Lögberg-Heimskringla - 17.03.1960, Blaðsíða 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 17. MARZ 1960
5
Sigurjón Markússon fyrrv
sýslumaður — kveðja
Sigurjón Markússon fyrrv.
sýslumaður lézt þ. 10. nóv. s. 1.
eftir stutta legu, áttræður að
aldri.
Hann var fæddur í Reykja-
vík 27. ágúst 1879, einkasonur
hinna kunnu merkishjóna
Markúsar F. Bjarnasonar
skólastjóra Stýrimannaskól-
ans og frú Bjargar Jónsdótt-
ur konu hans.
Með honum er genginn einn
sérstæðasti persónuleiki, sem
ég hef. Þekkt. Hann var
gæddur frábærum músíkhæfi-
leikum og lærði ungur að
leika á slaghörpu og gerði það
svo að unun var á að hlýða
allt til elli.
En þá var öldin önnur og
listrænar gáfur ekki á setj-
andi — og er það gamla sagan
um íslenzka afburðahæfileika.
Svo sem hann átti kyn til að
rekja, felldi hann ungur ást
til hafsins, og mun það ætíð
hafa staðið næst hjarta- hans
að verða skipstjóri og enn
munu þeir til í Breiðafirði,
sem muna hve ágætlega hon-
um fórst að aka seglum gegn-
um brim og boða vestur þar.
Þessir voru tveir eðlisþættir
hans og báðir sterkir. Því er
mér eigi grunlaust, að hann
hafi alla ævi borið þess nokkr-
ar menjar, að hann fékk eigi
að njóta þeirra.
En enginn má sköpun renna,
og leið hans lá eins og fleiri
gáfumanna til Kaupmanna-
hafnar til laganáms, og lauk
hann þar prófi með góðum
vitnisburði. Síðan tók við
langur embættisferill — fyrst
sem fulltrúi hjá bæjarfógeta í
Reykjavík, síðan sýslumanns-
embætti í Snæfells- og
Hnappadalssýslum, Skafta-
fells- og Suður-Múlasýslu og
að lokum fulltrúastarf hjá
f j árm álaráðuney tinu.
Það var ekki fyrr en á ár-
inu 1934 að ég kynntist Sigur-
jóni, og man ég enn hve mér
varð starsýnt á hann vegna
glæsimennsku hans. Hann var
í mínum augum hinn full-
komni aristókrat, allt í senn
virðulegur, gáfaður og bar
með sér menningu heimsborg-
raans. Þessir persónutöfrar
Sigurjóns voru ómótstæðilegir
og seiddu til sín fjölmarga og
næsta ólíka menn, og nutum
við þess unglingarnir að
hlusta á þá ræða um daginn
°g vegin og gátuna miklu frá
ótal hliðum og sjónarmiðum.
Sjálfur var húsbóndinn bæði
rökfimur og lítillátur í senn,
°g kunni manna bezt þá kur-
teisi að hlusta á skoðanir ann-
arra. Þó var skapið mikið —
en hann þurfti aldrei að grípa
til persónuníðs eða stóryrða
'— en hélt þó sínum hlut. Sig-
urjón var ágæta vel að sér í
frakkneskri tungu og kenndi
hana árum saman, og hlaut
fyrir nokkrum árum heiðurs-
tuerki frá franska ríkinu fyrir
framlag sitt í þágu frakkn-
eskrar tungu og menningar á
íslandi. Það verður ekki skil-
ist svo við þetta greinarkorn,
að ekki sé minnzt á það, sem
varð Sigurjóni til mestrar
gæfu í lífinu, en það er eigin-
kona hans, Sigríður Björns-
dóttir, sem stóð eins og bjarg
með honum alla ævi og hagg-
aðist hvergi þó veður gerðust
válynd á stundum.
Gestrisni hef ég hvergi
þekkt meiri en á heimili þeirra
hjóna, og fyrir hana getum við
aldrei fullþakkað, sem nutum.
Aili Már
Mbl., 17. nóv. 1959
Systkini frú Sigríðar og
frændsystkini Sigurjóns hér
vestra eru Ólafur Björnson,
forstjóri hjá Nesbitt Thomson
& Co. Ltd. í Winnipeg og syst-
urnar Mrs. Sveinsína Berg og
Mrs. Jensína Sagen, báðar í
Tacoma, Wash.
Svipmyndir á ferð ....
Frá bls. 4.
hvern bæinn og fylgjumst
með vinnunni úti og inni:
I
Ein þeirra vatt og önnur
spann,
iðnin hvatti vefarann.
Þá var glatt í góðum rann,
gæfan spratt við arinn þann.
Breiða fyrst á firðinum fékk
ég vist á bátunum hjá afla-
þyrstum, þrekmiklum þrauta-
og listaformönnum. — Eyjarn-
ar svífa dúnléttar á lygnum
firðinum, grænar eða hvít-
flekkóttar af æðafugli.
Við komum til Vesturlands
norðar. Séra Einar Sturlaugs-
son prófastur var á Patreks-
firði og mælti: :
Er mér skolar upp á land
aldan hinzta sinni.
Vona ég að Vesturland
vöggu skýli minni.
Málmar í fjöllum, mjög
verðmætir, sem boða glæsi-
lega framtíð mikils mann-
fjölda. Blágrýtisfjöll, ímynd
styrkleikans, stundum úfin og
grett. Gróðurlítið, en lífið hef-
ir þó sigrað kaldan steininn,
því alls staðar eru syllurnar
yfirbreiddar, þaktar grænu
grasi. Margur sælureitur fyr-
ir sauðkindina.
Norðurland. — Skín við sólu
Skagafjörður, skrauti búinn,
fagurgjörður. Bragi ljóða,laga-
vörður, ljá mér orku, snilld og
skjól. Kenn mér andans óró
stilla. Ótal sjónir, ginna, villa,
dilla, blinda, töfra, trylla,
truflar augað máttug sól. —
Hvar skal byrja, hvar skal
standa? Hátt til fjalla, lágt til
stranda? Bragi leysir brátt úr
vanda, bendir mér á Tinda-
stól. — Svona hefst kvæði eft-
ir Matthías Jochumsson, hið
mikla lárviðarskáld, og er það
í raun og veru, þó að stað-
bundið sé í Skagafirði, dýr6-
aróður um gjörvallt Norður-
land og ísland allt.
Einar Benediktsson mælti:
Ásbyrgi, prýðin vors prúða
lands, perlan í straumanna
festi, frjótt eins og óðal hins
fyrsta manns, fléttar hér
blómin í hamranna krans.
Strandbergin kveðjunni kasta
á gest, krýnd eins og járn
undan hesti. — Áður en ég
vígðist til ævistarfs míns, fór
ég um allar byggðir Islands,
hringferð um landið. Kom þá
í Ásbyrgi og var þar fagur
ungmennafélagshópur undir
forustu bræðranna Þórarins
Víkings forstjóra og séra
Sveins Víkings. — Fluttar
voru þar ý m s a r fagrar
ræður og söngur íslenzkrar
vormenningar ómaði. Eignað-
ist ég þar eina stærstu fegurð-
arnautnarstund ævinnar. —
Æskan ljúf og létt og hress
og hugsjónarík. Sólin
speglaðist í fögru stöðu-
vatni inni í ihiðju byrginu, og
sól stafaði þannig, að kletta-
borgin var gullbrydd, hamar-
inn umhverfis byrgið að ofan
og innan lagður sólspöng. Hví-
lík töfradýrð. — En allar hug-
sjónir, sem brunnu í brjósti
þessara eldmóðsvopnuðu Is-
lendinga hafa rætzt, og vér
vonum og trúum og vitum,
að svo munu og rætast beztu
vonir í brjósti þegna fjallkon-
unnar um langa, bjarta fram-
tíð.
Austurland. — Fallegir litir
í fjöllum. Lagarfljót djúpt og
lygnt. Skógurinn hinn mesti,
sem ísland á, speglar sig í
lygnu Lagarfljóti. í umgetinni
ferð minni um ísland kom ég
meðal annars í Almannaskarð.
Þar er töfraútsýni, aldrei hef
ég á ferðalagi séð fegurri sýn.
Þ^ð væri helzt fyrir andans
augum, er ég horfi til Islands
frá Veturheimi.
Hinn heiti blær ættjarðar-
ástar yðar, hinn heiti blær,
sem til hjartans nær, birtir
oss ísland í fegursta ham-
ingjubúningi fjallkonunnar.
Island þig elskum vér alla
vora daga, byggð vor við
brjóst þitt er, brauð og líf og
saga, blikeldar braga. Brýnir
lífið frost og glóð. Heimilis-
haga hér gaf Drottinn vorri
þjóð. Hér blessast heitt og
kalt. Hér er oss frjálsast allt.
Faðmi þig himinn fagurblár
fósturland vort í þúsund ár.
(Þættir úr erindi, skrásett
eftir minni á fjörutíu ára
kandídatsafmæli, 13. febrúar
1960.)
Winnipeg, 686 Banning St.,
Kanada,
Halldór Kolbeins
Kóngur skrifar kóngi
Þeir, sem heyra og lesa þær
tilkynningar, sem fara á milli
ríkja á þessari öld (sbr. mót-
mælaorðsendingar Islendinga
til Breta), hafa kannske gam-
an af að heyra pistla, sem orð-
aðir eru hressilega. Hér kem-
ur hluti af bréfi, sem Kristján
fjórði Danakonungur (1577—
1648) ritaði Karli níunda Svía-
konungi:
„Þetta ósæmilega og ósvífna
bréf þitt hefir nú verið afhent
oss af sendiboðanum. Vér get-
um fundið, hve hitinn í ágúst
hefir haft óheppileg áhrif á
heilann í þér. Þú segir, að vér
höfum rofið Stettínarfriðinn,
en það er bláber lygi. Það er
einnig lygi, að vér höfum
unnið Kalmar með svikum.
Þú ættir heldur að skammast
þín fyrir að láta taka borgina
þarna rétt við nefbroddinn á
þér. Hvað hólmgöngu okkar
viðvíkur, þá er hún óþörf, því
að Guð hefir þegar fellt þig í
duftið. Þú þarfnast nú aðeins
læknis, sem getur haft umsjón
með sjúkum heila. Þú ættir
að skammast þín, gamli hálf-
viti, að ráðast svona á heiðar-
legan mann, en það hefirðu
vafalaust lært af gömlu
þvottakerlingunum, sem ekki
geta varið sig nema með kjaft-
inum. Christian Rex.“
ALLT ÁRID
LJEGSTU
FLUGGJÖLD
TIL
ÍSLANDS
LÆGRI EN NOKKURT
ANNAÐ ÁÆTLUNAR-
FLUGFÉLAG
Frá New York um ísland til
STÓRA-BRETLANDS •
HOLLANDS • NOREGS •
SVÍÞJÓÐAR • DANMERK-
UR • ÞÝZKALANDS •
FINNLANDS • LUXEM-
BORGAR
Fargjöld ICELANDIC AIRLINES eru
lægst fluggjalda allra áætlunarflug-
félaga Atlantshafsferðanna, lægst all-
an ársins hring ... lægst allra flugfar-
rýma (Deluxe, Tourist eða Economy)
. . . að ógleymdum kostakjörum „fjöl-
skylduferða“ IAL frá 15. maí.
Með lægri fargjöldum en „Economy“
bjóða ICELANDIC AIRLINES fyrsta
flokks fyrirgreiðslu . .. tvær ágætar
máltíðar, að ógleymdu koníaki, allt
ókeypis. Færri farþegar, meira fót-
rými. Stytztu áfangar yfir úthafi'frá
New York ... aldrei meira en 400 míl-
ur frá flugvelli.
UPPLÝSINGAR I ÖLLUM FERÐA-
SKRIFSTOFUM
ICELANDICl AIRLINES
'•'W'M
f I
15 WEST 47TH ST„ NEW YORK 36, Pl 7-8585
NEW YORK • CHICAGO • SAN FRANCISCO
FOR RESERVATIONS
CALL OR TELEPHONE
Tel. WH 2-8424
P. LAWSON TRAVEL LTD.
(Arthur A. Anderson, Mgr.)
Aulhorized Agents
247 NOTRE DAME AVE., WINNIPEG 2. MAN.