Lögberg-Heimskringla - 05.01.1961, Síða 8

Lögberg-Heimskringla - 05.01.1961, Síða 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. JANÚAR 1961 Úr borg og byggð Þau hjónin Ingólfur og Júlíana Jóhannson, sem lengi hafa átt heima í Riverton, hafa flutzt til dóttur sinnar, ólafar, að 2550 Warren St., East Gary, Indiana, U.S.A. Þau lögðu af stað 3. janúar og biðja blaðið að flytja vinum og skyldfólki innilegar kveðjur. ☆ Meeting of Jon Sigurdson Chapter I.E.O.D. will be held at the home of Mrs. Lena Goodman, 892 Goulding St. on Tuesday, January 10, 8 o’clock. ☆ ísafold kynnir vestur-íslenzka skáldkonu Það mun vera staðreynd, er fáir gera sér þó grein fyrir, að V.-íslendingar eiga nokkra liðtæka höfunda í óbundnu máli, sem „heimafólk“ hefir ekki fengið að kynnast. Þetta stafar einfaldlega af því, að þessir höfundar skrifa á ensku til þess að ná til stærri hóps lesenda en þeir mundu eiga aðgang að, ef þeir rituðu á íslenzku. Má til dæmis nefna Lauru Goodman Salverson, sem mun vera einna kunnust þessara höfunda. Nú hefir ísafoldarprent- smiðja ráðizt í að kynna Sól- veigu Sveinsson, sem mun mjög fáum kunn hér á landi, enda þótt hún hafi getið sér gott orð vestan hafs fyrir skáldsögur sínar, sem hún hefir ritað á ensku. Heitir saga þessi „Helga í Stóruvík", en hét á frummálinu „Heaven Is My Heart“. Hún er al- íslenzk, gerist raunar í þorpi hér á landi, enda þótt hún hafi upphaflega verið skrifuð á ensku og ætluð enskum les- endum. — Þetta er falleg ást- arsaga, sem hentar vel ungum stúlkum. Þýðandinn er Aðal- björg Johnson, sem látin er fyrir skemmstu. Vísir Dánarfrcgnir Hjálmar Gíslason andaðist að heimili sínu hér í borg fimmtudaginn 22. des. síðastl., 84 ára að aldri. Hann var fæddur að Kirkjubæ í Norður- Múlasýslu 7. okt. 1876; for- eldrar: Gísli Jónsson og Ing- unn Stefánsdóttir. Hann flutt- ist vestur um haf til Winni- peg 1903. Hann var gáfaður maður og prýðilega ritfær svo sem hann átti kyn til, rit- aði mikið í íslenzku blöðin á fyrri árum. Hann tók mikinn þátt í íslenzkum félagsmálum, var leiðandi maður í íslenzku góðtemplarastúkunum og í Þjóðræknisfélaginu. Hjálmar var tvíkvæntur, fyrri kona hans hét Sigríður Björnsdóttir og missti hann hana eftir þriggja ára sambúð. Seinni kona hans, Ingunn Baldwinsdóttir, lifir mann sinn, enn fremur sonur hans Ragnar af fyrra hjónabandi og 4 dætur af seinna hjónabandi, Mrs. L. Egilson í Langruth, Man.; Hólmfríður, Mrs. T. L. Thomasson, og Mrs.M. Jaskol- ski, allar búsettar í Winnipeg. Fimm systkini átti hann á lífi á Islandi, Jóhann, Stefán, Björn, Steinu og Jóhönnu. Hann var sá eini af systkinun- um, sem vestur kom, og fagn- aði hann því mikið þegar hann átti þess kost að fara heim á fund þeirra árið 1946. Útförin fór fram miðviku- daginn 28. des. frá Unítara- kirkjunni, séra Philip M. Pét- ursson flutti kveðjumál. ☆ Mrs. Sarah Baldwin að Ste. 11 Asa Court, Winnipeg, lézt að heimili sínu 29. des. síðastl., 70 ára að aldri. Hún var fædd í Winnipeg og átti hér heima allan sinn aldur. Hana lifa eiginmaður hennar, Ben. Út- för hennar fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju; Dr. V. J. Ey- lands ílutti kveðjumál. ☆ Jakob Ingimundarson dó á gamlársdag síðastl. að heim- ili sínu, 301 Clandeboye Ave., Selkirk, Man., 84 ára. Hann lifa eiginkona hans, Guðrún; einn sonur, Martin; tvær dæt- ur, Mrs. Cory Kamstra og Mrs. Joseph Zaborniak; fjögur barnabörn og 4 barna-barna- börn. Hann var lagður til hvíldar í lúterska grafreitn- um. ☆ Sigurbjörn Benedictson frá Lundar lézt á heimili sínu 20. desember, hann var 85 ára gamall. Sigurbjörn var fædd- ur á Þórunnarstöðum í Keldu- hverfi, N.-Þingeyjarsýslu, 16. júlí 1875, sonur hjónanna Benedikts Kristjánssonar og Hólmfríðar Kristjánsdóttur. Þau fluttust til Kanada árið 1879 og settust að í Nýja Is- landi, þar sem nú er Riverton. Sigurbjörn var k v æ n t u r Kristveigu Jónsdóttur Frí- mann. Þau fluttust til Otto, Man. árið 1910. Hún lézt 1941. Þau áttu saman 11 börn. Af þeim lifa föður sinn: Holm- fred Freeman, Lundar, Mrs. Miller, Detroit, Mich., Mrs. V. Kristjánsson, Wpg., Haraldur Friðjón, Mrs. Norman Krist- jánsson, og Mrs. Óskar Krist- jánsson, öll að Lundar, Man. Sigurbjörn var jarðaður frá lútersku kirkjunni á Lundar 22. desember síðastl. Frá Los Angeles 18. desember 1960. Kæra vinkona. Þetta eru aðeins fáeinar línur með jólakveðju til þín, sem við vonum að sæki þig vel heim! Eftir ys og þys jólanna mun ég senda þér og L-H smá fréttabréf eða tína eitt og annað til um fólk, sem er að fara og koma o. s. frv. í dag erum við að fara til G. Matthíassons, en þangað er boðinn R. Beck, sem hér er á ferð í jólafríi sínu og í dag er líka jólatréssamkoma hér fyrir börn og mæður þeirra. í gær fóru til íslands Kjartan MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Allir ævinlega velkomnir. Karlsson, kona hans og börn þeirra. Hugsar þetta fólk að vera mánuð í þessum leið- angri. Á gamlársdag kemur hingað Einar Egilsson frá Reykjavík á leið til Hawaii. Kona hans, Margaret Thor- oddsen, átti einu sinni heima hér í Los Angeles. Hér er sól og sumar eða eins og fólk hugsar sér Los Angeles og , No Smog“, en við höfum haft töluverða úrkomu, svo að allt er svo grænt, hreint og tært og fjöllin færzt nær, hvort svo er eða ekki er gott að finnast það. Ég hugsa til Winnipeg við og við og sakna þó einkum íslenzku kirkjunn- ar um jólin, og þótt útvarp og sjónvarp hafi nú upp á margt að bjóða er ekkert, sem jafnast á við hið gamla og góða, og stundum er nærri því skrítið hve maður er minnugur á hið löngu liðna, já, og svo langt í burtu. Með beztu kveðjum og jóla- óskum frá okkur öllum. Sami og ætíð, Skúli G. Bjarnason Gjafir í byggingarsjóð Hafnar, Vancouver, B.C. Frá bls. 7. Mrs. Dómhildur John- son, Wynyard 25.00 í minningu um Mrs. Mrs. Sigurveig Vopni, Kandahar. Mrs. Matthildur Frede- rickson, Vanc. 50.00 í minningu um kæra vini: Elín Hall, dáin í ágúst 1960 í Wpg., og Sigurveig Vopni, dáin í okt. 1960 í Kandahar. Miss O. Bergman, Winnipeg 25.00 Mr. og Mrs. Alex C. Jonsson, San Mateo, California 100.00 Mrs. Walter Jonsson, Pr. Rupert 20.00 Mr. Gísli Jonsson, Pr. Rupert 20.00 Mr. og Mrs. Kristján Einarson, Pr. Rupert 20.00 Mrs. Mary S. Steven- son, Winnipegosis 5.00 Mr. og Mrs. John Ind- ridason, Vancouver 200.00 Jona A. Simundson, Pr. Rupert 15.00 Mrs. Guðlaug Johann- esson, Vancouver 10.00 Mr. Robert Hart, Van- couver 50.00 Alls $15,465.85 Mrs. Mary Kerr, Kelowna 20.00 Mr. og Mrs. Leo Sig- urdson, Vanc. 500.00 Mr. og Mrs. T. H. Thor- laksson, Vanc. 200.00 Mrs. Jónasína Johann- esson og Mrs. Skonseng 200.00 Mrs. Bergthora Sig- urdson, Vanc. 100.00 Dr. og Mrs. Peter Gutt- ormsson Shaunavon, Sask. 1000.00 Mr. J. Anderson, Vanc. 10.00 Mr. og Mrs. Albert Sveinsson, Victoria 50.00 Mrs. S. Eirikson, Vancouver 20.00 Mrs. V. Christopher- son, Vancouver 25.00 Mrs. G. Key, Coombs, B.C. 5.00 í kæra minningu um Stefan S. Maxson, dáinn í júlí 1960 í Innisfail, Alta. Miss Bertha Jones, Los Angeles 100.00 Mr. og Mrs. Soffanius Thorkelsson, Victoria 50.00 Mr. J. Reykdal, Vancouver 50.00 Mr. Geo. Johannesson, White Rock 100.00 Mr. og Mrs. Edward Mailman, Campbell River 5.00 Mr. og Mrs. Leo John- sori, Campbell River 5.00 Mr. og Mrs. Raymond Johnson, Campbell River 5.00 Mr. og Mrs. John Borg- fjord, Mr. og Mrs. A. R. McLeod, Mr. John Rafnkelson, Mrs. G. Erickson, Mrs. V. Einarson og Paul Einarson, Mrs. A. Arnason, Mr. og Mrs. Walter Widen, Mrs. O. J. Dahl, Mrs. B. Brethour, Mr. og Mrs. Runacres, Mr. og Mrs. Lew Einar- son, Mr. og Mrs. H. S. Hallson, Mr. og Mrs. Tippett, Mr. og Mrs. E. G. Gunnarson; all of Campbell River 49.50 Jólagjafir lil Höfn: Victoria Icelandic Ladies’ Club $25.00 Leslie Icelandic Ladies’ Aid 10.00 Wynyard Icelandic Ladies’ Aid 10.00 Harron Bros., Vancouver 25.00 Mrs. Margaret Johnson, Victoria 5.00 Fiskur gefinn mánaðarlega frá Reliance Fish Co. Oranges frá Mrs. Lang. Hjartans þakklæti frá st j ór narnef ndinni, Mrs. Emily Thorson RETURN COACH FARES Belween WINNIPEG and REGINA $17.00 Relurn You Save 6.70 EDMONTON 37.25 Relurn You Save 15.50 FORT WILLIAM 19.95 Return You Save 10.40 PORT ARTHUR 20.15 Relurn You Save 10.45 CALGARY 37.25 Reiurn You Save 15.50 Good Going Jon. 17 and 18. You must commence your return journey within 10 days of the purchase date of your ticket. Corresponding low rates and savings are available from other points. Waich for Bargain Fares effeciive Feb. 14 and 15 Train Travei is Low-Cost Travel Pull information from your Agont ICELANDIC CANADIAN CLUB d^ancfruet (JT* <2)< 'ance FRIDAY, JANUARY 20- 1961 Elks Club, Osborne and River Ave. REFRESHMENTS 6.30 BANQUET 7.00 SHARP — SMORGASBORD GUEST SPEAKER DANCE 9.00 — 5 Piece Orchestra with Lew Dickson Trumpetist ADMISSION $3.00 PER PERSON

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.