Lögberg-Heimskringla - 14.09.1967, Qupperneq 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 14. SEPTEMBER 1967
7
Frá Sameinuðu þjóðunum
Nýr forstjóri upplýsingaskrif-
stofu S, Þ. í Höfn
Framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna hefur skipað
Norðmanninn Dik Lehmkuhl
forstjóra upplýsingaskrif-
stofu samtakanna fyrir Norð-
urlönd, sem hefur aðsetur í
Kaupmannahöfn. Hann tekur
við af ívari Guðmundssyni,
sem skipaður hefur verið í
annað embætti hjá upplýs-
ingadeild aðalstöðvanna í
New York. Lehmkuhl tekur
við embættinu í september.
Dik Lehmkuhl er fæddur í
Osló árið 1914. Að loknu námi
í Noregi vann hann við kaup-
sýslustörf og blaðamennsku í
Noregi, Bretlandi, Þýzkalandi,
Belgíu og Bandaríkjunum.
Frá 1940 til 1942 vann hann
hjá brezka útvarpinu (BBC)
í Lundúnum, og á árunum
1942-45 var hann, blaða- og
útvarpsstarfsmaður fyrir upp-
lýsingaskrifstofu norsku
stjómarinnar í Lundúnum.
Árið 1945 var hann lánaður
upplýsingastofnun Sameinuðu
Þjóðanna (UNIO).
Árið 1946 gekk Dik Lehm-
kuhl í þjónustu Sameinuðu
þjóðanna og starfaði á upp-
lýsingaskrifstofunni í Lund-
únum fram til 1949. Frá 1949
til 1960 vann hann í útvarps-
og blaðadeildum aðalstöðv-
ann í New York. Árið 1960
var hann skipaður aðstoðar-
forstjóri upplýsingarskrifstof-
unnar í Kaupmannahöfn og
starfaði þar til 1962, en þá var
hann sendur sem upplýsinga-
fultrúi til gæzlusveita Sam-
einuðu þjóðanna í Kongó. Ar-
ið 1963 var hann skipaður í
núverandi stöðu sína sem for-
stjóri upplýsingaskrifstofu
Sameinuðu þjðanna í Bag-
dad í írak.
* * *
Ör vöxtur iðnaðar
Japan og Sovétríkin geta
státað af örustum vexti og út-
þenslu í iðnaði meðal hinna
þróðu stórþjóða á árunum
1953-65, segir í nýbirtu riti frá
Sameinuðu Þjóðunum. Yöxt-
ur í iðnaði var annars sífellt
örari með hverju ári um heim
allan.
Meðal vanþróuðu landanna
hafa Indland og Mexíkó stigið
stór skref fram á við í iðnaði.
Ritið hefur að geyma yfirlit
frá 80 löndum. Auk þess eru
í viðauka við það framleiðslu-
skýrslur frá 27 löndum um
ákveðnar neyzluvörur, svo
sem bíla, kæliskápa, þvotta-
vélar, ryksugur, útvarps- og
sjónvarpsviðtæki.
* * *
Orkuforði heimsins
„World Energy Supplies
1962-1965“ heitir bók sem er
nýkomin á markaðinn frá
Sameinuðu Þjóðunum. Þar er
að finna töflur um fram-
leiðslu, neyzlu og verzlun
með kol, hráolíu, brennslu-
olíu, jarðgas, rafmagn og aðr-
ar orkulindir í 170 löndum og
landsvæðum. Þar kemur m. a.
fram að samanlögð orku-
neyzla heimsins jókst um 18
prósent á fjögurra ára skeið-
inu 1962-1965. Meginhluti
aukningarinnar stafaði af auk-
inni notkun olíu til eldsneytis
og sömuleiðis aukinni notkun
jarðgass. Sé orkuforða heims-
ins 1965 skipt á hvert manns-
barn koma 1594 kg. í hlut
hvers. Norðurlönd eru all-
miklu fyrir ofan meðallag:
Danmörk 4.171 kg. Finnland
2.680 kg., Island 3.960 kg., Nor-
egur 3.588 kg. og Svíþjóð
4.506 kg. á hvern íbúa. Bókin
kostar andvirði tveggja doll-
ara.
* * *
Niður með hávaðann
Hávaðinn er ein mesta
plága nútímans, segir í nýj-
asta hefti af UNESCO-tíma-
ritinu „Courier“, sem er helg-
að óværi af öllu tagi. Tauga-
truflanir, heyrnartjón og lí-
kamlegar og sálrænir erfið-
leikar eru prísinn sem við
greiðum fyrir ferðaflýti og
„þægilegri“ tilveru. En það
er hægt að draga úr skark-
alanum. Hér eru nokkur
fróðleikskorn úr „Courier“:
Bifhjólaiðnaðurinn leggur
sig fram um að bæta hljóð-
deyfa, en samkvæmt skýrslu
frá Evrópuráðinu eru eftir-
sóttustu bifhjólin engan
veginn þau sem minnst heyr-
ist í.
í Frakklandi er bannað að
nota ferðaútvarpstæki í
vögnum og langferðabílum,
neðanjarðarlestum, á götum
og opinberum torgum í al-
menningsgörðum og á bað-
ströndum.
Brátt fáum við nýtt há-
vaðaviandamál: hveLlina frá
flugvélum sem fljúga hrað-
ar en hljóðið. En farþegar í
þessum flugvélum sleppa
við pláguna. Vélin flýgur
nefnilega frá skarkalanum.
1 Genf er það talið til af-
brota að skella bílhurðum of
harkalega.
Alger þögn er eiginlega
ekki miklu heilsusamlegri
en mikill hávaði. Sá sem
lokaður er inni í hljóðein-
angruðu herbergi truflast af
óverulegum hljóðum eins og
hjartslætti, andardrætti og
augnadepli. Þessi hljóð geta
orðið svo máttug að þau
valdii alvarlegum sálrænum
truflunum.
Lína vinnukona fékk leyfi
til að fara í leikhúsið eitt
sunnudagskvöld, þegar leikið
var leikrit eftir Ibsen. Þegar
hún kom heim, sagði frúin:
— Jæja, þá hefurðu nú
kynnzt Ibsen?
— Nei, hann hét Petersen,
sem tók mig heim með sér
eftir leikinn.
Úr vísnasyrpu Páls Guðmundssonar
frá Holti
MÚSIN
Eg gekk og sótti mér gildru,
er gest ég fékk í mitt hús.
— En sæmir það manni að svíkjast
að soltinni flóttamús?
Morgunsárið.
Árdags glóð í austri skín,
ómar af ljóðum haginn.
Býður móðir mín og þín
manni góðan daginn.
Gjöf í Skógræklarsjóð
Þjóðræknisdeildin „Brúin“,
Selkirk ........... $10.00
Móttekið með þakklæti.
Richard Beck
* * *
RIVERTON-HNAUSA
LUTHERAN CHURCH
BUILDING FÚND
In memory of Thorsteinn Ey-
olfson Lilja Eyolfson Eysteinn
Eyolfson Ausvaldur Eyolfson
Fredrick Eyolfson Una Ey-
olfson
Ef loginn sem brennur í sjálfs þín sál
sett fær ei bróður þíns huga í bál
og miðlað til annarra eldi,
þá fleygðu því kvæði í kalda hlóð,
því katlinum einum fær hitað þitt ljóð
og dregið svo kulið úr kveldi.
* * *
Með mér byggðu landið lýðir.
Með mér byggðu landið lýðir,
er leyndust í dal og hól.
Útilegumenn áttu í öræfavíddinni ból;
í hólum bjó huldufólkið;
í hellunum gistu tröll;
í björgunum byggðu vættir,
svo byggðin sé talin öll.
Um dagsetur þegar dimmdi
um dali, firði og ver
í myrkrinu Mórar og Skottur
mættu þér þar og hér.
Þau gerðu þér stundum glettur,
því glettni er í draugum rík.
Um sæinn kom sendingin versta
og settist í Keflavík.
Páll Guðmundsson.
Mrs. Sigrún' Johnson $25.00
Donafion graiefully ackn-
owledged,
Mrs Hulda Johnson,
Treasurer.
* * *
DONATIONS TO ARDAL
LUTH. L. A.
MEMORIAL FUND
In memory of Sigridur John-
son
Siggi Palsson ....... $5.00
In memory of Thorbjorg
Jonasson
Mrs. Ingiborg J. Olafson $5.00
Gratefully acknowledged,
Magnea S. Sigurdson.
Maður nokkur rukkaði Ólaf
Val einu sinni um skuld, sem
ekki var fallin í gjalddaga.
— Heldur þú, að ég
„aborteri“ peningum, svaraði
Ólafur.
Manitoba Telephone System, part of
Trans-Canada
Telephone System
munið þær gulu
munið gulu síðurnar
færa ykkur vörur og þjónustu í flýti
YOUR MANITOBA TELEPHONE SYSTEM