Lögberg-Heimskringla - 05.09.1968, Page 7

Lögberg-Heimskringla - 05.09.1968, Page 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. SEPTEMBER 1968 7 Þegar allt var um garð gengið Framhald aí bls. 5. veg eins og það hreif þann mann, sem hann ritar um. Hann gerir þessa tilfinningu svo lifandi, tjáir hana með slíkum glæsibrag og innlifun, sem þó er öguð skörpum s k i 1 n i n g i, að lesandanum finnst í svip hann skynji, hvernig heimurinn leit út í augum Churcills. En hann nefnir einnig, nán- ast í framhjáhlaupi, hlið á Churchill, sem mönnum sést °ft yfir. Hann setur fram sem andstæður „léttúðarfullan og nærri því kærulausan ákafa“ Hoosevelts annars vegar og hins vegar „dýpt“ Churchills, >.og samsvarandi óvissu, sem Hoosevelt í léttúð sinni lét hugann ekki dvelja við.“ Ef til vill væri hægt að grundvalla staðhæfingar um mikilleik Churchills á þessu, — miklu fremur en á eldmóði hans og þeim eiginleikum, sem lágu naer yfirborðinu. En þótt und- arlegt kunni að virðast vað það einmitt þetta, sem olli því, að mestallan stjórnmálaferil Churchills var næstum óbrú- anleg gjá milli hans og mikils Uieirihluta samlanda hans. Isaiah Berlin hefur leyfi til að skrifa af jafn hástemmdri hrifningu og hann gerir um Churchill árið 1940, því að hann er að skrifa um sigur- for, um sigurför manns og þjóðar, en þetta tvennt var þá svo samtvinnað að ógerlegt er að greina á milli hlutverka þoirra. E n þ e s s i samhugur stóð aðeins skamma stund; að ttokkru leyti entist hann þó út styrjöldina, þótt hann væri aldrei eins magnaður og þá, en engu að síður voru brezkir hjósendur á styrjaldarárunum srnám saman að móta með sér stjórnmálaskoðanir, sem voru andstæðar skoðunum Church- hls, en það olli skyndilegum valdmissi hans árið 1945. Árið 1940 var undantekning 1 lífi Churchills, — og mesta undantekningin af öllum var það samband, sem hann kom á miiii sín og landa sinna. Eitt helzta einkennið á hinum |anga stjórnmálaferli Church- ills er nefnilega það, að brezka þjóðin vísaði honum oft hvað eftir annað og langtímum saman á bug, þrátt fyrir alla hæfileika hans og snilld, eða kannski vegna þessara hæfi- feika. Hann ávann sér aldrei astsæld og traust þjóðarinnar, fáir aðrir fylgdu stefnu hans en lítill hópur trúnaðar- ^fna, sem fæstir höfðu nokkra stjórnmálalega þ ý ð i n g u . Hvorki þjóðin né nokkur stjórnmálaflokkur hennar við- Urkenndi hann sem foringja. Pegar mönnum á banadægri hans var boðið að líta á hann aem m i k i n n þjóðarleiðtoga, þjóðhetju og landsföður í eir>ni persónu, var erfitt að þainnast þess, að mestallan stjórnmálaferil sinn hafði hon llIh fallið í skaut grunsemdir, vantraust e ð a afskiptaleysi, að fram að stríðsbyrjun hafði enginn traustur eða varanleg- ur árangur orðið af stjórn- málastörfum hans. Til að auðvelda upprifjun- ina er ekkert betra en að lesa bók Lafði Violet Bonham Car- ters: Winston Churchill eins og ég þekki hann. Bókin er snilldarvel skrifuð, svo vel að maður harmar, að lafði Vio let skuli ekki á langri ævi hafa skrifað meira og talað minna. Sé ritgerð Berlins skrif- uð í anda hetjudýrkunar, þá er bók lafðinnar ástarsaga, og eins og allar sannar ástarsög- ur segir hún meira bæði um þann, sem elskar, og þann, sem er elskaður, en höfundinn getur grunað. Eins og allar ástarsögur er bókin líka saga um æsku, um þau ár, þegar lafði Violet var ung stúlka og á 11 i forsætisráðherra Bret- lands fyrir föður og Churchill var ítursnjall, ungur stjórn- málamaður á uppleið. Violet B o n h a m Carter er dóttir Asquiths lávarðar, foringja Frjálslynda flokksins á fyrsta hluta aldarinnar. í sögu hennar kemur fram yndis- þokki æskuástar, séður með tregafullum skilningi efri ára; þessi yndisþokki leggst meira að segja eins og gullin blæja yfir litríkar lýsingar hennar á því samfélagi og þeim tímum, þegar tilfinningar hennar mót uðust. Höfuðatriði í frásögn henn- ar er að söguhetjan hefur þeg- ar hann kemur fyrst til sög- unnar þegar í bernsku og á æskuárum orðið fyrir þeirri bitru reynslu að vera útskúf- að. Enginn maður hefur átt föð- ur meir að sínu skapi en Churchill. Randolph Churchill lávarður, þessi gáfaði, skap- mikli maður, sem gjörbreytti brezkum stjórnmálum á árun- um 1870-80, en síðan koðnaði niður eins og útbrunnið skar, hann hafði til að bera alla þá eiginleika, sem Churchill dáð- ist mest að: hugrekki, hrein- skilni, stefnufestu, m i k i ð vinnuþrek og vissa óþreyju, sem þeytti honum eins og halastjörnu yfir stjórnmála- himininn; og auk þess var hann gæddur persónulegum yndisþokka, s e m sonurinn hafði aldrei til að bera til fulls. En einmitt þessi maður, sem var eins og skipaður til að eignast alla ást og hylli drengsins, umgekkst son sinn ávallt eins og hann væri ó- kunnur maður, sýndi honum kuldalega vanþóknun, s e m nálgaðist lítilsvirðingu. „Hann virtist hafa allt eða næstum allt til að bera sem nokkurs var virði,“ ritar Churchill sjálfur. „En honum mislíkaði alltaf, ef ég gerði nokkra til- raun til að kynnast honum, og þegar ég stakk einu sinni upp á því, að ég gæti hjálpað einkaritara hans við að skrifa sum bréf fyrir hann, þá hafn- aði hann því með öllu.“ Allur þessi kuldi föðurins gat þó ekki drepið aðdáun og ást Churchills. „K u 1 d a 1 e g framkoma og afskiptaleysi Randolphs lávarðar eyðilagði ekki stolt sonarins og aðdáun hans?“ segir lafði Violet, og hún lýsir á áhrifamiklum hátt hvernig Churchill leit á það nána samband sem var milli hennar og föður hennar, en Asquith lávarður skýrði henni frá áliti sínu á mönnum, mál- efnum og atburðum. „Hann spurði mig í hálfgerðri öfund: „Sagði faðir þinn þér þetta? Talar hann svona opinskátt við þig? Ég vildi að ég hefði getað talað svona við föður minn.“ Og stundum bætti hann við: „En það hefði orðið, hefði hann lifað. Það hlyti að hafa orðið“.“ Sú útskúfun, sem Churchill r e y n d i í bernsku og æsku, fylgdi honum stöðugt allan stjórnmálaferilinn. Lafði Vio- let tekur það greinilega fram, að þrátt fyrir hið mikla álit, sem faðir hennar hafði á Churchill og afburða gáfum hans, þá tókst honum aldrei að vinna trúnað félaga sinna í ríkisstjórn frjálslynda flokksins 1906 né traust frjáls- lynda flokksins. Hann var eins og litskfúðugur paradísarfugl, sem var tortryggilegur í aug- um litdaufari fugla. Stundum voru aðgerðir hans hafðar í gamanmálum. Charles Mast- erman ritaði 1.1.: „Hann sér ekkert n e m a fátæklingana, sem hann er nýbúinn að upp- götva, og hann heldur að hann sé kallaður til þess af forsjón- inni að gera eitthvað fyrir þá.“ Og þegar Churchill vegna stefnufestu e ð a stefnuleysis hvarf frá frjálslynda flokkn- um og gekk aftur í íhaldsflokk inn eftir fall Lloyds Georges, þá tók íhaldsflokkurinn við honum aftur með jafnmikilli tortryggni og fjandskap. Við- horf íhaldsmanna komu vel fram í ævisögu, sem var gefin út 1931 og nefndist: Harmleik- urinn með Winston Churchill, en þar er honum lýst, sem gáf- uðum stjórnmálamanni, er hafi eyðilagt sjálfan sig með göllum sínum, óstjórnlegri framgirni, ístöðuleysi og óþol- andi eigingirni.P u n c h birti um svipað leyti af honum skopmynd, þar sem hann var að reyna að setja á sig hatt fyrir framan spegil, og sagði: „Eins og alltaf er hatturinn of lítill.“ Lafði Violet minnir á það hvað eftir annað, hve mjög innsti k j a r n i íhaldflokksins hataði og tortryggði Churchill, alveg eins og þeir höfðu hatað og tortryggt föður hans. Það hefði glatt þessa menn, ef hann hefði hlotið sömu örlög, og um skeið virtist líklegt, að svo yrði. Þeir hundeltu hann af slíku hatri og slíkri heift, að ekkert nema sú sefasjúka dýrkun, sem hann varð að- njótandi frá þeim á síðustu ár- um, getur jafnazt á við það. Á fjórða áratugnum voru allir stjórnmálamenn íhaldsflokks- ins, sem höfðu hug á að kom- ast í valdasæti, sannfærðir um að Churchill væri ólæknandi talsmaður glataðs málstaðar, kominn úr allri snertingu við kjósendur og þjóðina í heild og gæti ekki framar átt ann- að í vændum en standa í von- lausu andófi. Eitt merkileg- asta einkennið á stjórnmála- ferli Churchills fram að heims styrjöld er, að honum skyldi aldrei takast að safna sam- stæðu almenningsáliti um skoðanir sínar, annað hvort innan íhaldsflokksins eða utan hans. U t a n íhaldsflokksins var Churchill sízt tekið með minni tortryggni en innan flokksins, þótt hann áynni sér samúð og aðdáun ákveðinna afla í verkamannaflokknum vegna andstöðu sinnar við Hitler og nazismann í Þýzka- landi. En vígbúnaðarstefnan var óaðgengilegri fyrir flesta vinstri menn einmitt af því að Churchill fylgdi henni fram. Hann var nefnilega blóði drif- inn, maðurinn frá Gallipoli, frá borgarstyrjöldinni í Rúss- landi, frá Allsherjarverkfall- inu. Þegar hann nú boðaði vígbúnað, gat það aðeins verið af röngum hvötum, í þágu stríðsins en ekki friðarins. Við skulum ekki láta okkur Framhald á bls. 8. Your Symbo/ of Safety MEN WORKING The sign means what it says.To ignore it is to risk death or injury to a public worker. Highway signs are your guide to safe driving. Know them. Obey them. This summer, as always, there’s evidence of your highway department in action. Watch for construction signs in these areas: • HIGHWAY No. 12 — South Junciion No. 12 and 59 north for IVj miles grad- ing — flagman in atten- dance HIGHWAY No. 23 — Vicinity of Morris — bridge conslruciion single lane traffic HIGHWAY No. 44 — Rennie West — grading for 14 miles HIGHWAY No. 6 — Gordon to Warren — grad- ing — local traffic only — delour MANITOBA HIGHWAYS

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.