Lögberg-Heimskringla - 01.08.1968, Side 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1968
Úr borg og byggð
ÚTGÁFA BLAÐSINS
Þegar þetta er ritað 31. júlí,
hefir verkfall póstmanna stað-
ið yfir í rúmar tvær vikur eða
frá því um hádegi 16. júlí,
þegar neitað var að taka á
móti blaðapósti á pósthúsum
landsins. Við gáfum samt út
íslendingadagsblaðið og feng-
um einkafélag til að láta bera
blöðin til áskrifenda í Winni-
peg og sendum blaðapakka til
nokkurra b æ j a í Manitoba,
sem við vonum að hafi verið
útbýtt. Við gátum ekki meira.
— Blöðin til annarra fylkja og
Bandaríkjanna verða, því mið-
ur, að bíða þar til verkfallinu
er aflétt og einnig þetta blað
sem nú er prentað 1. ágúst. —
Við, sem að blaðinu vinnum,
förum nú í sumarfrí, sem fyr-
ir löngu var búið að ráðstafa,
og væntum við að næsta blað
komi út 22 eða 29 ágúst, ef
verkfalli póstmanna er þá lok-
ið.
* * *
Dr. P. H. T. Thorlakson var
staddur í Ottawa nýlega og
fór hann þá í hina nýju bóka-
safns- og fornskjalabyggingu
til að skoða á ný eirskjöldinn,
sem íslendingar hér í álfu
gáfu Canada til minningar um
hundrað ára afmæli fylkja-
sambands Canada, en á hann
var skráður Kafli úr sögu
Canada — frásögn á íslenzku
ensku og frönsku um landa-
fund Bjarna Herjólfssonar og
Leifs Eiríkssonar hér í álfu.
Dr. Thorlakson var formað-
ur nefndarinnar, sem beitti
sér fyrir þessari hugmynd, og
afhenti hann skjöldinn fyrir
hönd gefenda við virðulega
athöfn í Ottawa 14. apríl, 1967,
(sjá L.-H. 27. apr. 1967).
Honum Iék nú forvitni að
sjá í næði hvernig skjöldur-
inn tæki sig út og þótti hon-
um hann líta ágætlega út og
staðurinn hinn ákjósanlegasti.
Einn af húsvörðunum sagði
honum að í þessa Library og
Archives byggingu k æ m i
fjöldi fólks daglega og hefðu
margir sagt við sig að þeir
hefðu ekki vitað áður, að
nokkur Evrópumaður hefði
komið til Vesturálfunnar á
undan Christopher Columbus.
Skjöldurinn kynnir þannig
hinn sameiginlega kafla í sögu
íslands og Canada og nær
þeim tilgangi sem gefendurnir
höfðu í huga.
* * *
Mr. og Mrs. Magnús Eliasson
eru nýkomin heim úr ferðalagi
vestur til British Columbia.
Fyrst fóru þau vestur til Van-
couverborgar þar sem bræður
Magnúsar, Frank og Helgi
eiga heima. Einnig heimsótti
Magnús þau hjónin Gunn-
björn og Guðrúnu Stefánsson
og hafði mikla skemmtun af
að ræða við þau.
Þvínæst var ferðinni heitið
norður í Peace River héraðið
þar sem Magnús er að koma
í framkvæmd umbótum á
landinu sínu í gömlu Sunny-
brook nýlendunni. Á leiðinni
þar norður ferðuðust þ a u
hjónin með Pacific Great Eas-
tern járnbrautinni til Prince
George. Þótti þeim mikið um
hvað fjöllin eru stórkostleg á
þeirri leið. Meðfram Anderson
og Seton vötnunum þar sem
fjöllin rísa upp himinhá þótti
Mrs. Elíasson að vera alveg á
við nokkuð sem hún hefði séð
í fjöllunum á Svisslandi, og
hrikaleg þótti þeim gljúfrin
m e ð f r a m Frazeránni fyrir
norðan Lillooet þar sem járn-
brautin smátt og smátt rís
hærra og hærra upp fyrir ána
þar til að hún er kominn tutt-
ugu og tvö hundruð fet upp.
Þá lítur hin mikla Frazerá
út eins og lækjarspræna niðri
í gjánni.
Norður í Peace River heim-
sóttu þau Franklin Pálsson og
fjölskyldu hans í D a w s o n
Creek og einnig móður hans
Bergrósu sem þar býr einnig.
Einnig skruppu þau vestur til
Hudson Hope og skoðuðu hið
mikla orkuver sem er verið að
byggja rneð því að stífla upp
Peaceána. Verður þetta raf-
magnsstöð sem framleiðir yfir
þrjú milljón hestaafl. Verður
þetta stærsta neðanjarðar
orkuver í heimi þegar verkinu
verður lokið.
* * *
Two Greaier Winnipeg area
ieachers will teach in Africa
this summer under a Cana-
dian Teachers Federation pro-
gram designed to assist teach-
ers in developing countries.
Mr. Clare Swainson of Garden
City Collegiate, West Kil-
donan will teach at Kenyatta
College in Nairobi.
They left Winnipeg on July
lOth for a three day orienta-
tion course in Fredericton,
N. B. followed by a two and
three day visits at such cities
as L o n d o n , Eng., Paris,
France,; Rome a n d Addis
Ababa. From there they will
proceed to Africa. Mr. Swain-
son will return early in Sept-
ember.
The teachers will be work-
ing under CTF Project Over-
seas, which began as Project
Africa, but was expanded this
year through a Canadian Ex-
ternal Grant to include Afri-
can, West Indian and Asian
countries.
The other Greater Winni-
peg teacher is Ruth J. Mart-
inussen of Adult Education
Centre.
Mr. Swainson is married and
has two children. They reside
in Garden City, Winnipeg. He
is the son of Mr. and Mrs. Ingi
Swainson of Winnipeg.
* * *
Housekeeper required for
older couple in suburban
Toronfo
Light duties, beautiful home
with all conveniences in park-
like surroundings.
All arrangements open. Ma-
ture Icelandic woman prefer-
red. Phone collect Winnipeg
247-4482.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúlerska kirkja
Prestar:
Séra V. J. Eylands, D. D„
Sóra J. V. Arvidson, B. A.,
Sr. Laufey Olson, Djákna-
systir.
Enskar guðþjónustur á
hverjum sunnudegi kl. 9:45
og kl. 11.00 árdegis.
Sunnudagaskóli kl. 9:45 f.h.
Guðþjónustur á íslenzku, á
sunnudagskvöldum, sam-
kvæmt tilkynningum ' í viku-
blaði safnaðarins.
LEIÐRÉTTING
í greininni um Sigurð Sig-
mundson aðal forstjóra B.C.
Hydro féll úr nafn. Rósa kona
Sigurðar er dóttir Ólafs heit-
ins Péturssonár.
Dánarfregnir
John T. H. Johnson 6621 Sus-
sex, South Burnaby, B.C. and-
aðist 20. júlí 1968, 88 ára að
aldri. Hann lætur eftir sig
Guðrúnu konu sína og höfðu
þau rétt nýlega haldið upp á
sextíu á r a hjúskaparafmæli
sitt. Auk hennar lifa hann
tveir synir, Emil í Hope, B.C.
og Daniel í Burnaby; ein dótt-
ir, Mrs. C. Laura Eyford í
Burnaby sex barnabörn og
þrjú barna-barnabörn; tveir
b r æ ð u r , Pétur og Emil í
Winnipeg; tvær systur, Mrs.
Freda Boyd í Vancouver og
Mrs. Violet Frazer í Minnea-
polis.
* * *
Hallgrímur S. Axdal andaðist
19. júlí, 1968, 85 ára að aldri.
Hann flutti frá íslandi til Can-
ada fyrir 77 árum og átti
lengst heima í Wynyard, Sask.
en síðustu árin var hann hjá
dætrum sínum í Winnipeg en
þær eru Mrs. Guðrún Eyrik-
son„ Mrs. Vera Underwood og
Mrs. Olive Scott. Barnabörnin
eru sex. Bálför hans fór fram
í Winnipeg, og greftrun í fjöl-
skyldu grafreitnum í Wyn-
yard.
* * *
Hólmfred (F r e d) Ingjaldson
886 Bannerman Ave., Winni-
peg varð bráðkvaddur 1 Ken-
ora, Man. 5. júlí 1968. Hann
lætur eftir sig Helenu konu
sína.
* * *
Leonard Thorkell Jacobson
sonur Þórunnar Jacobson á
Gimli og Jacobs heitins Jac-
obssonar lézt af slysförum 7.
júlí 1968, 41 árs að aldri.
Rev. C. Fredrickson jarð-
söng hann.
* * *
Thorarinn Thorkelson lézt í
Chicago 7. júlí, 75 ára að aldri.
Hann hafði átt þar heima síð-
astliðin 45 ár. Hann lifa Una
kona hans, Clifford sonur
hans, Undine dóttir hans —
Mrs. N. Johnson og Kristín
Una J o h ns o n dótturdóttir
hans, öll í River Grove, 111.
Ennfremur ein systir Mrs.
Sigrún Oddson að Lundar,
Manitoba. Thorarinn . heitinn
var fæddur á íslandi, flutti til
Canada um aldamótin, átti
heima í Manitoba í 23 ár —
og flutti þá til Chicago. Hann
var bókhaldari hjá Thordar-
son Electric félaginu, í 23 ár
áður en hann lét af störfum.
— Útförin fór fram frá lút-
ersku kirkjunni að Lundar og
í þeirri byggð var hann greftr-
aður.
* * *
Jóhannes (Joe) Johnson, Ár-
borg Manitoba lézt 12. júlí
1968, 66 ára að aldri. Hann
lætur eftir sig konu sína, Kirk,
eina dóttur, Madeline — Mrs.
Wallace Everett, tvö barna-
börn, Laurie og Evan; tvo
bræður, Kristján og Lauga;
tvær systur Jónu — Mrs. O.
S. Oddleifson og Lilly — Mrs.
Dave Guðmundson. — Hann
var jarðaður í Árdal grafreitn
um.
* * *
Mrs. Signý Guðrún Larry dó
14. júlí að heimili sínu, 715
Airlies Street, Winnipeg, 77
ára að aldri. Hún var fædd í
Riverton, og ólst þar upp; átti
heima í Neveton, Man., í 20 ár
en flutti til Winnipeg fyrir
12 árum. Hana lifa sonur
hennar Fred W. Larry í Wpg.;
dóttir hennar Gerry — Mrs.
Ralph Knapp í Winnipeg og
tvö barnabörn, og eitt barna-
barnabarn; fjórar systur, Mrs.
Lizzie Smith, Miss Caroline
Sigurdson og Mrs. J. H. Bailey
(Freda) allar að Lundar og
Mrs. Victor Gillies (Gladys) í
Kelowna, B.C.; þrír bræður,
Louis Sigurdson í Narcisse,
Man., Emil Sigurdson í Leslie
Sask., og Bogi Sigurdson að
Lundar. — Útförin frá Baldur;
séra Þorgils Þorgilsson þjón-
aði.
* * *
George Alan Kardal frá Riv-
erton, Man., lézt af slysförum
13. júlí, 1968, 34 ára að aldri.
Hann var fæddur og uppalinn
að Finns (nálægt Hnausum).
Hann lifa Francis kona hans
sonur hans Lester og þrjár
dætur Lenore, Vivian og Ger-
aldine; móðir hans Mrs. Sig-
urlaug Bye og hálfbróðir
Llyod Bye bæði í Coronation,
Alberta og Eleanor systir hans
Mrs. Zóltan Fazekas í Cargary.
TVÍFARAR
Framhald af bls. 7.
Sagði ég þeim þá, hvað ég
hafði séð.
Eitt sinn bar svo til, þegar
Ragna systir mín var í Klaust-
urhólum, að börnin á bænum
fengu að fara í berjamó, því
að veður var hið fegursta.
Rögnu langaði að fara með
þeim, þó að hún væri orðin
gjafvaxta. En hún gat ekki
farið, af því að hún þurfti að
ljúka ákveðnu verki þennan
dag. En hugur hennar var
alltaf hjá börnunum. ÞaU
komu heim fyrr en búizt var
við, og var þeim nokkuð niðri
fyrir. Voru þau spurð, hví þau
kæmu svo snemma heim. ÞaU
sögðust hafa séð Rögnu koma
í áttina til þeirra, en staldra
við skammt frá þeim. Fóru
þau þá að kalla í hana, en hún
svaraði ekki. Gengu þau þá
til hennar, en þegar þau nálg-
uðust hana, hvarf hún þeim
sýnum. Þá urðu þau hrædd
og héldu þetta hafa verið
huldukonu og flýttu sér heirn-
Ragna hafði ekki staðið upp
frá vinnu sinni, á meðan börn-
in voru í berjamónum.
(Skrifað eftir frásögn Rögnu
Gísladóttur og staðfest af einu
af börnunum.)
Gráskinna.
GOING TO ICELAND7
Or perhaps you wish to vuit
other countries or places here,
in Europe or elswhere? Where-
ever you wish to travel, by
plane, ship or train, let the
Triple-A-Service with 40 years
travel experience make the
arrangements. Passports and
other travel documents secured
without extra cost.
Write, call or telephone to-
day witnout any obligations to:
ARTHUR A. ANDERSON
TRAVEL SERVICE
133 Claromonl Ave.,
Winnipeg S. Man.
Tel.: GLobo 2-5446
WH 2-5949
Asgeirson Paints & Wallpapers
Ltd.
BUILDING MATERIALS
696 Sargent Avenue
Winnipeg 3. Maniioba
• All types of Plywood
• Pre-finish doors and
windows
• Aluminum combination
doors
• Sashless Units
• Formica
• Arborite
• Tile Boards
• Hard Boards etc.
• Table Legs
Phones
SU 35-967 SU 34-322
FREE DELIVERY