Lögberg-Heimskringla - 08.09.1966, Qupperneq 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 8. SEPTEMBER 1966
Úr borg og byggð
Mr. og Mrs. Magnús Elíasson
í Winnipeg eru nýkomin heim
úr ferðlagi til Toronto, Ottawa
og Montreal. Mrs. Elíasson var
ein af þremur konum frá
Manitoba, sem sátu kvenna-
þing Democratic Party í Port
Elgin, Ontario um miðjan
ágústmánuð.
Mr. og Mrs. Elíasson heim-
sóttu hið • margumtalaða nýja
Borgarráðshús í Toronto og
þótti þeim það vera stór-veg-
leg bygging. Er hún byggð á
finnlenzkan hátt. Einnig sóttu
þau hina árlegu sýningu Tor-
onto-borgar. Frá Toronto til
Montreal ferðuðust þau með
hinni nýju Canadian National
farþegalest, sem kölluð er
„Rapido“; er þetta hraðskreið-
asta milliborgalest í Norður-
Ameríku; fer hún 385 mílurn-
ar á milli borganna á einni
mínútu innan við fimm
klukkustundir, og nemur þó
staðar á tveimur stöðum á
leiðinni.
í Montreal sáu þau margar
breytingar, Sem orðið hafa á
síðastliðnum 10 árum; margar
stórbyggingar hafa risið upp
þar sem gamlar byggingar
hafa verið rifnar niður. Hæsta
bygging þar er Canadian Im-
perial Bank of Commerce, sem
er 45 hæðir. Þegar upp í bygg-
inguna er komið sést yfir alla
borgina, nema þann hlutann,
sem er fyrir norðan fjallið. Er
þetta hæsta bygging í brezka
heimsveldinu.
Mikinn undirbúning sögðu
þau vera í Montreal í sam-
bandi við aldarafmælissýning-
una, er verður hér í Canada á
næsta ári. 1 Ottawa stönzuðu
þau aðeins einn dag til að
heimsækja vini og kunningja.
* * *
Jon Sigurdson Chapier
I.O.D.E. will hold its annual
Fall Tea in the T. Eaton As-
sembly Hall, 7th floor, Satur-
day Sept. lOth from 2 to 4.30
p. m. — There will be a sale
of home cooking, handicrafts
and novelties.
Everybody is cordially in-
vited.
* * *
Ólafur Halldórsson, er stund-
ar hér nám við Manitoba
Institute of Technology skrapp
með Loftleiðum heim til Is-
land í lok júnímánaðar í heim-
sókn itl forefdra sinna á ísa-
firði. Hann vann einnig tvo
mánuði við endurvarpsstöðv-
ar hins væntanlega sjónvarps
á Islandi. Hann kom aftur á
miðvikudaginn til aÖ ljúka
námi sínu.
* * *
Winnipegvaln hækkaði stór-
lega um helgina og flæddi yfir
veginn, sem liggur þvert yfir
Mikley til ferjunnar og
skemmdi hann talsvert. Það er
aðallega þegar blæs á norðan,
að hækkar í vatninu.
* * *
Ef einhver íslendingur hefir
ort Ijóð og samið lag við það,
vildi Mrs. Krisline ('Benson)
Kristofferson, Gimli, Man.,
gjarnan taka það á segulband
fyrir Canada Museum Board.
Slíkt er talið „folk music".
Dónarfregnir
Guðmundur Kristján Breck-
man, 286 Ainslie, St. James,
lézt 4. sept. 1966, 69 ára að
aldri. Hann var bóndi að Oak
Point, Man., en hafði átt heima
í Winnipeg síðan 1963. Hann
lifa kona hans Clara, þrír syn-
ir, Verne, Kris og Cameron;
tvær dætur, Lavinia — Mrs.
Charles Allan og Miss Mar-
garet Breckman, öll í Winni-
peg; þrír bræður, Walter og
Joe að Lundar og George í
Fort William; fjórar systur,
Mrs. Bina Ingimundson og
Miss Thelma Eyford í Winni-
peg, Mrs. Margaret Mack,
Prince Rupert, B. C. og Krist-
ín Stefanson, Selkirk. Útförin
fór fram frá Bardals, og Dr.
V. J. Eylands jarðsöng.
* * *
Guðrún Einarsson, kona
Benny Einarsson og systir Mrs.
Kristínar Smith í Vancouver,
andaðist í Reykjavík 2. sept.
1966.
* * *
Guðný Thorkelson lézt 30.
ágúst 1966, 87 ára að aldri. Hún
var fædd í Camp Morton,
Man., og átti þar heima þar
til hún fluttist til Gimli fyrir
23 árum. Hún missti Guðmund
mann sinn árið 1945. Eftirlif-
andi eru þrír synir, Ágúst á
Gimli, Barney í Vancouver og
Júlíus í Levack, Ont.; þrjár
dætur, Sigurlín — Mrs. R.
Teetsel í New Mexico, Guðrún
— Mrs. G. Campbell í Victoria
og Gladys — Mrs. E. Harris í
St. James; einn bróðir, Tra-
verse Johnson á Gimli; tvær
systur, Mrs. Capitola Stefan-
son í Vancouver og Mrs. Clara
Halldorson í Selkirk; 36 barna-
börn; 45 barna-barnabörn.
* * *
Daniel Baldwin Backman,
Oak Point, Manitoba, andaðist
26. ágúst 1966. Hann missti
Hólmfríði konu sína í septem-
ber 1958. Eftirlifandi eru son-
ur hans Allen að Oak Point,
tvær dætur, Lillian — Mrs. W.
Harris, Winnipeg og Helga —
Mrs. R. Bartholmew í Toronto,
ein systir, Mrs. É. Spencer í
Winnipeg; einn bróðir, Bill, í
Vancouver, og 14 barnabörn.
Bakkar Nílar „fínkembdir"
á 130 km. svæði.
Fornlcifafræðingar frá 22
löndum hafa nú lokið við að
„fínkemba“ um 130 kílómetra
svæði á bökkum Nílar í hinni
súdönsku Núbíu til að bjarga
leifum fornra mannvirkja und
an vatni Assúan-stíflunnar. —
Þegar stíflunni er lokið, mun
vatnsborðið hækka um 65 m.
á þessu svæði.
Uppgröfturinn hefur leitt í
ljós, að í Núbíu var langæ
menning, en ekki bylgjur inn-
rásarþjóða, eins og menn hafa
álitið hingað til, segir dr.
William Adams, bandarískur
fornleifafræðingur, sem kom-
inn er til Parísar eftir sjö ára
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Héimili: 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku: kl. 9.45 f. h.
11.00 f.h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
dvöl á staðnum í þjónustu
UNESCO (Menningar- og vís-
indastofnunar S. Þ.).
Meiriháttar uppgröftur hef-
ur átt sér stað á 800 stöðum.
Vinnan norðantil — á svæð-
unum sem fyrst fara undir
vatn — er langt komin og
verður brátt lokið. Uppgröft-
urinn, sem eftir er sunnantil
á svæðinu, fer fram undir eft-
irliti annars fornleifafræðings
lcelandic I
At the Universiiy of Manitoba.
The Evening Instilute.
This course is designed for those who have little or no
ínowledge of Icelandic. Emphasis will be on fundamentals
of grammar, pronunciation, practical vocabulary and con-
versation.
A brief summary of the history of Iceland, its culture
and literature, as well as of Icelandic settlements in North
America, will be given.
Students should purchase the text: P. J. T. Glendening:
Teach Yourself Icelandic.
Twenty Mondays, beginning September 19th, 1966.
In the Arts Building at 8.00 p. m. — Phone: 4-9476.
Fee: $25.00; second member of a family: $18.00.
Lecturer: Professor H. Bessason.
The Johanna Gudrun Skaptason and the
Elinborg Hanson I.O.D.E. Memorial
Scholarships
The Jon Sigurdson chapter, IODE are offering two scholar-
ships for students with complete Grade XII standing, who
have been accepted as students in any faculty leading to a
degree at the University of Manitoba or its affiliated colleges.
The scholarships of $150.00 and $75.00 respectively are open
to anyone of Icelandic descent, and in addition to high schola-
stic standing consideration will be given to personal worth,
good citizenship and leadership potential.
Students interested should make application in writing
and include following information:
1. The marks obtained in Grade XII subjects this year.
2. The degree course planned.
3. High school activities and awards, if any
4. Reference: names of 3 citizens of the applicant’s com-
munity, one of whom is a school principal or teacher.
Application should be submitted before Sept. lOth to:
Mrs. P. H. Westdal,
frá UNESCO.
Einn forvitnilegasti forn-
leifafundurinn var koptísk
kirkja frá miðöldum, er pólski
leiðangurinn fann.
* * *
Frímerki, sem helgað verður
alþjóðakaffisáttmálanum frá
1962, kemur út hjá Sameinuðu
þjóðunum 19. september. Það
verður prentað í fjórum lit-
um. 5 og 11 centa merkin verða
gefin út í 2,2 og 2 milljónum.
AuSlegð þess óalgenga
Framhald af bls. 7.
hans eru að vísu skiptar skoð-
anir, sömuleiðis um verðgildi
hans — ýmsir nefna 4,300,000
krónur, aðrir 43,000,000. Há-
skóli einn á írlandi á handrit,
700 ríkulega myndskreyttar
síður, sem metið er á kringum
43,000,000 krónur.
Frægasta og dýrmætasta
fiðlan heitir „Messias- Stradi-
vari“ og fyrirfinnst á safni í
Oxford. Þótt hún sé orðin nær
þrjú hundruð ára gömul, hef-
ur aldrei verið spilað á hana.
Verðmæti hennar er metið til
8.600,000 króna. Stradivarius
smíðaði margar fiðlur og mun
ódýrari. Þér gætuð fengið „ó-
dýrari“ fiðlur eftir hann —
fyrir 258,000!
Sendibréf geta stundum kom-
izt í mikið verð. Frá banda-
ríska dómaranum Lynch staf-
ar ekki einungis sögnin „to
lynch“ (að lífláta án dóms og
laga), heldur einnig eitt sendi-
bréf — hið eina, sem vitað er
um frá hans hendi. Vilji mað-
ur kaupa það, eða annað bréf
eftir sjálfan Columbus, þarf
maður að geta séð af 8,600,000
Educational Secretary, Jon Sigurdson Chapter, IODE,
40 Garnet Bay,
Winnipeg 19, Manitoba.
Telephone: GL 2-6203.
krónum. Fyrir skrifborð eitt í
Pompadour-stíl borgaði safn-
ari nokkur 4,300,00 krónur. —
Það var smíðað af Savery ein-
hverjum, árið 1780, og er —
líkt og Antiokia-bikarinn — á
Metropolitan-safninu í New
York.
Edison hefði áreiðanlega ekki
trúað því, þótt honum hefði
verið sagt það, að litla kjafta-
maskínan, sem hann setti sam-
an og nefndi phonograph, yrði
einhverntímann metin á kr.
43,000,000. En að líkum læt-
ur — hún var sú fyrsta og al-
einasta sinnar tegundar.
Þyngsta perla heims fannst
í Persaflóa og vegur 606 karöt.
Verðmæti: 3,010,000 krónur. —
Enn dýrari eru þó konsert-
flyglar tveir, sem Steinway-
verksmiðjurnar smíðuðu úr
gulli og fílabeini einvörðungu.
Hið heimsþekkta fyrirtæki var
ósinkt og sendi báða flyglana
að gjöf til Hvíta hússins í
Washington. Varla má ætla,
að Johnson forseti láti vini
sína frá Texas trampa á þeim
meira en góðu hófi gegnir.
Heimilisblaðið.
EGGERTS0N & EGGERTS0N
Barristcrs, Solicitors and Notaries
500 Power Building Winnipeg 1# Man.
Phone WH 2-3149
at Municipol Office, Riverton
11:00 a.m. to 3:00 p.m.
at Credit Union Office# Gimli
4:00 p.m. to 6:00 p.m.
First ond Third Tuesdoys
ot Bifrost Office, Arborg
11:00 a.m. to 4:00 p.m.
First ond Third Fridays
BETEL HOME FOUNDATION
Stjómamefnd Betels fagnar þvl, að geta nú tekið á móti
umsóknum frá öldmðu fólki, er óskar inngöngu í nýja
heimilið, sem nú er verið að reisa i Selkirk, Manitoba,
Þetta nýja fullkomna heimili mun verða reiðubúið að taka
á móti 62 manns þann 1. apríl 1966 eða um það leiti.
Þeir sem óska inngöngu sendi skriflegar umsóknir til:
J. V. Jónasson, ritara,
133 Kit.snn Rt.. Winnines fi. Man.
Subscription Blank
NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
303 Kennedy St., Winnipeg 2.
I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip-
tion to the Icelandic Weekly, Lögberg-Heimskringla
NAME .......................................
ADDRESS ....................................