Lögberg-Heimskringla - 09.05.1963, Blaðsíða 1
Hö gberg - i|etmsfer ingla
Stofnað 14. ]an., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
77. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 9. MAÍ 1963
NÚMER 19
Heimsækjir ísland
Fáir hafa gert sér eins
mikið far um að kynna ís-
lenzkar bókmenntir í enska
heiminum eins og Dr. Watson
Kirkconnell, forseti Acadia
háskólans í Nova Scotia.
Hann er tungumálamaður
mikill og afkastamikill rit-
höfundur. Hann hefir skrifað
mörg rit um íslenzkar bók-
menntir, sögu og tungu. Hann
hefir þýtt allmikið af íslenzk-
um ljóðum á ensku og skrifað
Dr. Watson Kirkconnell
ritdóma um íslenzkar bækur,
einkanlega þær, er komið
hafa út vestan hafs. Dr. Kirk-
connell hefir ritað ýtarlega
um Stephan G. Stephansson
og fer ekki í launkofa með
það, að hann telur hann eitt
það mesta skáld, sem uppi
hefir verið í- Kanada. — Það
er okkur mikið ánægjuefni að
geta skýrt frá því, að þessi
ágæti vinur íslendinga hefir
í hyggju að heimsækja ís-
land í sumar, ásamt konu
sinni. Þau munu fljúga frá
New York til Reykjavíkur 2.
júlí og frá Reykjavík til
London 9. júlí, en í London
mun Dr. Kirkconnell sitja
ráðstefnu háskóla brezka
heimsveldisins 10. til 19. júlí
og ráðstefnu háskóla forseta
19. til 22. júlí. Þessi þing há-
skólanna innan brezka heims-
veldisins eru haldin fimmta
hvert ár.
Við væntum að ættlandið
skarti sínum fegursta sumar-
skrúða þessum góðu gestum
til yndis og dvöl þeirra verði
þeim gleðirík. Við óskum
þeim fararheilla.
Member of Geophysical Society
Recently T. D. Einarsson of
Arborg, Manitoba was select-
ed to membership in the So-
ciety of Exploration Geophy-
sicists. SEG is the profession-
al society of more then 5,500
earth scientists who apply
their knowledge of geophy-
sics to locate many of the
valuable minerals hidden in
the earth’s crust.
David Einarsson is Party
Chief of Geophysical Service
International S.A. in Tripoli,
Libya.
With 22 local chapters in
the western hemisphere, SEG
is affiliated with 6 other
leading earth science societ-
ies to promote the science of
T. David Einarsson
geophysics. Through active
participation in this organiza-
tion, Einarsson will exchange
ideas and information with
other earth scientists, attend
technical meetings, and be
kept abreast of the latest de-
velopments in this f i e 1 d
through publications, confer-
ences and personal contacts.
Lake Centre News.
(David er fæddur og upp-
alinn í Arborg, útskrifaðist
úr Science deild Manitoba
háskóla 1956, og var því næst
tvö ár á Sumatra eyjunni,
áður en hann fluttist til
Tripoli.
Móðir hans, Mrs. Elín Ein-
arsson á heima í Arborg, en
faðir hans var Guðmundur Ó.
Einarsson, ágætur hagyrð-
ingur sem margir eldri ís-
lendingar kannast við, og er
David yngstur af tíu börnum
þeirra hjóna.)
Per Jakobsson látinn
Aðalbankastjóri Alþjóða-
bankans (International Mone-
tary Fund), Per Jakobsson
lézt nýlega á sjúkrahúsi á
Englandi. Jakobsson, sem var
fæddur í Svíþjóð, var talinn
einn af áhrifamestu hagfræð-
ingum þessarar aldar.
Þess má geta að hann var
tengdafaðir Björns Björnson,
konsúls íslands í Minneapolis.
Útskrifaður í tannlæknisfræði
Þessi ungi efnilegi tann-
læknir stundaði nám við há-
skólann í British Columbia í
Dr. Peler Gordon Roy
Thordarson
Sunnudagurinn 28. apríl
rann upp sólbjartur og fagur.
Þegar ég kom inn í borðsalinn
hér á Höfn til að borða morg-
unmatinn, fannst mér að
blessað sólskinið endur spegl-
ast í andlitum fólksins sem
þar var inni, því að allir voru
brosandi og glaðir. En þetta
var líka hátíðisdagur á Höfn,
því að það átti að vígja nýja
heimilið. Húsið var hreint og
glansandi — lifandi blóm hér
og 'þar í körfum, og vistmenn
spari klæddir.
Eftir miðjan daginn þyrftist
fólk að úr öllum áttum, sjálf-
sagt fjögur til fimm hundruð
manns. Klukkan tvö, safnaðist
hópurinn saman úti á pallin-
um, og þar í kring, og við
fram dyr hússins. „Karlakór
ísl. í Vancouver" söng „O
Canada“ og „Ó Guð vors
lands“. Mr. Sigurður Sig-
mundson setti mótið með við-
eigandi ávarpi. Stuttar ræður
fluttu þeir Mr. J. S. Johnson
forseti elliheimilis nefndar,
Mr. Frank Frederickson sem
kom fram í fjarveru borgar-
stjóra, Mr. Ratbie, Mr. John
Sigurdson consull Isl., séra
Ingþór Indriðason flutti bæn.
Því næst kom Mrs. Emily
Thorson fram og klippti í
sundur silkiband er var fyrir
dyrum hússins, sem tákn þess
að nú væri þetta heimili form-
lega opið. Var svo gengið í
bæinn að- skoða heimilið, og
þiggja ágætar kaffiveitingar
sem Sólskins konur báru fram
fyrir alla.
Ég vildi að ég gæti lýst
heimilinu fyrir ykkur. Þið
hafið séð myndina af því sem
þrjú ár 1955—1958, innritað-
ist síðan í tannlásknisdeild
Manitoba háskólans og lauk
prófi í þeirri grein 1962 með
hæztu einkunn háskólans í
Pedodontics og Orthodontics,
en áður hafði hann hlotið
Dental Service Scholarship.
Hann er nú í þjónustu Heil-
brigðisdeildar British Colum-
bia fylkis og starfar við
barnatannlækningar, en hygg-
ur til hærra náms í sinni
grein innan skamms.
Roy er sonur Sigríðar og
Theodors Thordarson í Van-
couver. Hann kvæntist Miss
Nancy Clarke í ágúst 1960, en
það ár lauk hún B.A. prófi
við British Columbia háskól-
ann.
kom í Lögberg-Heimskringlu
fyrir nokkru. Húsið stendur
á stórri lóð, hærri að norðan
en hallast móti suðri. Það er
búið að slétta blettin allt í
kring, og sá grasfræi, og
planta smá trjám, sem fer
vel. Það er komið að húsinu
að norðan, en aðaldyr snúa í
austur. Þegar gengið er inn,
kemur maður í stóran forsal,
og þar inn af er gangur með
herbergjum til beggja hliða.
Skrifstofa og herbergi for-
stöðukonunnar er til hliðar
við forstofuna. Af þessari
hæð eru 2 stigar niður á aðal
gólfið, þar er stór salur, sem
er bæði setustofa og borðsal-
ur. í stofunni eru þægilegir
húsmunir, teppi á gólfinu,
T.V.-tæki, píanó o. s. frv. Þar
stendur líka stór og vönduð
Grandfather’s clock, gjöf sem
heimilinu barst við þetta
tækifæri frá Mrs. Lil Sum-
mers, í kærri minningu um
eiginmann hennar Mr. Leif
Summers. Mr. Summers dó
13. apríl 1954, hafði þá verið
forseti heimilis nefndar í tvö
ár, og unnið af trúmennsku
heimilinu í hag. Á þessari hæð
er líka eldhúsið, mjög full-
komið og hentugt. Til vinstri
handar á móti borðsalnum er
aftur gangur, með herbergj-
um til beggja hliða. Á neðstu
hæðinni eru einnig herbergi
sem búið er í, og þar eru
einnig 18 herbergi og stór
salur sem er enn ekki full-
smíðuð, en vonandi verður
það gert svo fljótt sem efni
leyfa, og þá munu verða 46
herbergi alls. Sem stendur
eru hér 41 vistmenn, og starfs-
fólk 9 manns.
Þessi dagur var að öllu leiti
dásamlegur. Margir góðir vin-
ir heilsuðu upp á okkur með
einlægum blessunar óskum.
Um kvöldið þegar allir voru
farnir heim til sín, sat ég ein
og hugsaði til þeirra sem áttu
upptökin að hugsjón þessa
íslenzka elliheimilis. Ég nefni
engin nöfn, það eru svo marg-
ir, bæði konur og menn sem
hafa unnið vel og lengi þessu
heimilismáli til eflingar.
Margir þeirra eru okkur
horfnir — komnir heim. Enn
við sem njótum þess að búa í
þessu fallega heimili, viljum
af hjarta og einlægni þakka
þeim öllum sem með ósér-
plægni og kærleik hafa lagt
fram tíma sinn, krafta og efni.
Og þökk sé þeim öllum sem
hafa styrkt heimilið með
peningagjöfum, fyrr og síðar.
Fyrir eiginhönd — og fyrir
hönd okkar allra hér á Höfn,
„hjartans þökk“!
Guðlaug Jóhannesson.
Hlýtur National Research
Council námstyrk
Vorið 1961 var skýrt frá því
hér í blaðinu að þessi frábæri
námsmaður hefði hlotið
A t h 1 o n e Fellowship til
tveggja ára framhaldsnáms í
Civil Engineering við Im-
perial College í London. Nú
hefir National Research Coun-
cil of Canada veitt honum
$2,400 til frekari rannsókna í
eitt ár í Concrete Technology
við sömu menntastofnun, og
ber það vott um hve mikils
álits hann nýtur, sem hæfi-
leikamaður í sérgrein sinni.
Foreldrar Oscars eru Guðni
og Aðalbjörg Sigvaldason, bú-
sett í Framnesbyggð í grend
við Arborg, Man.
Oscar Thor Sigvaldason
Fréttabréf frá Vancouver, B.C.