Lögberg-Heimskringla - 03.10.1963, Síða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 3. OKTÓBER 1963
7
VÍGSLA
Framhald írá bls. 4.
mikilli nákvæmni. Hvert at-
riði hafði verið skipulagt, og
ráðstafanir gerðar til að mæta
óvæntum erviðleikum sem
kynnu að stafa af veðurfari,
eða öðrum ástæðum. Auk
biskupsins, höfðu þeir pró-
fessorar guðfræðideildar Há-
skólans, Magnús Már Lárus-
son, formaður byggingar-
nefndar, og Þórir Kr. Þórðar-
son, dr. phil., lagt mikið á sig
í sambandi við allan undir-
búning. Fjölmennur söngkór
hafði verið æfður, nýju pípu-
orgeli komið fyrir, lúður-
þeytarar voru þar, og menn
sem höfðu verið æfðir til að
hringja hinum mörgu og stóru
klukkum í turni kirkjunnar.
Útvarpstækjum og hljómber-
um hafði verið komið fyrir,
sömuleiðis var þar sjónvarps-
vél, og telex. vél til frétta-
þjónustu. Fjöldi útlendra
gesta voru viðstaddir, á meðal
þeirra biskupar frá Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi. Sá sem hér segir
frá naut einnig þeirrar
ánægju að vera viðstaddur,
sem fulltrúi lúterskra Vestur
Islendinga. Þrátt fyrir frem-
ur óhagstætt veður fyrri hluta
dagsins, taldist lögreglunni
svo til að á milli fimm og sex
þúsund manns hafi verið á
staðnum þennan dag. I kirkj-
unni gátu þó aðeins rúmlega
fjögur hundruð mans fengið
sæti. En mannfjöldinn sem úti
var hlustaði á athöfnina með
aðstoð hátalara. Skömmu áður
en athöfnin hófst braust sólin
í gegn um regnskýin, og sló
gullnum bjarma á kirkjuna.
Mörgum þótti þetta góðs viti,
og töldu að þannig væri
blessun frá hæðum lýst yfir
daginn, og verkið sem hér
hafði verið unnið.
Laust eftir klukkan tíu gekk
forseti íslenzka lýðveldisins,
herra ' Ásgeir Ásgeirsson til
kirkju, ásamt fylgdarliði sínu.
Um leið samhringdu kirkju-
klukkurnar, lúðraþytur hvað
við af svölum kirkjunnar,
nýja kirkjuorgelið hljómaði
stórfenglega í höndum dr.
Páls ísólfssonar. Meðlimir
stjórnarráðs, og fulltrúar er-
lendra ríkja komu næst, og
allir tóku sér fyrirfram ákveð-
in sæti í hliðarstúku kirkj-
unnar. Skrúðganga presta var
skipulögð í íbúðarhúsi staðar-
ins. Gengu þeir tveir og tveir
saman, um áttatíu alls, klædd-
ir hempum og krögum. Síð-
astir komu biskupar í skraut-
klæðum, fulltrúi Vestur ís-
lendinga, sóknarnefnd Skál-
holtsstaðar, sóknarpresturinn,
séra Guðmundur Óli Ólafsson,
og séra Jón Auðuns, dóm-
prófastur, og gekk hann
fremstur. Biskup Islands gekk
fyrstur í kór, en hinir biskup-
arnir tóku sæti sitt hvoru
megin við altarið. Sigurbjörn
biskup söng messu frá háalt-
ari, og flutti þar einnig vígslu-
ræðu sína, en vígsluvottar
lásu ritningarorð hver á sinni
tungu. Biskup ákvað að
vígsluvottur Vestur ísledinga
skyldi lesa tilvalin ritningaorð
á íslenzku, og var honum ljúft
að verða við þeim tilmælum.
Að lokinni vígsluathöfn, fór
fram altarisganga. Þá var
ræðustóll dreginn fram og
forseti Islands steig á kórpall
og flutti ræðu. Minntist hann
sögu staðarins, og þess hlut-
verks sem hqr hafði verið
unnið íslenzkri menningu.
Einnig lét hann í ljós ánægju
sína og allrar þjóðarinnar í
tilefni af hinum nýju fram-
kvæmdum. Þá kom kirkju-
málaráðherra, Bjarni Bene-
diktsson, dr. jur. fram og flutti
ræðu, um leið og hann af-
henti biskupi landsins Skál-
holtsstað, eins og fyrr var um
getið. Sigurbjörn biskup flutti
þá ræðu þar sem hann þakk-
aði ríkinu í nafni kirkjunnar
fyrir afhending staðarins.
Einnig þakkaði hann útlend-
um gestum fyrir komuna og
aðstoð þeirra við vígsluna.
Flutti hann ræðu sína, á fjór-
um tungumálum, án þess að
fipast í nokkru. Beindi hann
nokkrum orðum á móðurmáli
til Vestur Islendinga, og sagði
meðal annars: „Þeir eiga allt
með okkur.“ Samt flutti
fulltrúi þeirra engar gjafir,
aðeins orð!
Athöfnin stóð yfir í hálfan
þriðja klukkutíma. Hún var
að allra dómi, sem á minntust,
mjög fögur og áhrifamikil.
Söngflokkurinn, undir stjórn
dr. Róberts Ottósonar, söng-
málastjóra, leysti sín hlutverk
af hendi við mikla hrifningu
áheyrenda. Séra Hjalti Guð-
mundsson fyrrum prestur að
Mountain, N.D., sem var með-
limur söngflokksins, söng ein-
söngva í nokkrum atriðum.
Hin hreina og sterka tenór
rödd hans naut sín mjög vel í
hinum - stóra sal, og var
unaðsleg á að hlýða.
Klukkkan þrjú síðdegis var
önnur guðsþjónusta haldin í
kirkjunni við mikla aðsókn.
Hinn mikilsvirti dr. Bjarni
Jónsson, fyrri dómprófast-
ur og dómkirkjuprestur í
Reykjavík þjónaði fyrir altari,
en sóknarpresturinn, séra
Guðmundur Ólafsson flutti
prédikun. Nokkur börn voru
skírð við þessa guðsþjónustu,
þeirra á meðal stúlka sem
hlaut nafnið Ragnheiður, eftir
samnefndri dóttur Brynjólfs
biskups.
Að lokinni vígsluguðsþjón-
ustunni var dagverður fram
borinn að Aratungu, alllanga
leið frá Skálholti. Sátu þar
mörg hundruð manns að borð-
um í einu, og var veitt af
mikilli rausn. Er síðdegis-
guðáþjónustan var afstaðin,
safnaðist fólk saman á ásnum
fyrir vestan Skálholt, og fór
þar fram athöfn sem boðar
það sem verða skal. Stakk
biskup þar fyrstu skóflu-
stunguna að grunni skóla-
byggingar sem þar á að reisa
innan skamms. Séra Haralc
Hope, norskur Islandsvinur
afhenti þá biskupi ávísun, að
upphæð 200 þúsund norskar
krónur, sem hann hafði safnað
meðal vina og velunnara
Skálholts í heimalandi sínu,
„til þess að þið hafið eitthvað
til að byrja með,“ eins og hann
komst að orði. Bæði félög og
einstaklingar meðal frænd-
Djóðanna á norðurlöndum
hafa gefið Skálholtskirkju
margar dýrmætar gjafir. Dan-
ir gáfu pípuorgelið, gler-
myndaglugga, Ijósatæki, stóla
og peninga til skreytingar
kirkjunnar innanhúss. Norð-
menn gáfu allmikið af bygg-
ingarefni, þakskífur og hurð-
ir. Svíar gáfu tvær voldugar
kirkjuklukkur. Ennfremur
gáfu Norðmenn, Danir og
Svíar sína kirkjuklukkuna
hver. Færeyingar gáfu fork-
unnar fagran skírnarfont,
'iöggvinn úr steini. Á mánu-
dagskvöldið eftir kirkjuvígsl-
una hélt kirkjumálaráðherra
mikla veizlu í Sjálfstæðis-
húsinu. Þar voru tilkynningar
gefnar um ýmsar fleiri gjafir,
svo sem bókasafn fyrir hinn
fyrirhugaða skóla, og fleira.
öldruð hjón í Winnipeg,
Guðrún Grímsdóttir og Ágúst
Eyjólfsson sendu fimm hundr-
uð dollara, sem persónulega
gjöf til staðarins. Þótti ýmsum
sem á það minntust þeim
hjónum farast stórmannlega.
Er lokið var helgiathöfnum
á Skálholti, var ekið til Þing-
valla, þar sem Geir Hall-
grímsson borgarstjóri Reykja-
víkur bauð fólki til kvöld-
verðar að Valhöll. Er þangað
kom, flutti sóknarpresturinn
séra Eiríkur J. Eiríksson
fyrirlestur um Þingvöll og
Lögberg. Var þar lengi setið,
og skemmtu menn sér við
matföng og samræður.
Á mánudaginn hafði forseti
íslands og frú síðdegisboð
fyrir stóran hóp innlendra og
útlendra gesta að Bessa-
stöðum. Var fyrst gengið
í kirkju staðarins, þar sem
forseti flutti stutt erindi, og
dr. Páll ísólfsson spilaði
nokkur lög á orgelið. I ræðu
sinni rakti forseti sögu stað-
arins í stuttu máli, og skýrði
einnig táknmál og myndir í
gluggum kirkjunnar. Var síð-
an gengið í viðhafnarstofu
forsetahjónanna þar sem veit-
ingar voru bornar fram eins
og hver vildi.
* * *
Nýr kapituli er að hefjast í
sögu Skálholtsstaðar. Hvað í
hann verður skráð mun sagan
sýna, en miklar vonir eru við
staðinn tengdar. Á fundi
kirkjuráðs, sem haldinn var
nýlega, undir forystu biskups,
var ákveðið að vinna að því
„að Skálholt verði alhliða
menningarmiðstöð og aflvaki
í kristnilífi þjóðarinnar."
Fyrsta skrefið sem taka ska
í því augnamiði er að koma
þar upp Lýðháskóla, sem að
því er námsgreinar snertir
standi utanvið hið fyrirskip-
aða skólakerfi landsins, en
verði sniðinn eftir norrænum
fyrirmyndum. Er einnig gert
ráð fyrir að um síðir rísi þar
upp almennur menntaskóli á
kristilegum grundvelli,
frammhaldskóli fyrir presta
og miðstöð fyrir æskulýðs-
starfsemi.
Vér, Vestur íslendingar höf-
um þegið dýra arfleifð frá
Skálholti, og hefir hún fylgt
oss fram á þennan dag allt 1
þriðja og fjórða lið. Vér hljót-
um að samgleðjast bræðrum
vorum á Islandi í tilefni af
endurreisn staðarins, og óska
þess að sameiginleg arfleifð
vor, sem þaðan er runn-
in megi verða íslenzku þjóð-
inni til blessunar í nútíð
og framtíð. Vér ættum enn-
fremur að votta þakkir á til-
hlýðilegan og ákveðinn hátt
fyrir þann erfðahlut sem til
vor er runninn. Sannarlega
væri það maklegt, og oss til
sóma, ef vér nú tökum hönd-
um saman sem Vestur ís-
lendingar, og berum fram ríf-
legt offur og leggjum það á
altari hins nýja menningar-
musteris sem nú gnæfir við
himin, í veruleika, og vonum,
allra góðra íslendinga, á
Skálholtsstað.
Islenzkar kindur
UMBOÐSMAÐUR LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU
á
ÍSLANDI
SINDRI SIGURJÓNSSON póstafgreiðslum.
P.O. Box 757, Reykjavík
Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á ári.
Subscription Blank
NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
303 Kennedy St., Winnipeg 2.
I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip-
tion to the Icelandic Weekly, Lögberg-Heimskringla
NAME ...........:...’.....................
ADDRESS ..................................
Service — Satisfaction
Your Federal Grain Agent welcomes
the opportunity to discuss the follow-
ing with you:
GRAIN CEREAL GRAIN SEED
MALTING BARLEY COAL
SELECTED OATS
AGRICULTURAL CHEMICALS
OIL SEEDS—Rapeseed, Mustard Seed
13
C R A I N L I M I T E D
...1 «1«- <V .<= .0,)»