Lögberg-Heimskringla - 17.03.1960, Blaðsíða 3
íslands djarfasti sonur
Framhald frá 25. febrúar
En aldrei var þó meiri reisn
yfir Jóni biskupi en síðustu ár
ævi hans, eftir andlát Gissurar
biskups Einarssonar, þegar
hann reið um landið eins og
herkonungur með sveitir
mörg hundruð manna, búnar
björtum geirum, í fylgd með
sínum glæsilegu sonum og
bauð konungsvaldinu og post-
ulum lúterskunnar byrginn
og skipaði lögum og lofum
eftir geðþótta.
Þá er eins og hann sé ölv-
aður af ofurhug. Þó að hann
sé útlægur gerr af Danakon-
ungi, hvarflar ekki að honum
ótti. Knúinn áfram af innra
mætti sannfæringar sinnar fer
hann sína örlagabraut kankvís
og með einhverju æðra á-
hyggjuleysi, sem minnir á
Júlíus Cæsar, er hann gekk út
í opinn dauðann.
Hann er magnaður guðmóði
þess manns, sem hiklaust fylg-
ir samvizku sinni, án þess þó
að hjá honum verði vart nokk-
urs ofstækis. Og aldrei var
hann þó meiri en á dauða-
stundinni. „Kvaddi hann fólk
með kæti,“ segir séra Oddur
Halldórsson, sem verið hefir
viðstaddur aftökuna. Og síðan
bætir hann við:
Hélt á helgum krossi
herrann prýddur hnossi,
fór með flýti og greizlu
fagnandi sem til veizlu.
Biskup blessar alla,
en bragnar á kné falla.
— Leit ég hans líka varla.
Þegar þess er gætt, að þarna
var Jón staddur í flokki and-
stæðinga sinna, hefir þessi
áhrifamikla lýsing tvöfalt
gildi. Svo er jafnvel sagt, að
óvinir hans glúpnuðu á síð-
ustu stundu og byðu honum
líf, sem hann ekki þáði. Þann-
ig deyja sigurvegarar.
legum gripum eins og altaris-
bríkinni miklu, sem enn er í
úrkjunni, gullkaleiknum, sem
stóð 9 merkur, og biskupskáp-
unni fögru, sem bar af öllum
messuklæðum, er menn höfðu
áður séð.
En jafnhliða þessum stór-
brotna höfðingskap, var hann
í aðra röndina allra manna al
jýðlegastur, jafnan hress og
glaður með gamanyrði á vör
um. Hann var að sjálfsögðu
örgeðja og tilfinninganæmur,
eins og skáldum er títt, og hélt
fast á hlut sínum í því, er
hann taldi rétt, en var hrein-
lundaður og undirhyggjulaus.
Óvinum sínum var hann aldr-
ei grimmur, heldur mildur og
sáttfús, ef þeir gengu honum
til handa. Páll Eggert Ólason
gefur Jóni þann vitnisburð, að
hann hafi verið vægur valda-
maður, hvort heldur um var
að ræða biskupsstjórn hans
eða veraldarvöld, og gengi
hann aldrei hart að mönnum
um sakferli.
Eða sá styrkur af stóru
sveina haldi,
er stendur sálin nökt í
fjandans valdi?
Reisn hans sjálfs var svo
mikil, að hann hafði hreina
andstyggð á allri sýndar-
mennsku, og gægist þetta út
úr hverri gamanvísu hans.
Er það hugsanlegt, að slíkur
maður gæti verið valdasjúk-
ur eða metorðagjarn í eigin-
legri merkingu þess orðs?
Höfðingleg skapgerð
Engin líkindi eru til, að Jón
biskup næði á svo skömmum
tíma jafnmiklum mannafor-
ráðum og lýðhylli, nema hann
hafi auk óvenjulegra vits-
muna sinna haft skapgerð og
persónuleika, sem heillaði
aðra menn. Að ytra útliti er
honum þannig lýst, að hann
hafi verið mikill maður vexti,
karlmenni að burðum og hinn
fyrirmannlegasti í framgöngu.
Segir Björn á Skarðsá, að
hann hafi verið höfðingi mik
ill, vel geðþekkur mönnum,
um, málfærisgóður og mikið
skáldmenni. Með höfðingja-
nafninu á hann við stórkost-
lega gjafmildi hans, sem Ólaf-
nr Tómasson lýsir af miklum
kunnugleik. Sumum gaf hann
jarðir, öðrum hesta, lét skipta
jarðarverði milli fátækra á ári
hverju og hélt stórveizlur á
staðnum, einkum um jól, til
að gleðja vini sína. Hóladóm-
kirkju prýddi hann með veg-
.Dreissið digra"
Menn hefir greint á, hvaða
hvatir Jóni biskupi hafi geng-
ið til þeirra stórræða, sem
hann stóð í um sína daga, og
hafa dómar fallið á ýmsan
veg.
Sumir hafa talið, að það hafi
verið valdagræðgi ein og ráð-
ríki, aðrir ógirnd fjár, og enn
aðrir vandlæti vegna kaþ-
ólskrar trúar. Ég held, að ekk-
ert af þessu sé rétt.
Þó að hann væri lengst ævi
sinnar kafinn í fjársýslu,
embættum og trúmálastríði,
getur engum dulizt, sem fer
að gaumgæfa sögu hans, að
hann er jafnframt undarlega
óháður þessu öllu og yfir það
hafinn.
Páll Eggert hefir þegar svar-
að að nokkru ásökuninni um
valdagirnd. Enginn valda-
sjúkur maður beitir valdinu
með vægð. Honum er unun
að láta aðra kenna á valdi
sínu. Annar vitnisburður er
enn öruggari, sem Jóni gengur
í vil. Það er glettni hans og
gamankviðlingar um sjálfan
sig. Valdagráðugir menn eru
hátíðlegir og taka sjálfa sig
alvarlega, og á þessari öld var
enn þá meiri munur á yfir-
mönnum og undirgefnum en
nú tíðkast.
Það, sem athyglisverðast er
um gamankviðlinga Jóns, er
hið frábæra hégómaleysi, er
þeir bera vitni um. Það sést
líka af trúarkvæðum Jóns,
hve innilega hann fyrirlítur
dreissið digra,
dramb og hvers kyns læti
höfðingjanna, sem farið höfðu
með yfirgangi og standa höll-
um fæti í dóminum:
þjóðræknisfélag íslendinga í vesturheimi
Forseti: DR. RICHARD BECK
801 Llncoln Drlve. Grand Forka. North Dakota.
Styrkið íélagið með því að gerast meðlimir.
Arsgjald $2.00 — Tímarit félagslna frítt.
Sendist til fjármálaritara:
MR. GUÐMANN DEVT,
185 Llndsay Street, Wlnnipeg 9, Manltoba.
Auðsöfnun
Auðsöfnun hans var að vísu
nokkur, en ekki getur hún tal-
izt óeðlilega mikil. í Sigurðar-
registri er talið, að fé það, er
erfingjum Jóns féll til skipta,
hafi numið 280 hundruðum
hundraða, eða sem svaraði
6—7 dágóðum jörðum og 98
kúgildi að auki, og getur þetta
ekki kallazt óhófleg auðsöfn-
un af manni, sem fyrst hafði
árum saman veitingu fyrir
tekjuháum prestaköllum, síð-
an biskupstekjur um aldar
fjórðung (biskupstíund ein er
áætluð að hafa numið 70
hundr. á landvísu á ári) og
innheimtulaun af konungs-
tekjum í a. m. k. tveim sýs
um auk tekna af hirðstjóra-
embætti.
Þess ber þó að geta, að efa-
laust hefir hann þá verið bú-
inn að afhenda börnum sínum
allmikla fjármuni, auk þess
sem hann hafði ákveðið, að
Hóladómkirkja skyldi að
minnsta kosti fá fjórða hluta
eigna sinna. Ekki verður það
séð af þeim jarðaskiptum, er
hann hafði við Hólakirkju, að
hann hafi hagnazt af þeim
viðskiptum, enda auðgaðist
Hólastóll verulega á biskups-
árum hans, einkum af lausafé.
Engin ástæða er heldur til að
ætla, að það hafi stafað af
nokkurri harðdrægni eða á-
sælni af hendi Jóns biskups.
Svo mikið jarðagóss átti stóll-
inn, að hann hlaut að safna fé,
nema sérlega óhöndulega væri
með það farið, og auðvitað
skorti Jón ekki hagsýni frem-
ur en nokkra vitsrhuni aðra.
En að hann hafi gengið lengra
í þeim efnum en lög og lands
venja var, hygg ég fráleitt.
Helzt hafa málaferlin út af
Bjarnaneseignum verið feng-
in honum til lýta, en þau voru
arfur frá fyrirrennara hans.
En Jón hefir efalaust talið sig
hafa þar lög að mæla, og þess
vegna þótt minnkun og enda
embættisvanræksla að heimta
ekki sakarfé kirkjunnar. Slík
mál má ekki dæma eftir rétt-
arvitund nútímans.
SELKIRK METAL PRODUCTS
RoykhAfar, öruggasta eldsvörn.
og ftvalt hrelnlr. Hltaelningar-
rör, ný uppfyndlng. Sparar eldl-
vlC, heldur hita frá. aö rjflka flt
meö reyknum.—Skrifiö, simiC tll
KELX.Y SVEINSSON
«25 Wall St. Wlnnipe*
just North of Portage Ave.
SPruco 4-1634 — SPruœ 4-1634
A. S. BARDAL LTD
funeral home
843 Sherbrook Street
Selur Hkklstur og annast um flt-
farir. Allur OtbönaCur sá beztt
8tofnaC 1894 SPruce 4-7474
P. T. Guttormsson
BARRISTER, SOLICITOR,
NOTARY PUBLIC
474 Groln E**hon9« BWg.
147 Lombord Streot
Offtce WHitehall 2-482»
Residence GL 3-1820
SPruce 4-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Reroof Aphalt Shingles. Roof
repaire, lnstall vents. alumlnum
wlndows, doors. J. Ingimundson.
SPruce 4-78B5
632 Siincoe St. Winnipeg 3, Man
Hvar er nú heiftarhugurinn
yðar kaldi,
er höfðuð þér með stóru
peningagjaldi?
Foringinn
Jón Arason var ekki aðeins
valdamesti maður landsins
sinni öld, heldur jafnframt
forystumaður á mörgum svið-
um. Til dæmis hóf hann að
láta vinna brennistein til út-
flutnings.
Annað er þó merkilegra.
Hann var brautryðjandi í sögu
prentlistarinnar hér á landi.
Thorvaldson, Eggertson.
Saunders & Mauro
Barristers and Solicitor*
209 BANK OF NOVA F.COTIA Bldg
Portage and Garry St.
WHltehall 2-8291
S. A. Thorarinson
Barrlster and Bolicttor
2nd Floor Crown Trust Bldg.
364 MAIN ST.
Offlce WHitehall 2-7051
Residence HU 9-6488
Dunwoody Saul Smith
& Company
Chartered Accountants
Winnipeg, Toronto, Vancouver,
Ft. William, Kenora, Ft. Fran-
ces. Dryden, Alikokan, Oak-
ville, Cornwall, Welland.
The Business Clinic
Anna Larusson
Office at 207 Atlantic Ave.
Phone JU 2-8548
Bookkecplng — lncome Tax
Insuranoe
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar
G. F. Jonasson, Pres. & Man. DlP.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
16 Martha St. WHltehall 2-0021
parker. tallin, krist-
JANSSON. PARKER AND
MARTIN
BARRISTERS — SOL.ICITOR8
Ben C. Parker, Q.C.
(1910-1951) „ _
B Stuart Parker. CUve K. Tallln.
QC A. F. Kristjansson. Hugh B
W parker W. Steward Martln
5th fl Canadian Bank of Commerce
Building, 389 Main Street
Winnipeg 2, Man. WHitehaU 2-3581
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE. Managing Dlrector
Wholesale Distrlbutors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: _ ®e*i:
SPruce 4-7451 SPruce 2-3917
FRÁ VINI
DE GRAVES, EGGERTSON
& EGGERTSON
Barristers and Sollcltors
WILFRED R. DE GRAVES, B.A., LL.B.
ERLINGUR K. EGGERTSON, B.A., LL.B.
GUNNAR O. EGGERTSON, B.A., LL.B.
500 Power Buildlng, Poftoge «t
Voughan, Winnlpeg 1.
PHONE WH 2-3149.
Dr. ROBERT BLACK
SérfrseCingur I augna, eyrna, nef
og hfllssjúkdömum.
401 MEDICAL AHT8 BLiDG.
Graham and Kenncdy St.
Offlce WHitehall 2-38B1
Residence: HU 9-3794
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Controctor & Bullder
•
Office ond Warehouse:
1410 ERIN ST.
Ph. SP 2-6860 Res. Ph. SP 2-1272
Off. SP 2-9509 - SP 2-9500
Res. SP 4-6753
Opposite Maternity Hospltol
Nell's Flower Shop
700 Nolre Dame
Wedding Bouquets - Cut Flowers
Funerol Designs - Corsoges
Bedding Plonts
S. L. Stefansson — JU. 6-7229
Mrs. Albert J. Johnson
ICELANDIC SPOKEN
GUARANTEED WATCH & CLOCK
REPAIRS
SARGENT JEWELLERS
H. NEUFELD, Prop.
Wotches, Diamonds, Rings, Clocks,
Silverwore, China
884 Sorgent Ave. Ph. SU 3-3170
Bækur þær, sem Jón Matt-
híasson sænski prentaði á veg-
um Jóns, munu nú að vísu
allar glataðar og ef til vill
mest fyrir ofstæki siðskipta-
manna, en þó tókst Árna
Frh. bls. 7.
Invesiors Syndicaie
of Canada, Limiied
H. Brock Smilh
Manager, Winnipeg Region
280 Broadway Ave. WH 3-0361