Lögberg-Heimskringla - 04.07.1968, Qupperneq 1
DAVIO BJOSNSON,
763 6ANNINO ST.,
VMNNIFEG 3 ( MAN.
Xö gber g - J)ei msímngla
StofnaS 14. ian. 1888 Slofnað 9. sept. 1886
Hu^RGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 4. JÚLÍ 1968 NÚMER27
Dr. Krist-ján Eldjárn kjörinn
forseti íslands
Svo sem lesendur blaðsins minnast, tilkynnti herra Ásgeir
■^■sgeirsson forseti í áramótaræðu sinni, að hann myndi ekki
Verða í framboði í forsetakosningunum í sumar. Aðeins tveir
^ienn gáfu kost á sér í þetta embætti sem Ásgeir hefir skipað
Vlð mikinn og góðan orðstír í sextán undanfarin ár, þeir
d°ktorarnir Gunnar Thoroddsen og Kristján Eldjárn. Birt
Var í Lögb.-Heimskr. 11. apríl s. 1. ágæt grein um þá og for-
Setakosningarnar, eftir Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóra.
Kosningarnar fóru fram á sunnudaginn 30. júní og fengum
Vlð eftir fylgjandi frétt um úrslitin yfir útvarpið á þriðju-
^gsmorguninn:
Ör. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður var kjörinn forseti,
tekk hann 67,564 atkvæði en Dr. Gunnar Thoroddsen 35,438
atkvæði.
Var sagt í fréttinni að hinn nýi forseti væri andvígur sjón-
Varpi bandaríska setuliðsins, því það hefði slæm áhrif á ís-
^fizka menningu, en þótt hann væri mótfallinn setuliði í
^ndinu væri hann fylgjandi áframhaldandi þátttöku íslands
1 Nato.
Kristján Eldjárn er 51 árs að aldri. Hann hefur verið þjóð-
^injavörður og forstöðumaður Þjóðminjasafnsins í rúma tvo
aratugi. Doktorsritgerð hans fjallaði um kuml og haugfé á
^slandi, varin árið 1957. Hann hefur ritað fjölda bóka og
§reina um íslenzka fornleifafræði. Kunnastur almenningi er
hann líklega fyrir sjónvarpsþætti sína, sem hafa öðlazt miklar
vinsældir.
Kristján er kvæntur Halldóru Kristínu Ingólfsdóttur. Við
Vaentum þess að birta mynd af hinum nýja forseta innan
skanams. — I. J.
Elected Chairman of T.B.T. Club
Magnus Theodore Paulson,
911 Active Member of The Tor-
°nto Real Estate Board since
Í955, has been elected by ac-
ciamation to the Chairman-
ship of the Toronto Board of
^ade Club.
President of M a g n u s T.
^aulson Realty Limiied, Mr.
^aulson was born and raised
111 Winnipeg. He attended the
Nniversity of Manitoba from
Í927 to 1931, and relocated in
^astern Canada in 1936. After
s°me years in the investment
kusiness, he entered the real
fstate profession in Toronto
111 1950, and became a broker
jhember of TREB five years
^ter.
Of Icelandic ancestry, Mr.
aulson married Lillian Mc-
^eod in 1937. The parents of
tw° sons and two daughters,
ihe Paulsons are proud grand-
Parents as well.
Mr. Paulson has been active
111 community life for many
y°ars, and served for several
of these on the Executives of
ike Junior Board of Trade and
the Board of Trade Club. In
addition, he is past president
the Scandinavian Canadian
tu'b, past president of the
°Wntown Optimist Club, and
Past president of the Icelandic
auadian Club. His hobbies
range from golf to poetry and
ruusic.
Many TREB Members will
remember him for his prou-
dest achievement in real estate
the conception, promotion and
sale of the huge area for
a satellite city — now called
Bramalea.
* * *
Þessi grein birtist í ritinu
Lisiings, sem Toronto Real
Estate Board gefur út. The
Board of Trade eða Viðskipta-
ráð Metropolitan T o r o n t o
telur um 15,000 meðlimi, en
innan þessa stóra viðskipta-
ráðs er svo myndaður klúbb-
ur — The Board of Trade
Club of Metropolitan Toronto
— og er klúbburinn takmark-
aður við 650 meðlimi og er
Hundrað ára gamall
hann hin athafnamesta deild
félagsins. Klubbsmenn koma
saman á hverju mánudags-
kvöldi frá október til apríl til
að hlýða á valda ræðumenn
og skemmta sér á annan hátt.
Auk þess, efna þeir til alls-
konar mannfagnaðar, dansa
útiskemmtanna, ferðalaga,
golfkeppni og fleira í þeim til-
gangi að afla fjár fyrir nauð-
stadda. Formaður þessa
klúbbs hefir því í mörgu að
snúast, en það þykir hinn
mesti heiður að vera kjörinn
í þetta embætti.
Magnus Paulson var kjör-
inn formaður klúbbsins fyrir
starfsárið, 1968-69, og barst
honum meðal annarra heilla-
óskaskeyti frá landstjóranum,
Roland Michener, sem á sín-
um tíma mun hafa verið með-
limur klúbbsins.
Ég minnist Magnúsar fyrst
fyrir mörgum árum þegar
Einar Páll kom með hann upp
í íbúð okkar og kynnti mig
þessum myndarlega frænda
sínum frá Toronto og voru
þeir báðir ljómandi af gleði
yfir samfundunum. — Faðir
Magnusar var Friðrik, sonur
Þórðar Péturssonar Guðjohr,-
sen organista í Reykjavík, og
konu hans Helgu Jónsdóttur
Magnússonar. Friðrik (Fred)
var alinn upp af séra Jóni og
frú Láru Guðjohnsen Bjarna-
son og bar þeirra nafn. Hann
lézt fyrir nokkrum mánuðum.
Helga, fyrri kona Friðriks dó
þegar Magnus var aðeins eins
árs og var hann þá tekinn í
fóstur af Guðnýju móðursyst-
ur sinni og manni hennar
Magnusi Paulson og ber hann
þeirra nafn. Margt af ættfólki
Magnusar hefir getið sér orð-
stírs fyrir listfengi og góða
hæfileika, og virðist hann
sverja sig í ættir sínar.
Við óskum honum til ham-
ingju með það tiltraust sem
hann hefir aflað sér þar eystra
og þann heiður sem honum
hefir verið sýndur. — I. J.
ÍVAR GUÐMUNDSSON
SKIPAÐUR FRÉTTASTJÓRI
Samkvæmt tilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu hef-
ur ívar Guðmundsson, blaða-
fulltrúi verið skipaður frétta-
stjóri Ríkisútvarpsins frá 1.
janúar 1969 að telja.
Staða fréttastjóra var aug-
lýst laus til umsóknar í Lög-
birtingarblaðinu, og rann um-
sóknarfresturinn út hinn 15.
apríl sl. Tvær umsóknir bár-
ust, frá ívari Guðmundssyni
og Margréti Indriðadóttur
varafréttastjóra Ríkisútvarps-
ins.
Vísir 15. júní
Á morgun, 3 júlí verður
öldungurinn, Jóhann Pétur
Sæmundsson h u n d r a ð ára
gamall. Hann var fæddur árið
1868 að Grjóti í Þverárhlíð,
Mýrarsýslu. Hann stundaði
landbúnað og sjómennsku á
íslandi, en fluttist til Vestur-
heims árið 1899; dvaldist í
Cavalier, N. Dakota til ársins
1901 að hann fór til Nýja ís-
lands og nam land og hóf bú-
skap í Geysisbyggð nálægt
Árborg.
Jóhann kvæntist Þóru Guð-
mundsdóttur árið 1907. Þeim
varð tveggja barna auðið.
M a r g i r íslendingar kannast
við Gunnar son hans vegna
ræktasemi hans við íslenzka
tungu og bókmenntir og dótt-
ir hans er Aðalbjörg kona
Guðna Sigvaldasonar bónda í
Árborg. — Jóhann m i s s t i
Þóru konu sína árið 1935. Árið
1941 flutti hann til Gimli en
síðustu árin hefir hann dvalið
h j á Gunnari og Margrétu
konu hans og börnum þeirra.
Okkur er sagt að Jóhann sé
furðu hress andlega og líkam-
lega. Við óskum honum til
hamingju með þetta merkis-
afmæli. — I. J.
Kosningarnar í Canada
Fylgi pólitísku flokkanna að loknum fimm Sambands kosn-
ingum s. 1. 10 ár.
1968 1965 1963 1962 1958
Lib 154 129 129 100 49
PC 72 97 95 116 208
NDP 23 21 17 19 8
Cred 14 9 — — —
SC 5 24 30 0
Ind 1 2 0 0 0
Tolal .... 264 265 265 265 265
Liberalar unnu hreinan meiri hluta þingsæta í kosningun-
um 25. júní s. 1. og Pierre Ellioi Trudeau er forsætisráðherra
þjóðarinnar. Það er í sjálfu sér furðulegt þegar haft er í huga
að þjóðin vissi lítið sem ekkert um þennan mann fyrir nokkr-
um mánuðum síðan. Hann er af frönskum og skozkum ætt-
um, fæddur í Montreal, 48 ára gamall, hámenntaður, jafn-
vígur á ensku og frönsku, mælskur vel, er lögmaður og pró-
fessor í lögum.
Mr. Trudeau hafði talsverð afskipti af stjórnmálum í Quebec
um tuttugu ára skeið, sérstaklega í baráttunni gegn einræði
Duplessis. Hann var blaðamaður og hefir gefið út eina eða
tvær bækur. Það var vinur hans Jean Marchand, sem er
Manpower og innflytjenda ráðherra Liberal stjórnarinnar,
sem fékk hann og vin þeirra, Gerard Pelletier til að gefa
kost á sér sem frambjóðenda Liberala í kosningunum 1965
og hlutu þeir allir kosningu og voru nefndir The three wise
men, eða vitringarnir frá Quebec. Sagt er að Liberölum hafi
verið um og ó að veita þeim Trudeau og Pelletier inngöngu
í flokkinn því þeir höfðu áður fylgt NDP. flokknum að
málum.
Mr. Trudeau var ritari forsætisráðherrans þangað til í jan-
úar 1966, en þá var hann skipaður dómsmálaráðherra. Eitt
það fyrsta sem hann gerði í því embætti var að koma í gegn
um þingið nýrri og frjálslegri hjónaskilnaðar löggjöf, sem
hlaut einróma samþykkti þingsins, og fyrir þinginu liggur
nú til samþykktar frumvarp hans um að draga úr hinum
ströngu lögum gegn fóstureyðingum og kynvillingum. Óttazt
var að hann myndi tapa miklu fylgi meðal kaþólskra manna
í Quebec vegna þessara athafna hans en svo virðist ekki
hafa verið, því þar var atkvæðamagn hans meira, en nokkurs-
staðar annars staðar í landinu, þar átti hann þó við öfluga
mótspyrnu að etja —■ skilnaðarflokkinn eða svonefnda
Separatists, sem vilja draga Quebec út úr fylkjasambandinu
og sigla sinn eigin sjó.
Þegar forsætisráðherrar hinna tíu fylkja Canada komu
saman á ráðstefnu í Ottawa fyrir nokkrum mánuðum til að
ræða með formönnum Sambandsstjórnarinnar um breytingu
eða endurbætur á hinni hundrað ára gömlu stjórnarskrá —
British North America Act. — lenti í. smávegis orðasennu
milli Daniels Johnson, forsætisráðherra Quebesfylkis og Tru-
deau dómsmálaráðherra Canada, sem diplomatinn Lester B.
Pearson greiddi úr í snatri, en auðsé^ var að hverju stefndi
milli Frakkanna um stöðu Quebec í fylkjasambandinu. Ráð-
stefnunni var sjónvarpað og vakti þá Trudeau fyrst athygli
almennings. Framhald á bls. 4.