Lögberg-Heimskringla - 19.02.1970, Síða 1
Hö gberg - ^etmskr tngla
Stoínað 14. jan. 1888
Slofnað 9. sept. 1886
84. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 19. FEBRÚAR 1970
NÚMER 7
Fjölmennið á ársþing og skemmtanir Þjóðræknisfélagsins
Dr. Guðrún P. Helgadóttir
Heiðursgestur þingsins
Skúli Jóhannsson
Forseti Fróns, stjórnar þingi
Dr. Richard Beck
Ræðumaður á Frónsmóti
Þjóðræknisfélagsþingið
Heimir Thorgrimsson
Ræðumaður Icel. Can. Club
Hið árlega þing Þjóðrækn-
isfélags íslendinga í Vestur-
heimi verður með öðru sniði
en hin fimmtíu midanfarin
þing. Þingfundir standa að-
eins yfir í tvo daga í staðinn
fyrir þrjá daga eins og tíðk-
&st hafði undanfarna hálfa
öld. — Fundunum verður
stjórnað af varaforseta félags-
ins, Skúla Jóhannssyni vegna
þess að forseti félagsins, séra
Philip M. Pétursson hefir ver-
ið skipaður menningarmála-
ráðherra Manitobastjórnar og
varð því að segja af sér for-
^stu í öðrum félagsskap.
Séra Philip leysti afarmikið
starf af hendi í þágu Þjóð-
r®knisfélagsins frá upphafi
Vega þess. Hains mun saknað,
°g til hans hugsað með þakk-
^ti, en við væntum þó þess
að hitta The Honourable Phil-
Pétursson af og til sem gest
a þingfundum og þeim sam-
kornum, sem haldnar verða í
sambandi við ársþingið.
Varaforseti Þjóðræknisfé-
agsins, Skúli Jóhannsson,
®fm er jafnframt forseti
r°ns mun stjórna þingfund-
Um télagsins. Hann er sá mað-
sem hvað mest hefir unn-
1 að íslenzkum þjóðræknis-
■malum okkar nokkur undan-
afm ár. Hann hefir blásið
nym lífi 'í þjóðræknisdeild-
ma Frón og undir hans for-
ustu hefir stjórnarnefnd
r°ns íátið klæða og prýða
undarsalinn í byggingu Þjóð-
rmknisfélagsins að 652 Home
ötreet,
falL
og komið þar fyrir
egum nýjum stólum og
s°r°um. Auk þess sem bóka-
a n Fróns hefir verið skipu-
lagt
eins og bezt verður gert
er nú þessi staður um allt
myndarlegur og aðlaðandi.
aþn hefir styrkt Lögberg-
eimskringlu með ráðum og
dáð og hafi hann þökk fyrir
það.
Skúli Jóhannsson mun
stjórna hinni ágætu saim-
komu, sem Frón hefir efnt til
á fimmtudagskveldið 26. febr.
og auglýst er á baksíðu blaðs-
ins og er hún upphafsliður
þingsins. Fyrrverandi forseti
Þjóðræknisfélagsins Dr. Ric-
hard Beck flytur aðalræðu
kveldsins, auk þess verður
þar margt fleira, sem einnig
verður unun á að hlýða.
Skemmtiskrá Icelandic
Canadian Club samkomunar,
sem fer fram á föstudags-
kveldið ber með sér að einnig
hefir verið mjög til hennar
vandað. Heimir Thorgrímson
flytur aðalræðuna og Gissur
Elíasson stjórnar samkom-
unni og verður skýrt frá
henni nánar í næsta blaði.
Það hefir víst aldrei komið
fyrir í fimmtíu ár að aðal-
ræðumaður og gestur þings-
ins hafi verið kona, og hefir
það vakið mikla tilhlökkun
hjá fólki hér um slóðir að fá
tækifæri til að kymnast þess-
ari gáfuðu og fjölmenntuðu
konu, Dr. Guðrúnu Helgadótt-
ur, skólastjóra Kvennaskólans
í Reykjavík. Próf. Haraldur
Bessason minntist hennar að
nokkru í blaðinu 5. febrúar
og mun gera nákvæmari grein
fyrir ferðum hennar og fyrir-
lestrahaldi í næsta blaði. Svo
sem auglýsingin á bciksíðu
blaðsins gefur til kynna hefir
verið prýðilega vandað til
þessarar samkomu. Við vænt-
um þess að geta birt myndir
af fólkinu sem skemmtir með
söng og hljóðfæraslætti í
næsta blaði.
Þetta er 51sta ársþing Þjóð-
ræknisfélagsins, verður eitt af
skemmtilegustu og meirihátt-
ar ársþingum félagsins.
GULLBRÚÐKAUP
Árni V. Johnson og Rose
(Halldorson) kona hans áttu
50 ára hjúskaparafmæli í
sumar sem leið. Þau voru gef-
in saman í hjónaband 24. maí
1919 í Cavalier, en heimili
þeirra er nálægt Mountain og
þar efndu tengdadóttir og
dóttir þeirra, Mrs. Vernon
(Gloria) Johnson og Mrs.
Norma Kristín Nason til sam-
sætis 3. ágúst 1969, þeim til
heiðurs.
Þrjár systur Mrs. Johnson
sótu samsætið, Mrs. Chris
Geir, Mountain, Mrs. Marga-
ret Weber, Los Angeles, Mrs.
Skafti (Greda) Gudmundson,
Waukegan, 111. — Ennfremur
Björgvin frá California, bróð-
ir Mrs. Johnson, sem hafði
staðið upp með honum fyrir
50 árum og systur hans þrjár:
Mrs. Petrina Gestson, Moun-
tain, Mrs. Pauline Bardarson,
Oakland, California, Mrs. O.
D. (Laufey) Forsterer, Cam-
ino, Califomia.
F j ö 1 d i annara vina og
vandamanna sótu samsætið
víðsvegar að; frá Vancouver,
Chicago, Waukegan, Victoria,
Winnipeg, Tennessee, Mon-
tana o. s. frv.
Þau hjónin eignuðust tvö
börn, fyrrnefnda dóttir, og
son, Vernor Marion, sem er
talinn. Bamabörnin eru sex
og þessi voru viðstödd: Robert
og Ray Johnson; Phyllis og
Kevin Nason. Pamela John-
son og Patty Nason gátu ekki
komið.
Við árnum Mr. og Mrs.
Johnson heilla í tilefni þessa
merkisdags.
Mrs. Alvin Melsted.
fSLANDSFRITTiR
HÖRMULEGT SLYS Á STOKKSEYRI
Það var ömurleg aðkoma,
er blaðamenn Morgunblaðsins
komu til Stokkseyrar nokkru
eftir hádegi sl. sunnudag, en
þá um morguninn hafði það
hörmulega slys orðið, að þrír
ungir skipstjórar á þremur
bátum af fimm, sem þar eru
gerðir út, drukknuðu í hafn-
arinnsiglingunni, r é 11 fyrir
innan brimgarðinn. Þeir
höfðu ásamt fjórða skipstjór-
anum verið á litlum árabát
að ganga frá leiðarmerkjum
á leiðipni milli skerja inn í
höfnina, þegar ólag reið yfir
bát þeirra og fyllti hann af
sjó og færði í kaf. Fjórða
manninum var bjargað að-
framkomnum af flæðiskeri
um það bil 400 metra frá
þeim stað, sem slysið átti sér
stað, en þangað synti hann
kappklæddur.
Þegar slysið átti sér stað
var norðanátt og bítandi
gaddur.
Skipstjórarnir sem fórust,
voru: Arilíus ]Óskarsson, 27
ára, kvæntur og þriggja barna
faðir; Geir Jónasson, 29 ára,
kvæntur og átti tvö stjúp-
börn, og Jósep Geir Zóphoní-
asson, 33 ára, kvæntur og
fjögurra bama faðir. Maður-
inn, er bjargaðist, heitir Tóm-
as Karlsson og er 46 ára að
aldri.
Framhald á bls. 7.
Bréf frá séra Robert Jack
Tjörn, Vatnsnes,
V.-Hún., Iceland,
10. febrúar, 1970.
N ý 1 e g a bárust tvö blöð
hingað í gegnum hríðina. 1
fyrra blaðinu bárust þær
sorgar og saknaðar fréttir um
lát S. V. Sigurðar frá River-
ton og í seinna blaðinu birt-
ust einnig slíkar fréttir um
andlát Stefáns ritstjóra Ein-
arsson. Þó ég þekkti og virti
Stefán ritstjóra og hefði ætíð
mikla ánægju að spjalla við
hann á skrifstofu Heims-
kringlu í Sargent Avenue, var
það S. V. Sigurðsson sem
skipaði virðulegan sess í lífi
og starfi mínu á meðan ég
þ j ó n a ði í Árborg-Riverton
prestakalli. S. V. var ekki að-
eins kirkjunnar vinur, heldur
var hann mann vinur, góðvilj-
aður í öllu sem hann tók að
sér, drengur góður í samskipt-
um við aðra, og ágætur landi
og Íslandsvinur. Bæði hann
og bræður hans höfðu feng-
ið að arf frá foreldrum sín-
um dugnað og framkvæmd-
ar h æ f i 1 e i k a, menn sem
hafa gert garðinn frægan,
langt í burtu frá gamla
landinu. Það var ánægjulegt
að hitta S. V., frú hans og
Ólaf hérna fyrir tveimur ár-
um. Það er gott að vita að
S. V. sá land forfeðra sinna
áður en hann kvaddi þennan
heim.
Mikið skarð er höggvið í
útgerðarmanna stétt í Mani-
toba. Ég votta öllum ástvin-
um þessa mæta manns samúð
mína. Guð blessi ríkulega
minningu þeirra.
Ég er nýkominn hingað frá
því að jarðsyngja í stórhríð,
Sigurbjörn Guðmann Guð-
mundsson frá Hávastöðum í
Framhald á bls. 3.