Lögberg-Heimskringla - 16.07.1970, Qupperneq 2
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 16. JÚLÍ 1970
Hörmulegur atburður
Framhald af bls. 1.
hans, sem var svo mjög bundið sölum Alþingis, var þannig
á traustum grundvelli reist, og munu andstæðingamir í
stjómmálaibaráttunni oft hafa fengið að reyna, hversu óbif-
anlegur þessi stjórnmálalegi gmnnur forsætisráðherrans var,
enda mála sannast, að á ólgusjó íslenzkra stjómmála stæði
dr. Bjarni Benediktsson sem klettur úr hafinu. Kom þetta
ekki hvað sízt í ljós, er það féll í hans hlut, og það var
ósjaldan, að táka hinar örlagaríkustu ákvarðainir fyrir hönd
þjóðar sinnar. Hann var þrekmikill dugnaðarmaður (hjá
honum sjálfum var lýsingarorðið „duglegur" alveg sérstakt
hrósyrði), fastur fyrir og kjarkgóður. Hann var mikill
Islendingur, sem lifði og hrærðist í sögu og málefnum
þjóðar sinnar. Má með sanni segja, að á íslandi léti hann
sér ekkert mannlegt óviðkomandi eins og gerst má ráða af
geysilega umfangsmiklum skrifum hans, sem að jafnaði birt-
ust í höfuðmálgagni stjórnmálaflokks hans, Morgunblaðinu.
Dr. Bjami Benediktsson setti þjóð sinni stórþjóðarmark-
mið, og virtist framtíðarmynd hans af íslandi ekki óáþekk
hugsýnum djörfustu aldamótaskáldanna. Málfar forsætisráð
herrans var í ætt við hinar fomklassísku bókmenntir þjóðar
hans, og að ýmsu leyti vom hans persónulegu eigindir af
sömu rót og stuðlabergið á norðurströndum, sem haggast
ekki, þótt ægir greiði því ómild slög.
Við fráfáll dr. Bjarna Benediktssonar, konu hans frú
Sigríðar Bjömsdóttur, og dóttursonar þeirra ungs senda
íslendingar í Vesturheimi samúðarkveðjur sínar austur um
hafið. — H. B.
DR. RICHARD BECK:
Tilvolið
landkynningarrit
Fire Takes Life Of lcelandic PM
REYKJAVIK, Iceland
(Reuters) — Premier Bjarni
Benediktsson, 62, who led the
movement bringing Iceland
into NATO, was bumed to
death early today along with
his wife and grandson when
a fire swept the premier’s
state owned summer house at
Thingvalla, 38 miles from the
capital.
The premier, his wife Sig-
ridur Bjornsdottir and his
two-year old grandson Bene-
dikt V ilmundarsson went
there to spend the night.
Firemen hurried to the
scene when the alarm was
raised but the woodén build-
ing was reduced to ashes,
A neighbor raised the alarm
when he saw the house in
flames.
Benediktsson, chairman of
the Independence partý, be-
came premier in November,
1963, when he succeeded Ol-
afur Thors who resigned for
health reasons.
He had previously served
in the Thors administration
as minister of justice and
later as foreign minister.
Benediktsson became a pro-
fessor of law at the Univer-
sity of Iceland at the age of
24. He served for some years
as mayor of Reykjavik, Ice>-
land’s capital.
The country went into a
state of mouming as news of
the tragedy circulated.
Flags flew at half staff and
the r a d i o played solemn
music.
Benediktsson was a distin-
guished lawyer with a long
record of public service.
Educated at the Universi-
ties of Iceland and Berlin, he
became a law professor in
1932, but moved into politics
and in 1940 was elected mayor
of Reykjavik.
He was chosen as his coun-
try’s delegate to the United
Nations General Assembly in
1946 and became foreign af
fairs and justice minister the
following year.
He remained prominent in
govemment life, apart from
the period 1956 to 1959 when
he was chief editor of the
daily newspaper Morgun-
bladid.
After a spell as president
of the Althing legislature in
1959, he became minister of
justice and industries, and in
November, 1963, was chosen
as premier.
Winnipeg Free Press,
July 10.
Robert Jack
Framhald af bls. 1.
al-lir, sem lesa hana hafi gam-
an af.
Móðir mín varð 87 ára í gær
og er hún mjög frísk og and-
lega hress.
Allsherjar verkfalli er nú
lokið og fá nú allar stéttir
15% kauphækkun. Þjóðin hef-
ir tapað miklu á þessu verk-
falli, en hún vill vinna það
til á tíma bezta bjargræðis,
að leggja niður vinnu og allt,
se mhenni fylgir.
Eitrið í ösku hér er að
minnka, en samt hefir tjónið
verið mikið. Það verður ekki
hægt fyrr en í haust að vita
fyrir víst hversu mikið tjónið
verður. Ég veit að búskapur
okkar hér á Tjöm er hér um
bil búinn að vera.
Með beztu óskum og kveðj-
um frá Vigdísi og okkur öll-
um á Tjöm.
Roberf Jack.
Mér var það sérstaklega
kærkomin sending, þegar mér
barst nýlega bók Birgis Kjar-
an, alþingismanns og rithöf-
undar, Skafiafell-Þingvellir
(Þjóðgarðar Íslands), er út
kom síðastliðið haust. Þetta er
óvenjulega falleg bók, prýdd
fjölda litmynda af þessum
fögm og svipmiklu, fyrstu
þjóðgörðum Islands, og frá
gangur hennar að öðru leyti
allur hinn vandaðasti, útgef-
andanum (Bókaútgáfunni Öm
og Örlygur H. F. í Reykjavík)
til sóma.
Lesmálið er einnig hið geð-
þekkasta og nær ágætlega til-
gangi sínum. Úr miklu efni
var 'þar vitanlega að velja,
ekki sízt um Þingvelli, en að
mínum dómi hefir höf. tekizt
prýðisvel um efnisval text-
anna, og fært það í greina
góðan og skemmtilegan bún
ing. Hinn mikli sögulegi og
landfræðilegi fróðleikur, og
fjölbreyttar náttúmlýsingam-
ar, er smekklega saman ofið
í s'kýra heildarmynd. Leynir
það sér ekki, að hér heldur
á pennanum glöggskyggn og
h e i 1 h u g a náttúruunnandi,
enda hefir Birgir, með fyrri
bókum sínum, sýnt í ríkum
mæh djúpstæða ást sína
íslenzkri náttúmfegurð, og
túlkað hana á sambærilegan
hátt, svo að lesandinn heill
alst af frásögn hans. Má hið
sama segja um textana í um
ræddri bók hans. Yfir þeim
hvílir sami aðlaðandi frásagn
arblærinn.
Birgir hefir leitað víða ti
fanga um efnið í þessa mynda-
texta sína; í þær sögur vorar.
sem þjóðgörðunum tveim eru
tengdar, til annarra sögulegra
heimilda, og til ferðabóka ís-
lenzkra og erlendra náttúm-
fræðinga, er heimsóit hafa
staðina og lýst þeim i ritum
sínum. Textann um Þingvelli
kryddar hann einnig tilvitn-
unum í snillcterkvæði sumra
skálda vorra um þann dásam-
lega og helga stað þjóðar
vorrar.
Upptalningar hinna erlendu
rita um þjóðgarðana ?m sér-
staklega mikils virði iyrir út-
Ienda ferðamenn, sen bókin
er sýnilega ætluð öðrum
fremur, og vilja leita s«r frék
ari fræðslu um land Tort og
þjóð. Með þá í huga eiu text
amir og .skýringar myidanna
á þrem erlendum turgumál
um, ensku, dönsku og þýzku
auk íslenzkunnar. Fæ rg ekki
betur séð, en að þýðerdumir
hafi leyst verk sitt Tel af
hendi.
Teikningar Hilmars Jelga-
sonar em einnig mjö? vel
gerðar, einkar smekkle^ar og
falla vel að efninu. Litnynd-
irnar, sem em eftir mar^, eru
hver annarri fegurri c? til-
komumeiri. Landslagségurð
þjóðgarðanna tveggja rLa les-
endrnn fyrir sjónir í hrikaleik|
símun og dásemdum. Eiga
löfundar miklar þakkir skilið,
DÓtt eigi verði þeir hér taldir,
en þeir eru allir nafngreindir,
og vísað til mynda hvers um
sig, í n'afnaskrá aft'an við
bókina, ásamt með skrá yfir
filmutegundir.
Þ e s s i þakkarverða bók
Birgis Kjaran er, í fáum orð-
um sagt, iilvalið landkynning-
ingarrii, er mim opna augu
útlendinga, og ainnara, sem
f
það lesa, fyrir hinni miklu og
einstæðu náttúrufegurð Íí>
lands og þá um annað frarr}
eins og hún lýsir sér í þjóð-
görðunum tveim, sem hún
fjallar um. Þess vegna á hún
einnig mikið erindi til íslend-
inga vestan hafs.
(Því miður veit ég ekki um
verð þessarar fögra og ágætu
bókar, en panta má hana
beint frá útgefendum: Bóka-
útgáfan Öm og Örlygur h.f.,
Borgartúni 21, Reykjavík.)
ÍSLANDSFRÉTTIR
Tíminn 4.—7. júlí
LISTAHÁTÍÐIN
Þeirri víðfrægu Listahátíð
í Reykjavík 1970 lauk í gær-
kvöldi, í Háskólabíói með
söng Victoru de los Angeles
og undirleik Ashkenazys, en
sem kunnugt er var þessu síð-
asta atriði Listahátíðarinnar
frestað um einn dag vegn'a
veikinda söngkonunnar.
Páll Líndal framkvæmda-
stjóri Listahátíðarinnar sleit
síðan hátíðinni með ræðu og
voru þau de los Angeles og
Ashkenazy krýnd lárviðar-
sveigum, og er áheyrendur
gengu úr bíóinu lék Lúðra-
sveit Reykjavíkur ættjarðar-
lög þar úti fyrir.
VEIÐIÞJÓFAR
AÐ VERKI
Ljósmyndari Tímans var í
fylgd með ábúanda á Valda-
læk í Vesturhópi og nokkrum
rnönnum öðrum, er þeir komu
um da'ginn að veiðiþjófum,
sem lagt höfðu net fyrir utan
mynni Þjórsár í Þverár-
hreppi. Eftir nokkurt stapp
yfirgáfu hinir óboðnu gestir
svæðið, en ábúandinn hirti
netin, sem þeir skildu eftir.
Þegar komið var að veiði-
mönmmum, höfðu þeir lagt 2
net, og voru að undirbúa lagrr
ingu tveggja annarra, og aug'
sjáanlega ætlun þeirra að
leggja netin fyrir allt ár-
mynnið og hirða þannig allan
þann fisk, sem þangað kæmi,
þótt öll netaveiði væri þarna
bönnuð.
í Þjórsá mun einkum vera
silungur og sjóbirtingur.
GÓÐUR AFLI
í FISKITROLL
EN HUMARVEIÐIN
ER TREG
Humarveiði Þorlákshafnar-
báta hefur verið heldur léleg
síðan farið var að stunda þá
veiði eftir verkfallið. Gæftir
hafa verið slæmar, en humar-
bátamir fiska ekki nema í
góðu. Um 15 tonn af humar
eru komin á land, og bátam-
ir sjaldnast komizt upp fyrir
tonn af hurnar, en aftur á
móti hafa þeir fengið talsvert
af öðrum fiski, eða allt upp í
10 tonn í róðri.
18 BRETAR í 6 VIKNA
LEIÐANGUR HINGAÐ
14. júlí, eða á þriðjudag í
næstu viku, kemur 17 manria
vísindaleiðangur frá Wales-
háskóla í Bretlandi til sex
vikna dvalar hér á landi. Mun
leiðangurinn hafa aðsetur í
Framhald á bls. 3.
Garlic-laukur er heilnæmur
Garlic-laukur er sóttvarnarmeðal, sem hreinsar blóðið og
hamlar gegn rotnunarsýklum. 1 Adams Garlie Pearles er
sérstök Garlic-olía er notuð hefir verið til lækniniga árum sam.
an. Milljónir manna hafa um aldir neytt Garlic-lauks ser til
heilsubótar og trúað á hollustu hans og_ lækningamatt. Eflið
og styrkið heilsu ykkar. Fáið ykkur í dag í lyfjabúð einn pakka
af Adams Garlic Pearles. Ykkur mun líða betúr og finnast þið
styrkari, auk þess sem þið kvefist sjaldnar. Laukurinn er í
hylkjum, lyktarlaus og bragðlaus.
The Canadian
—þægilegasti vegurinn
til að sjá Canada
Hvolfþak úr gleri; músík, bezti
matur, ágætis sæti og hvílur. Þú
færð þetta og fleira á Canadian.
Á hverjum degi fara lestimar
austur og vestur. Farðu um borð
og njóttu hvíldar.
Finnið ferðastjóra þinn eða ein-
hvem í Camada Pacific skrifstofu.
Pantið farmiða strax.
CP
Rail