Lögberg-Heimskringla - 20.08.1959, Page 4

Lögberg-Heimskringla - 20.08.1959, Page 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 20. ÁGÚST, 1959 Lögberg-Heimskringla Published every Thursday by NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. Printed by WALLINGFORD PRESS LTD. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man. Editor: INGIBJÖRG JÓNSSON EDITORIAL BOARD Winnipeg: Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Próf. Haraldur Bessason, vice-chairman, Mrs. Ingibjörg Jónsson, sec’y, Mr. Stefán Einarsson, Dr.. Valdimar J. Eylands, Miss Caroline Gunnarsson, Prof. Thorvaldur Johnson, Mr. Jón K. Laxdal, Prof. Tryggvi J. Oleson, Rev. Philip M. Pétursson. Grand Forks: Dr. Richard Beck Minneapolis: Mr. Valdimar Björnson Montreal: Prof. Áskell Löve Subscriplion $G.OO per year—payable in advance. TELEPHONE WH. 3-9931 Authorized as Second Class Mail, Post QfTice Department, Ottawa. Nokkrar útskýingar 1 ritgerðum og kveðjum, sem birtast í þessu blaði, og sem sem bíða næsta blaðs, er svo margt vel og fagurlega sagt um þessi tímamót í vestur-íslenzkri blaðamensku, að það væri að bera í bakkafullan lækinn að ræða um það hér. Hins- vegar er vert að skýra hér að nokkru ýmislegt varðandi útlit, innihald og rekstur blaðsins. Fyrst er nafnið, Lögberg-Heimskringla. Það er langt, það er erfitt í framburði fyrir annara þjóða fólk, en annað nafn kom aldrei til mála á fundum nefndanna, sem um sameiningu blaðanna fjölluðu. Nöfn gömlu íslenzku blaðanna eru sögu- rík og þau eru öllum Islendingum kær. Þegar rætt var um samtengingu nafnanna var ákveðið að Lögbergs nafnið kæmi á undan Heimskringlu nafninu því þannig hljómuðu hin samtengdu nöfn betur í eyrum en á hinn veginn, en ártölin, sem gefa til kynna aldur blaðanna, skyldu prentuð fyrir neðan nöfnin. íslendingar eru þannig gerðir, að þeir vilja ógjarnan rjúfa tengslin við fortíðina. Þetta kom í ljós í vali nafnsins Lög- berg-Heimskringla; ennfremur vildi útgáfunefndin sýna á annan hátt að þetta blað er beint áframhald gömlu blaðanna. Stofnendur Lögbergs töldu blaðið áframhald Framfara og Leifs, en gáfu það þó ekki til kynna með tölu árgangsins fyrir neðan nafn blaðsins. Útgáfunefnd Lögbergs-Heimskringlu ákvað að sýna greinilega, að blaðið væri áframhald gömlu blaðanna með því að merkja það tölum eldra blaðsins Heims- kringlu. Þetta blað telst því til 73. árgangs og er númer 43. ☆ ☆ ☆ Askrifendalistar blaðanna hafa verið sameinaðir. Það var vandasamt og seinlegt verk, ekki sízt vegna þess, að sam- tímis var ákveðið að taka upp fljótvirkari aðferð við undir- búning blaðsins í póstinn. 1 stað nafnmiðanna eru nú nöfn áskrifenda prentuð á blöðin (addressographed). Tími hefir ekki gefist til að próflesa nafnaplöturnar, en við væntum þess, að ekki hafi eitt einasta áskrifendanafn hvorugra blað- anna fallið úr. Sumir munu e.t.v. fá tvö blöð — til dæmis, ef hjón keyptu bæði blöðin sitt undir hvoru nafni; þætti okkur vænt um að fá tilkynningu um það og eins, hafi ein- hver fallið af listanum í ógáti. Við þökkum kaupendum Heimskringlu og Lögbergs fyrir löng, góð viðskifti og væntum þess að Lögberg-Heimskringla fái að njóta viðskipta þeirra á ókomnum árum. ☆ ☆ ☆ Gjalddögum blaðsins — mánuði og ári — sem prentaðir eru við nöfn áskrifenda hefir ekki berið breytt í samræmi við hið nýja verð blaðsins — $6 á ári — nema þeirra sem þegar hafa greitt það ársgjald. Skrifstofustörfin við blaðið eru all- mikil en þau myndu minnka allverulega ef áskrifendur sjálfir myndu reikna út hvað þeim ber að borga til blaðsins og senda það sem fyrst. Ennfremur biðjum við þá, sem voru í skuld við Lögberg og Heimskringlu að greiða þessar smá- skuldir við allra fyrsta tækifæri. Blaðinu er lífsnauðsyn að innkalla skuldir sínar og að fá greiðslur ársgjalda fyrirfram, því útgjöld blaðsins eru mikil. Við treystum á drengskap áskrifenda. Við treystum því líka að margir vinir blaðsins sendi e.t.v. eitthvað umfram það sem þeim ber að greiða fyrfr blaðið. ☆ ☆ ☆ Islenzku blöðin hafa jafnan átt frábærilega trygga og góða stuðningsmenn þar sem eru innköllunarmenn þeirra 1 borgum of byggðum íslendinga. Um leið og við þökkum þessum ágætu mönnum og konum ómetanleg störf þeirra í þágu blaðanna, leyfum við okkur að fara fram á samskonar stuðning af þeirra hálfu við Lögberg-Heimskringlu. Þar sem eru fleiri en einn innköllunarmaður, væntum við að þeir sameini krafta sína í starfinu fyrir blaðið. Við biðjum alla innköllunarmenn blaðsins að afsaka að ekki vanst tími til að skrifa þeim bréf, en við treystum því að þeir muni nú sem Heilloóskir af hólfu Með sameiningu vestur-ís- lenzku vikublaðanna, Heims- Kringlu og Lögbergs, er stig- ið sögulegt og merkilegt spor í menningar- og félagslífi vor íslendinga vestan hafs. Sá at- burður á sér langan aðdrag- anda og mun óhætt mega full- yrða, að þeim hefir stöðugt farið fjölgandi í vorum hópi, sem ljós hefir orðið nauðsyn sameiningar vikublaða vorra.. Fólk vort mun þá einnig yfir- leitt fagna því, að hún er nú orðin að veruleika, og ætti, ef rétt er á málunum haldið af allra hálfu, at tryggja íslenzku vikublaði tilverurétt um mörg ókomin ár vestur hér. Við þessi þáttaskil í sögu blaða vorra, vil ég af hálfu Þjóðræknisfélagsins flytja öllum þeim, sem átt hafa hlut að útgáfu or ritstjórn þeirra í meir en 70 ár, hjartanlegar þakkir fyrir það mikla þjóð- ræknis- og menningarstarf, sem með þeim hætti hefir unnið verið. Ég þakka Stefáni Einars- syni mikið og farsælt starf hans að ritstjórn Heims- kringlu áratugum saman. Með sama þakkarhuga minnist ég ágætis og áhrifaríks ritstjórn- arstarfs Einar Páls Jónssonar við Lögberg í full 40 ár. Enn- fremur þakka ég frú Ingi- björgu Jónsson prýðilegt starf hennar við Lögberg árum saman, og þá serstaklega verk hennar sem aðstoðarritstjóri blaðsins í veikindum manns hennar og sem aðalritstjóri síðan hann féll frá. Jafnframt votta ég öllum heiður og þökk, sem með dugnaði og prýði skipuðu ritstjórnarsess vikublaða vora í liðinni tíð. í nafni Þjóðræknisfélagsins flyt ég hinu nýja vikublaði voru innilegar heillaóskir. Og ég vil eindregið hvetja félags- f ó 1 k Þjóðræknisfélagsins hvarvetna til þess að gerast áskrifendur að hinu nýja blaði voru og styðja útgáfu þess með öðrum hætti. Eins og margsagt hefir verið, er slíkt blað ekkert minna held- ur en líflaug allrar vorrar félagslegu viðleitni hér í álfu. Það veit ég, að okkur er al- mennt ljóst, og þá ættum við einnig að vera reiðubúin til þess að leggja vorn skerf til þess, að íslenzkt blað hérlend- is geti staðið á sem traust- ustum fjárhagslegum grund- velli, er um leið gerir fært að vanda sem bezt til blaðsins og tryggja því langlíífi. Þjóðæknisfélagsins Minnug meir en 70 ára sögu Lögbergs og Heimskringlu, sæmir okkur það eitt að standa saman einum og heil- um huga um arftaka þeirra, sem um leið er beint framhald þeirra. Það er bæði ágæt þjóðrækni og menningarleg framsýni í verki. RICHARD BECK, Forseti Þjóðræknsfélags íslendinga í Vesturheimi. Heillaóskir í nafni Western Canada Uni- tarian Conference, hins fyr- verandi Sameinaða Kirkjufél- ags Islendinga í Vesturheimi, vil ég nota tækifærið til að óska blöðunum, sem nú eru að sameinast, Heimskringlu og Lögbergi, allra heilla. Ég vona að þetta nýja fyrir- tæki verði, báðum blöðunum til hamingju og Islendingum til blessunar um langa fram- tíð. Einnig vil ég nota tæki- færið til að hvetja alla íslend- inga, sem áhuga hafa fyrir ís- lenzkum málum að styðja blaðið Lögberg-Heimskringlu af öllum mætti,. — Philip M. Pétursson, Regional Director, Western Canada Unitarfan Conference. Það minsta sem við getum gert Nú blandast söknuður of til- hlökkun. Margir munu sakna Heimskringlu og Lögbergs, eins og blöðin voru, hvert fyrir sig. En allir hlakka til þess að sjá nýja blaðið. Allir óska ritstjórn og útgefendum brautargengis við þau þátta- skipti er nú fara í hönd. Kunnugur blaðamennsku siálfur, tel ég eitt víst — ekki verða allir ánægðir. Sumir— eins og ég — vona að fram- haldssögurnar verði lagðar niður. Blað af takmarkaðri stærð má ekki eiða prent- svertu á annað eins. Þeir sem endilega vilja lesa skáldsögur geta flett upp í Jóni Trausta á ný. Blaðið á að flytja þýðing- armeira lestrarefni. Lesendur eru samt ekki sammála um hvað sé ‘þýðing- armeira,’ og verða það aldrei. Sumum finnst of mikil áherz- la lögð á endursagðar fréttir frá íslandi. Dómgreind verður sjálfsagt að ráða vali á slíku efni, og hér munu saman- þjöppuð yfirlit vera betri en langar greinar. Fólk vill fá fréttir úr ís- lendinga-byggðum — og helzt á þann hátt að fréttapistlarnir skapi ekki þolraun handa les- endum. Lesmál á ensku um íslenzk efni finnst manni ó- hjákvæmilegt að taka með í framtíðinni, ef hugsað er um að auka útbreiðslu blaðsins meðal yngri lesenda. Þar sem Lögberg og Heimskringla hafa bæði, á fyrri árum, flutt í fyrsta skipti margt það bezta sem hefur verið ort á íslenzku vestan hafs, þá ætti sannar- lega að beita gagnrýni í vali á ljóðum til birtingar. Svona mætti lengi halda áfram. “Hægara er að breyta en bæta.” En, sem einn þeirra er sátu nefndarfundi fyrir fjórum árum um sameiningu Lögbergs og Heimskringlu, finnst mér það vafalaust að virkilegt framfaraspor hafi nú verið stigið. Svo verður, ef hönd fylgir máli. Það min- sta sem við getum gert til þess að framfylgja faguryrðum okkar um þjóðræknina er að efla útbreiðslu og styrkja út- gáfu eina íslenzka blaðsins sem við eigum í Vesturheimi! — Valdimar Björnson. GREETINGS A long and fruitful future to Logberg-Heimskringla. Af- ter more than seventy years of lively Icelandic journalism on the North American con- tinent, the two distinguished weeklies have now joined forces in the interest of those causes that were always their mutual concern—the preser- vation of the Icelandic lan- guage and culture in the western hemisphere, and the strengthening of bonds of friendship between the people of the old country and the new. Long may Logberg-Heims- kringla live and prosper. Caroline Gunnarsson, President, Icelandic Canadian Club. BETELCAMPAIGN $250,000.00 Make your donations to the "Belel" Campaign Fund, 123 Princess Street, Winnipeg 2. áður ljá íslenzku vikublaði lið. Listar áskrifenda í þeirra umdæmum verða þeim sendir eins fljótt og auðið er. ☆ ☆ ☆ Það má teljast til nýunga, að ritnefnd hefir verið skipuð til að tryggja að lesefni blaðsins verði vandað og sem fjöl- breyttast í framtíðinni. Nöfn nefndarmanna eru birt að ofan. Ritstjóri blaðsins fagnar því, að eiga kost á samvinnu við slíkt úrvalslið, en óskar þess jafnframt að aðrir vinir blaðsins, sem á undanförnum árum sendu blöðunum frétter, greinar, ljóð, sögur og annað lesefni, styðji Lögberg-Heimskringlu á sama hátt framvegis.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.