Lögberg-Heimskringla - 14.02.1963, Qupperneq 1
Hö glíer g - ^eimsfertn gla
Stofnað 14. jan., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
77. ÁRGANGUR
WINNIPEG, EIMMTUDAGINN 14. FEBRÚAR 1963
NÚMER 7
Fjölmennið á ársþing og skemmtanir Þjóðræknisfélagsins
Bréf frá séra Robert Jack
Tjörn, Vatnesi, V.-Hún.
1. feb. 1963.
Kæra Ingibjörg og lesendur
Lögbergs-Heimskringlu.
Um daginn fékk ég langt
bréf frá kunningja mínum í
Skotlandi. Hann byrjar bréfið
á því. Ég kenni sannarlega í
brjósti um þig, því nú veit ég
hvað það er að búa við kulda.
í dag er 11 stig fyrir neðan og
ég tek bara út . . .
Frá öllum löndum á Ev-
rópu fáum við fréttir um
mikinn kulda og afleiðingar
hans, rafmagnsleysi, sprungn-
ar vatnspípur, hungur og jafn-
vel dauði.
En hérna á íslandi ríkir ein-
muna tíð, mjög gott veður,
lítið frost eða hiti til skiptis.
Þegar ég var í Reykjavík um
daginn steig Brezkur við-
skiptamaður úr flugvél á
Reykjavíkurflugvelli og sagði
við íslendinginn sem tók á
móti honum. „Nú er gaman að
vera' kominn í heitara lofts-
lag.“
En í öllum þessum hita er
eitthvað að. Vegirnir um
landsbyggðirnar, að minnsta
kosti hérna í sýslunni eru
mjög þungir og sumstaðar ill-
færir vegna bleytu. Samt
halda menn víðast hvar upp á
Óskað upplýsinga um
Dalamenn yestan hafs
Séra Jón Guðnason skjala-
vörður í Reykjavík, sem jafn-
framt er einn af mestu ætt-
fræðingum á íslandi, gaf út
fyrir nokkrum árum mikið og
merkilegt rit Slrandamenn,
og gerði íslendingum vestan
hafs þar góð skil. I fyrra vetur
kom út eftir hann tvö stærðar-
bindi af ævsikrám Dalamanna
(Dalamenn). Nú er hann að
búa undir prentun þriðja
bindi þessa rits, og verður
seinni hluti þess: Dalamenn í
Veslurheimi, þ.e. vesturfarar.
Er honum annt um það, því
að hann er maður framúr-
skarandi vandvirkur, að þessi
hluti ritsins nái til sem flestra,
helzt allra, Islendinga vestan
hafs, sem ættaðir eru úr Dala-
sýslu.
Fyrir hönd séra Jóns vil ég
því biðja Dalamenn hér í álfu,
þ.e.a.s. fólk, sem fætt er í
Dalasýslu eða ættað þaðan, að
senda honum skriflegar upp-
lýsingar um vesturfara úr
Dölum, um búsetu þeirra
(heimilisfang) hér vestra,
maka og börn, sem og dánar-
dag og dánarár þeirra, sem
látnir eru. Líka væri vel þegið
að fá myndir af vesturförum
eða þá fjölskyldumyndir, því
að séra Jón vill láta myndir
fylgja æviskránum, eftir því
sem frekast er unnt.
Vona ég, að hlutaðeigendur
bregðist vel og greiðlega við
þessari málaleitun. Heppileg-
ast væri að senda umbeðnar
upplýsingar beint til séra Jóns,
en utanáskrift hans er: Séra
Jón Guðnason, Glaðheimum
18, Reykjavík. Kjósi menn
það fremur, geta þeir sent
upplýsingar og myndir til
undirritaðs, sem kemur þeim
síðan til séra Jóns, sendanda
að kostnaðarlausu.
Með fyrirfram þökk fyrir
góðar undirtektir og aðstoð 1
þessu máli.
Richard Beck,
Syngja á kveldsamkomum
Mrs. Evelyn Allen
Miss Margarei Jónasson
þorrablót og koma saman, um
þessar mundir til að skemmta
sér, borða íslenzkan mat og
drekka brennivín. Það er
‘tradition’ sem deyr seint
meðal íslenzku þjóðarinnar.
Vetrarvertíðin er hafin á
öllum stöðum landsins en lítið
gefur á sjó enn vegna brælu
á hafinu. Ég hef heyrt sagt að
það vanti fólk til að vinna í
verbúðum og manna báta.
Eitt veit ég fyrir víst að það
er nóg að gera á íslandi eins
og er, og sumsstaðar er illt að
framkvæma, því það vantar
hendur. Það eru breyttir dag-
ar á íslandi með það, því það
var áreiðanlega annað þegar
þið eldri fluttust héðan fyrir
mörgum árum. Já, gamla
landið, eins og mörg önnur
lönd, hafa breyzt til batnaðar
síðustu áratugi.
Bílaumferð er ein stór
breyting og nú í þessum mán-
uði hafa verið óvenjulega
mörg dauðaslys á vegum
landsins. Það var skemmtileg
Forseti
Þ j óðr æknisf élagsins
Dr. Richard Beck
litmynd sýnd hérna í húsinu í
gærkveldi. Hún var frá Utah
og sáum við gamlar slóðir
landa sem fluttust þangað yfir
100 árum síðan. Við höldum
slíkar sýningar öðru hvoru og
koma bændur og fólk þeirra
frá bæjunum í kring.
Okkur líður öllum vel og
biðjum gærlega að heilsa. Ég
þakka kærlega fyrir blaðið
sem ég fæ reglulega og Ice-
landic Canadian. — Hjartans
þakkir, Hjálmur.
Ykkar einl.
Robert Jack.
Ræðumenn á kveldsamkomum þjóðræknisþingsins
Sigurður Magnússon
Aðalræðumaður á Lokasam-
komu Þjóðræknisfélagsins
Dr. Hugh H. Sanderson
Flytur ræðu á samkomu
Icelandic Canadian Club
Rev. Krislján Róbertsson
Ræðumaður á Frónsmótinu
Frá Suður-
Kennsla í Islenzku og Is-
lenzkum bókmenntum hefur
nú farið fram í s.l. 25 ár í Há-
skóla Kaliforníu U.C.L.A. I
vor verður afmæli þess minnst
í háskólanum með mikilli við-
höfn og í fullum skrúða!
Árið 1938 þegar Dr. Eric
Wahlgren (afi hans og amma
vóru sænsk) var boðið að tak-
ast á hendur kennslu í nor-
rænu og sænsku í U.C.L.A. í
Los Angeles. Kom hann beint
frá Háskólanum í Chicago.
Síðan hefur fleirum kennur-
um bætt 'í lið hans við kennsl-
Kaliforníu
una. Dr. Wahlgren nú verið
prófessor árum saman og
heldur áfram að kenna gamla
íslenzku eins og að hann orðar
það! Ef til vill frá íslenzku
sjónarmiði er það einkenni-
legt •— að mörg hundruð
stúdentum í s.l. 25 ár hafa
verið kennd fræði • í óbundnu
máli. Eddu skáldskap og yrk-
isefni um eitt og annað í
enskum þýðingum með stúd-
entum sem hafa náð mismun-
andi menntastigum einkum
þeim sem að hugsa sér að taka
Ph. D. próf lesa þetta á frum-
málinu undir verndarvæng Dr
Wahlgren, en þetta er hluti af
námi þeirra til þess að fá skýr-
teini í heimspeki. Á s.l. 5 mán-
uðum hafa 97 menn og konur
4 af þeim Ph. D. studentar og
93 sem að eigi voru komnir
eins langt í náminu kennt á
ensku bókmenntir og menning
íslands sem að flestum var
áður alveg hulið. Prófessor
Wahlgren les íslenzku eins og
að hún hefur verið rituð fyrr
og síðar, en veigrar sér við að
tala hana sökum ónógrar æf-
inga og skorts á að vera með
fólki sem að talar Islenzku.
Frh. bls. 2.
J