Lögberg-Heimskringla - 17.09.1964, Qupperneq 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 17. SEPTEMBER 1964
3
— Business and Professional Cards —
Viðlal við dr. Bjarna
Framhald frá bls. 2.
þó verið vestra í 2—3 kyn-
slóðir, og það mæti mjög mik-
ils tengsl sín við ísland.
„Þó mér hafi persónulega
verið tekið mjög vel, hvar
sem ég fór“, sagði forsætis-
ráðherra, „vil ég taka það
fram, að mér var fyrst og
fremst fagnað sem fulltrúa
þjóðarinnar. Ég get ekki á
stuttum fundi gert fulla grein
fyrir ferðalaginu öllu, þótt ég
muni e.t.v. gera það síðar, en
mér finnst staða íslendinga
vestanhafs og það álit sem
þessi fámenni hópur hefur
aflað sér þar, svo merkileg,
að á því væri vert að vekja
athygli. Það er mikils vert
fyrir land okkar að eiga þarna
svo marga trygga vini, marga
hverja í trúnaðarstöðum.
Þetta er akur, sem við eigum
að plægja, en láta ekki falla
í órækt. En við verðum einnig
að láta Vestur-lslendinga
verða vara við áhuga og vel-
vild af okkar hálfu.“
Þá gat forsætisráðherra
þess, að sér hefði, sem full-
trúa lands og þjóðar, verið
mikil virðing sýnd af kana-
dískum stjórnvöldum, og
einnig bandarískum. Hann
kvað heimsókn sína til Wash-
ington hafa verið óformlega.
Hann hefði átt leið um land-
ið, og hefði verið boðinn til
Washington í sambandi við
það. Kvað dr. Bjarni þetta ó-
rækan vott virðingar af hálfu
Bandaríkjanna fyrir landi og
þjóð.
Hann kvaðst og vilja geta
þess, að auk þess, sem Loft-
leíðir hefðu boðið þeim hjón-
um ferðina vestur um haf,
hefði félagið einnig boðið
þeim allar flugferðir innan
Kanada og Bandaríkjanna.
Forsætisráðherra var spurð-
ur um heimsókn hans 1 Hvíta
húsið. Hann sagði að þeir
Johnson forseti hefðu spjall-
að um daginn og veginn, en
engin vandamál borið á
góma, enda hefði ferðin ekki
verið farin til þess. Hinsveg-
ar hefði Dean Rusk svarað
öllum spurningum sínum
varðandi ástandið í alþjóða-
málum í hádegisverðarboði
utanríkisráðherrans.
Þá sagði forsætisráðherra:
„Það er ótrúlegt, hvað ég
hitti marga menn vestra, sem
komið höfðu til íslands. Er
Johnson forseti heilsaði fólk-
inu fyrir utan hliðið á Hvíta
húsinu, þá var þar fyrir miðju
maður, sem kvaðst hafa verið
í tvö eða þrjú ár á íslandi á
stríðsárunum, og lét vel yfir
dvölinni".
Loks gat forsætisráðherra
þess, að Grettir Johannson,
ræðismaður, og kona hans
hefði fylgt þeim hjónum á
ferðalaginu í Kanada, og lagt
á sig mikið erfiði við fyrir-
greiðslu. „Ég get ekki nóg-
samlega rómað viðtökur allar
vestanhafs,“ sagði forsætis-
ráðherra að lokum. „Svo
margir lögðu sig fram við að
gera ferð okkar sem ánægju-
legasta að þeir verða ekki
upp taldir, né heldur hinir,
sem báðu fyrir kveðjur og
góðar óskir hingað heim“.
Mgbl. 29. ágúst.
Fréttir frá íslandi
Hákarl ræðst á bát
Höfn, Hornafirði 26. ágúst.
— Sá óvenjulegi atburður
gerðistær m.b. Hafbjörg NK 7,
sem stundar humarveiðar frá
Höfn, var að enda við að
draga inn humartrollið, að
mjög harður hnykkur kom á
bátinn og hélt skipstjórinn, að
bátur hefði siglt á skip sitt.
Raunin var önnur. Stór og
mikil skepna hafði hlaupið
upp á bátinn og brotið rekk-
verkið og vatnafestingu og
gátu skipsmenn ekki greint
annað en að þetta mundi vera
hákarl. Allt gerðist þetta með
leifturhraða og fór hákarlinn
út af hinni hlið bátsins. Haf-
björg er 25 smálestir. Segir
skipstjórinn, Ari Sigurjóns-
son, að hefði slíkur atburður
gerzt fyrr færu engar sögur
af honum.
Humarveiðin er frekar treg,
en mikið virðist vera af síld
á miðunum og mun hún senni-
lega vera smá.
☆
Stór bruni
Milljónatjón varð í gær í
Reykjavík, er mjölskemma við
fyrirhugaða síldarverksmiðju
Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunnar á Grandagarði
áður Faxaverksmiðjan, gjör-
eyðilagðist í elsvoða. — Hafði
Eimskipafélag Islands hluta af
skemmunni á leigu undir
ýmsan varning, m.a. plastefni,
hamp, pappír og hjólbarða,
en í hinum hlutanum voru
vélar úr síldarverksmiðjunni.
Talið er, að neisti úr útblást-
ursröri vörulyftu hafi tendr-
að eldinn, sem magnaðist óð-
fluga. Lagði mikinn, kolsvart-
an reykjarmökk yfir Reykja-
vík og átti slökkviliðið í erfið-
leikum með að athafna sig
sakir reyks og hita. Stóð
slökkvistarfið yfir í sex tíma
og tóku þátt í því milli 50 og
60 slökkviliðsmenn. Standa
gaflar skemmunnar enn uppi,
en segja má að allt annað
hafi brunnið til kaldra kola.
Fró Vancouver, B.C.
Framhald frá bls. 1.
Hambley spilaði á orgelið.
Consul ísl. Jón Sigurdson
sýndi gestunum svo kirkjuna,
sem er mjög fagurt Guðs hús,
og vönduð bygging að öllu
leiti.
Að Höfn
En nú var komið kvöld, og
var nú keyrt með gestina á
Höfn, þar sem kvöldverður
beið þeirra. Og mikið vorum
við öll hér á heimilinu búin
að hlakka til að mæta for-
sætisráðherranum Bjarna, og
frú Sigríði, og Birni, og þá
líka Consul Gretti og frú
Lalah. Allir voru hér spari-
klæddir í sitt bezta, „og gleð-
in skein á vonar hýrri brá“.
Þegar gestirnir höfðu borð-
að kvöldverðin, komum við
öll — heimilisfólkið, inn í
stóra salinn og voru þá born-
ar í kring kaffiveitingar fyrir
alla. Mr. J. S. Johnson, forseti
heimilisnefndarinnar, reis úr
sæti og kynnti gestina fyrir
okkur og bauð þá velkomna,
og bað síðan forsætisráðherra
Bjarna að koma fram, og
flutti hann þá mjög fallega
ræðu. Það var eitthvað svo
undur bjart og hlýlegt, allt
sem hann sagði, að mér er
óhætt að segja áð við vorum
hrifin!
Svo gengu þessir gestir,
forsætisráðherrann Bjarni, frú
Sigríður og Björn, og þau
Consul Grettir og Lalah
mann frá manni, allt í kring
um salinn, heilsuðu öllum
með handabandi, og töluðu
stundar korn við hvern og
voru ekkert að flýta sér. Ég
veit að mér er alveg óhætt að
þakka þeim innilega fyrir
komuna á Höfn — sú stund
verður okkur ógleymanleg,
hin fagra ræða, og hið hlýja
og innilega viðmót þeirra var
sannur sólargeisli. Það var
líka gaman að hitta Johann-
son’s hjónin aftur — ég var
þeim dálítið kunnug í Winni-
peg. Vissulega er Consull
Grettir Johannson glæsilegur
fulltrúi íslendinga hér í álfu
— eins og faðir hans var á
undan honum.
Guðlaug Jóhannesson.
Framhald.
VIÐ KVIÐSLITI
Þjáir kviOslit yOur? Fullkomin
lækning og velliöan. Nýjustu aO-
ferðir. Engin teygjubönd eða viðj-
ar af neinu tagi.
SkrifiO SMITH MFG. Company
Dept. 234. PrMlon. Onl
0ff. SP 2-950»—SP 2-9500
Rh SP 4-4751
OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL
Nell’s Flower Shop
700 NOTRE DAME
Wvddlnfl Bouqunts - Cut Flowort
Funorol Doaignt - Coroogos
Boddinfl Plants
S. L. Stofanooo—JU 6-7229
Mn. Albort J. Johnoon
ICELANDIC SPOKEN
Goodman And Kojima Electric
ELICTRICAL CONTRACTORS
384 McDermot Ave., Winnipeg 2
WH 2-7759
ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA
SP 2-5561 LE 3-4633
Erenings ond Holidayt
Benjaminson
Construction Co. Ltd.
911 Corydon Avenue
GR 5-0498
GENERAL CONTRACTORS
Residential ond Commorciol
E. BENJAMINSON, Monogor
ASCEIRSON
Points & Wallpapers Ltd.
696 SARGENT AVE.
Builders' Hardware, Points,
Varnishes, Wallpapers
SU 3-5967—Phonflfl—SU 3-4322
Canadian Hsh Producers Ltd.
J. H. PAGE, Monaging Dlrector
Wholesale Distributors of Frooh ond
Frozon Flsh
111 CHAMBERS 5TREET
Offieo: Bus.:
SPruco 5-04(1 SPruco 2-1917
FRÁ VINI