið sama
nú á þessum tímum, að vera
tengiliður milli alls fólks af
íslenzku bergi hér vestan hafs
og jafnframt að viðhalda sam-
bandinu heima á gamla Fróni.
Það má því ljóst vera, að þeg-
ar nú blöðin sameinast á
þessu stigi, að þeim þá tvö-
faldist styrkur og að átökin
til sameiginlegra fram-
kvæmda og framtaks verði
margföld. Þessi aukni styrkur
á að tryggja það svo lengi sem
unnt er, að tungan fái lifað í
tímans straumi, einnig hér
Frh, bls. 7
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Contractor & Builder
•
Otfice and Warehouse:
1410 ERIN ST.
Ph. SP 2-6860 Res. Ph. SP 2-1272
Off. SP 4-5257 Res. SP 4-6753
Opposite Maternity Hospital
Nell's Flower Shop
700 Notre Dame
Wedding Bouquets - Cut Flowers
Funcral Designs - Corsages
Bedding Plants
S. L. Stefonsson — JU. 6-7229
Mrs. Albert J. Johnson
ICELANDIC SPOKEN
MANITOBA AUTO
SPRING WORKS
CAR ond TRUCK SPRINGS
MANUFACTURED ond REPAIRED
Shock Absorbers and Coil Springs
175 FORT STREET Winnipeg
PHONE 93-7487
GUARANTEED WATCH & CLOCK
REPAIRS
SARGENT JEWELLERS
H. NEUFELD, Prop.
Watches, Diamonds, Rings, Clocks,
Silverware, China
884 Sargent Ave. Ph. SU 3-3170
SKYR
LAKELAND DAIRIES LTD.
SELKIRK, MAN.
PHONE 3681
At Winnipeg
IGA FOOD MARKET
591 Sargent Avenue
GRAHAM BAIN & CO.
PUBLIC ACCOUNTANTS and
AUDITORS
874 ELLICE AVE.
Bus. SP 4-4558 Res. VE 2-1080
H E R E N O W !
Toast Master
MIGHTY FINE BREAD!
At Your Grocers
J. S. FORREST, J. WALTON,
Manager Sales Mgr.
Phone SUnset 3-7144
Rusiness and Professional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forsetl: DR. RICHARD BECK
801 Llncoln Drlve, Grand Forks, North Dakota.
Styrklð íélaglð mcð þvi að gerast meðilmlr.
Ársgjald $2.00 — Tfmarlt félagslna frítt.
Sendlst tll fjármálarltara:
MR. GUÐMANN LEVY,
18B Llndsay Street, Wlnnlpeg 9, Manltoba.
Minnist BETEL í erfðaskróm yðar SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinlr. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldl- viö, heldur hita frá aö rjðka út meíS reyknum.—Skrifið, simið tll KELLT SVEINSSON 625 WaU St. Winnlpeg Just North of Portage Ave. SPruce 4-1634 — SPruce 4-1634
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Dlstributors of FRESH AND FROZEN FISH 16 Martha St. WHitehaU 2-0021 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NÖTAEY & CORPÖRATE SEALS CELLtTLÖID BXJTTONS 324 Smilh St. Winnipeg Wnitehall 2-4624
PARKER. TALLIN. KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN OARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker, CUve K. Tallin, Q.C„ A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. WHitehaU 2-3561 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um flt- farir. Allur útbúnaöur sá beztt Stofnaö 1894 SPrucs 4-7474
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Dlrector Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Rpi.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 P. T. Guttormsson ÐARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC 474 Graln Exchange Bldg. 167 Lombord Street Office WHitehaU 2-482» Resldenoe 43-3864
SPruce 4-7855 ESTIMATES free J. M. Ingimundson Reroof Aphalt Shlngles. Roof repairs, install vents, aluminum windows, doors. J. Ingimundson. SPruce 4-7865 632 Simcoe St. Winnipeg 3, Man.
FRÁ VINI
Thorvaldson, Eggertson, Bastin & Stringer Barristers and Solicitort 209 BANK OF NOVA SCOTXA Bld*. Portage and Garry St. WHitehaU 2-8291
ERLINGUR K. EGGERTSON, B.A., L.L.B. BARRISTER *m> SOLICITOR DE GRAVES & EGGERTSON 500 Power BuUdlng Wlnnlpeg 1, Manltoba WHitzuall 2-3149 Res. GLobi 2-6076
S. A. Thorarinson Barrlster and SolUHtor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office WHitehall 2-7051 Res.: 40-6488
Rovaízos Floral Shop 253 Notre Dame Ph. WH 3-2934 FRESH CUT FLOWERS DAILY PLANTS IN SEASON WE SPECIALIZE IN— Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs. — Icelandic Spoken —
Dunwoody Saul Smith & Company Chartered Accountants Winnipeg, Toronlo, Vancouver, Fl. William, Kenora, Fl. Fran- ces, Dryden, Alikokan, Oak- ville, Cornwall, Welland.
M. Einarsson Motors Lld. Buying and Selling New ond Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osborne St. Phone 4-4395
The Business Clinic Anna Larusson Ofíice at 207 Atlantic Ave. Phone JU 2-3548 Bookkeeping — Income Tai Insurance
ROSE THEATRE SARGENT at ARLINGTON CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAYS Foto-Nite Every Tuesday and Wednesday SPECIAL CHILDREN'S MATINEE Every Saturday —AIR CONDITIONED—
Dr. ROBERT BLACK Sérfrœöingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum. 401 MI.DICAL Altl’fi BLDG. Graham and Kenneðy SL Office WHitehall 2-3851 Reg.: 40-8794