Lögberg-Heimskringla - 24.10.1963, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 24. OKTÓBER 1963
S
Litíð um öxl
Úidræltir úr Lögbergi og Heimskringlu
írá fyrri árum
Valið hefir
Dr. Þorvaldur Johnson
— Business and Professional Cards —
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forseii: SÉRA PHILIP M. PÉTURSSON,
681 Banning Street, Winnip>eg 10, Manitoba.
Siyrkið félagið með því að gerasi meðlimir.
Ársgjald $2.00 — Tímarii félagsins fríii
Sendist til fjármálaritara:
MR. GUDMANN LEVY.
185 Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba
Phone WHiteholl 3-8072
Úr Heimskringlu,
22. okióber 1903:
Skáldkonan
MRS. DISNEY LEITH
er hinn fyrsti Englendingur,
sem hefir þýtt nokkuð sem
nemur af nútímakvæðum
okkar Islendinga á enska
tungu. Hún hefir dvalið sjö
sumur á Islandi, og er því vel
kunnug landinu og mörgum
hinna framúrskarandi manna
þar. Þó hún virðist hafa einna
mest álit á Grími Thomsen,
eru langflestar af þýðingunum
eftir Steingrím. í bókinni
„Verses and Translations“
eru alls 15 kvæði eftir Stein-
grím, 3 eftir Hallgrím, eitt
Fréttir írá íslandi
Framhald frá bls. 2.
þarna er verið að minnast.
Hugmyndina að minnis-
merkisgerð þessari átti Jó-
hann Briem listmálari, en í
i söngför til Skálholts hinn 11.
ágúst síðast liðinn ákvað
söngkór Akraneskirkju, sókn-
arnefnd og annað starfsfólk
kirkjunnar að koma henni í
framkvæmd, og gáfu Jón Sig-
mundsson sparisjóðsgjaldkeri
og kona hans fyrstu gjöfina
til þess. Krossinn smíðaði
Ingi Guðmonsson- skipasmið-
ur á Akranesi.
Þegar krossinn var reistur
á þriðjudaginn var, voru þar
viðstaddir nokkrir menn, m.
a. biskupinn herra Sigurbjörn
Einarsson, séra Sigurjón Guð-
jónsson prófastur í Saurbæ og
séra Jón M. Guðjónsson á
Akranesi, sem verið hefur
helzti forgöngumaður þess,
að minnismerkið var reist.
Þegar gengið hafði verið frá
minnismerkinu, flutti biskup-
inn ávarp og las valinn kafla
úr predikunum meistara Jóns.
Við þjóðveginn, hið næsta
auðkenni þessu, var um leið
reist vegarskilti með nafninu
Biskupsbrekka.
☆
Fisksölur landsmanna
ganga nú með afbrigðum vel,
og virðist mætti selja marg-
falt það magn, sem á boð-
stólum er. Sem dæmi má
nefna, að SIS gæti selt helm-
ingi meira af frysta fiskin-
um, sem er lang verðmætast-
ur, en frystihúsin fá ekki
nægilegt magn til vinnslu.
eftir Bjarna, eitt eftir Jónas,
eitt eftir Grím, eitt eftir
Hannes (Hafstein) og eitt
eftir Þorstein (Gíslason).
Þýðingar Mrs. Leith’s hafa
að vísu tekist nokkuð mis-
jafnt og munu flestar þeirra
standa að baki frumkvæð-
anna; efninu er alstaðar ná-
kvæmlega fylgt, en líklega
hefði þýðingin orðið betri ef
ekki hefði verið svo náið farið
eftir frumkvæðunum . . .
Vilhjálmur Stefánsson.
(Fimm kvæðanna eru prent-
uð í þessu blaði. Fyrsta erindi
af kvæði Steingríms „Ég
elska yður þér íslands fjöll“
er á þessa leið:)
Góðar horfur eru í skreiðar-
sölum og feikileg eftirspurn
eftir saltfiski, og allir mark-
aðir tómir erlendis. — Síldar-
mjöl og lýsi voru í lágu verði
framan af, en hvoru tveggja
rýkur nú út á góðu verði.
Sama máli gegndi um fiski-
mjölið, en það er nú mest allt
farið úr landi.
Tíminn 13. okt.
☆
Ráðnir læknar við
Borgarsj úkrahúsið
Borgarráð samþykkti í dag
að veita Friðriki Einarssyni
lækni stöðu yfirlæknis hand-
lækningadeildar Borgar-
sjúkrahússins í Fossvogi og
Ásmundi Brekkan lækni
stöðu yfirlæknis röntgendeild-
ar sama sjúkrahúss.
Tíminn 12. okt.
☆
Skreppa í búðir í Glasgow!
Ólýgin sagði okkur, að fyrir
nokkru hefðu 27 íslenzkar
konur verið samankomnar á
einu og sama hótelinu í Glas-
gow, og hefðu þær allar verið
þar í viku verzlunarferð.
Verzlunarferðir til Skot-
lands eru feikna vinsælar hjá
konum, og mun ein ferða-
skrifstofa hér í Reykjavík
auglýsa slíkar ferðir. Kosta
þær 5870 kr. og í þeirri upp-
hæð er innifalið fargjaldið
fram og til baka, uppihald á
hóteli í Glasgow og járn-
brautarmiði til Edinborgar.
Met eru til í þessum ferð-
um sem flestu öðru og er það
50 manns með einu og sömu
vélinni, en það vár sett ein-
hvern tímann á síðasta ári.
Fari menn til Glasgow kost-
ar miðinn fram og til baka
4658 kr., þegar lágu fargjöld-
in eru í gildi, en annars 5729
að viðbættum söluskatti, og
þá má segja, að allt annað
verði frítt.
Tíminn 11. okt.
☆
Handrilahúsið
Nú hefur verið ákveðið að
Handritastofnuninni verði
reist hús á Háskólalóðinni
austan Suðurgötu, í stað þess
að hún verði látin bíða eftir
að fá aðsetur í bókasafnshúsi
því, sem ætlað er að verði
staðsett vestan götunnar á lóð
þeirri, sem Háskóli Islands
fékk að gjöf á 50 ára afmæli
sínu.
Próf. Einar Ólafur Sveins-
son forstöðumaður Handrita-
stofnunarinnar skýrði blaða-
mönnum frá þessari ákvörðun
á fundi í dag, og sagði, að það
væri aðeins fjarlægur draum-
ur að bíða þess, að Handrita-
stofnunin fengi inni í bóka-
safnshúsinu, því enn ætti al-
gjörlega eftir að skipuleggja
hina nýju lóð, og svo myndu
mörg ár líða, áður en húsið
yrði komið upp, og þangað til
stæði húsnæðisskorturinn
stofnuninni algjörlega fyrir
þrifum.
Tíminn 16. okt.
Building Mechanic’s Ltd.
Fainting - Dccorating - Construction
Renovating - Real Estote
K. W. (BILL) JOHANNSON
Manoger
384 McDermot Ave., Winnipeg 2
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur líkkistur og annast um
útfarir. Allur útbúnaður
sá bezti.
Stofnað 1894 SPruce 4-7474
Goodman And Kojima Electric
ELECTRICAL CONTRACTORS
384 McDermot Ave., Winnipeg 2
WH 2-7759
ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA
SP 2-5561 LE 3-4633
Evenlngi and Holidoys
SPruce 4-7855 ESTIMATES FREE
J. M. Ingimundson
Reroof, Asphalt Shingles, Roof repoirs,
install vents, aluminum windows,
doors. J. Ingimundson.
SPruce 4-7855
632 Simcoe St., Winnipeg 3, Man.
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar
I love ye, Iceland’s mountain tracts,
Bright brows above blue heather soaring,
Ye dales and lithes and cataracts,
And reefs mid billows hoarsely roaring.
I love the land all clad in summer green,
I love it in its snowy winter sheen,
When bright at even
The vault of heaven
With twinkling northern lights is flashing.