Lögberg-Heimskringla - 28.01.1971, Blaðsíða 6
6
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 28. JANÚAR 1971
51. Ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi
Framhald af bls. 5.
söngur. — Próf. Haraldur Bessason, Heimir Thor-
grímsson, Skúli Jóhannsson og Jóhann Sigurd-
son fluttu ræður, og svo voru veitingar sem kon-
urnar sáu um. Fyrir milligöngu Próf. Bessason
kom frú Hrund Skúlason í apríl og hjálpaði Helgu
og Snorra Rögnvaldson til þess að telja og raða
bókum í safninu, og tölusetja þær. Þær reyndust
vera 2,009. (Kári Byron, forseti; Ingibjörg Rafn-
kelson ritari).
„Brúin", Selkirk: Mrs. McKeag flutti: Deildin
hefir haft fjóra fundi á árinu. þar á meðal einn
skemmtifund. Fjórir nýir meðlimir. Samkoman
var 24. apríl, og skemmti Sveinn Sigfússon, sagði
ágrip af ferðasögu sinni til Islands og Evrópu;
svo var söngur, hljóðfærasláttur og upplestur.
Fyrir jólin heimsóttu nokkrir meðlimir Betel,
með gjafir, og veitingar og skemmtu með söng
undir umsjón Mrs. Lillian McKeag, og Stefáns
Helgasonar. Sjúkranefnd er til þess að heimsækja
veika. $50.00 sent í Styrktairsjóð Lögb.-Heimskr.
Ákveðið var að útbúa skrúðvagn (Float) og taka
þátt í „Centennial" hátíð í Selkirk á komandi
sumri. (Jack Björnson, forseti; Guðrún Vigfús-
son, ritari).
„Gimli" deild, Gimli, Man.: Mrs. Sigurdson
flutti. Deildin þakkaði þann heiður auðsýndur
deildinni er Mr. J. B. Johnson var gerður heið-
ursfélagi Þjóðræknisfélagsins. Meðlimir deildar-
innar hafa tekið þátt í ýmsum störfum stjómar
Þjóðræknisfélagsins, svo sem samsætum og fl.
Fjórir aðalfundir á árinu og fjöldi aukanefndar-
fundir. Skemmtun var haldin á „Betel“, söngur
og mynd frá Islandi sýnd. Meðlimir í deildinni
eru 74. Deildin hefir lagt fé til ýmsra fyrirtækja:
$25.00 til L.-H.; $10.00 í skógræktarsjóð; $25.00 til
Gimli Art Club; $20.00 til Gimli Centennial Com-
mittee; $20.00 til Jacqueline Johnson, stúlku sem
við útnefndum Beauty Queen í fyrrasumar.
Mikið starf hefir verið lagt í landnámskortið,
sem er hér sýnt á þinginu. Þetta kort sýnir jarðir
ísl. landnemanna að Gimli og nágrenni, og bæj-
arnöfn heimilanna, alla leið suður til Boundary
Park. Mikla þökk ber að færa nefndinni sem
vann svo ötullega við þetta starf: Mrs. S. A. Sig-
urdson, Stefán Stefánson, E. Einarson, og Adolf
Hólm. Deildin hefir tekið að sér að varðveita
gamla grafreitinn, sem er í norð-vestur homi
Gimli-bæjar, sem er að sögn, elzti ísl. grafreitur-
inn í N. Ameríku, og hafa miklar bréfaskriftir
og fundir verið í sambandi við það mál, og mun
það koma fyrir þetta þing. Gimli-deild hefir lagf
fram hugmynd um að allar þjóðræknisfélags-
deildir í Manitoba taki höndum saman um að
útbúa og nota einn skrúðvagn fyrir öll hátíða-
höld í sambandi við Manitoba 100 ára afmælið.
Skemmtisamkoma var haldin í vor er leið.
Skemmtu þar: Hon. P. M. Petursson, John
Harvard og Magnús Elíasson, auk heimafólks;
mikill söngur undir umsjón Mrs. Shirley John-
son. Deildin saknar þess nú að Mrs. Johnson er
að flytja úr bænum og þakkar henni fyrir mikið
og gott starf. Mrs. D. Björnson og Mrs. S. Peter-
son hafa tekið við starfi hennar, — að æfa barna
söngflokka. Tveir meðlimir hafa fallið frá á
árinu: Mrs. Elli Narfason og Mr. Ingi Einarson.
Dagana 3. og 4. ágúst voru mörg málverk, og
leiriðn (pottery) sýnd í Gimli Training Centre.
Einnig var framsögn bama og kvikmynd sýnd.
Meðlimir Gimlideildar, Mrs. Lára Tergesen, Mrs.
Inga Nelson og Mrs. Heiða Siðurdson voru við-
staddar á tilteknum tíma til að taka á móti fólki
þessa daga ásamt konum frá Gimli Art Club.
Það er ánægjuefni að því að nú er að vakna
áhugi á Gimli fyrir lífi og starfi landnemanna.
Hefir J. F. Dunlop, yfirmaður Gimli flugvallar-
ins látið nefna blað þeirra „Framfara"' og
sýndi fyrsta blaðið með því heiti Ijósprentaða
mynd af fyrsta blaði hins gamla Framfara og
einnig þýðingu á ensku eftir Miss Sigurbjörgu
Stefánson, og er hún meðlimur Gimli-deildar.
Svo sjá má að deildin hefir ekki verið aðgerðar-
laus á þessu s. 1. ári. (Mrs. Lára Tergesen, forseti;
Mrs. L. Stevens, ritari).
„ísland", Morden, Man.: Flutt af Thomas
Thomasson. Nokkrir fundir voru haldnir á árinu
og Sumardags fyrsta samkoma þar sem heima-
fólk, unglingar og fullorðnir skemmtu með söng
og hljóðfæraslætti. Útisamkoma (picnic) var hald-
ið 27. júlí til að minnast 50. ára afmælis Þjóð-
ræknisfélagsins og einnig þess að liðin voru 70 ár
síðan íslendingar settust að í þessari byggð. Deild-
in „ísland“ og kvenfélagið „Fjólan“ stóðu að
samkomunni. Þar voru komnir flest allir íslend-
ingar úr byggðinni, og margir góðir gestir frá
Winnipeg; Próf. og Mrs. H. Bessason og dætur
þeirra; Mr. og Mrs. G. L. Johannson; og frá
Minneapolis, Rev. og Mrs. H. Haak. Forseti
“íslands”, Paul Sigurdson stýrði samkomunni, en
ræður héldu, Próf. Bessason, G. L. Johannson og
fleiri; Mrs Haak (Petrina Sigurdson, systir Paul)
söng ísl. lög, en Signy Sigurdson spilaði undir á
„guitar“; svo var almennur söngur og upplestur,
veitingar og útileikir. Rev. Haak flutti bæn.
Þökkum við aðkomnu gestunum góða heimsókn.'
(Paul Sigurdson, forseti; Guðrún Thomasson,
ritari).
Allar deildarSkýrslur létu í ljósi þakklæti til
stjórnarnefndar Þjóðræknisfélágsins, og óskuðu
starfinu allra heilla. Voru þær allar samþykktar
og viðteknar með þakklæti. G. L. Johannson lét
í ljósi þá hugmynd að æskilegt væri að fjölrita
allar þessar ágætu skýrslur, og hafa til aflestrar
á fundum. Var það samþykkt og Vísað til kom-
andi stjórnarnefndar.
Skýrlsa kjörbréfanefndar: Fulltrúar deilda á
þingi: Frón, Gunnar Baldwinson, Kristín John-
son, Páll Hallson, Skúli Jóhannsson, Jakob Kristj-
ánsson Báran (Mountain): Dr. R. Beck, Mrs. M.
Beck; ísland: Thomas Thomsson; Lundar: Ingi-
björg Rafnkelsson, Snorri Rögnvaldson; Brúin:
Christine Stefánsson, Lillian McKeag; Norður-
ljós: G. C. Thorvaldson; Esjan: Herdís Eiríksson,
Gestur Pálsson, Stefán Stefánsson, Kristín Skúla-
son; Gimli: Guðmundur Peterson,' Stefán Stef-
ánsson, Mrs. S. A. Sigurdson.
ANNAR FUNDUR, KL. 2. E. H.
Davíð Björnsson las skýrslu frá Þjóðræknis-
félaginu á Akureyri (Vinafélagi Vesíur-Íslend-
inga) sem var með ánægju viðtekið í fyrra sem
deild í Þjóðræknisfélagi V.-íslendinga. Félagið
var stofnað árið 1965 af átta mönnum, Akureyr-
ingum og Eyfirðingum, sem flestir höfðu dvalið
vestan hafs um lengri eða skemmri tíma. Núver-
andi formaður er Árni Bjarnarson:
Tilgangur félagsins er að vinna af alefli að
auknu samstarfi og treysta vináttuböndin á milli
íslendinga austan hafs og vestan, m. a. með því
að taka á móti og greiða á allan hátt götu þeirra
landa okkar að vestan, er hingað kæmu í heim-
sókn, einstaklinga eða ferðahópa.
Hefir síðan verið haldin árlega svokallaður
Vestmannadagur í júlímánuði í sambandi við
hópferðalög Vestur-íslendinga til Akureyrar.
Hefst hann ætíð með guðsþjónustu í kirkju bæj-
arins, og er þá flutt sérstök kveðja til gesta
okkar að vestan. Að því loknu dreifast gestirnir
oftast og njóta hádegisverðar hjá bæjarbúum,
frændum eða vinum. Síðan er byggðarsafnið og
önnur söfn heimsótt, farin kynnisferð um bæ og
nágrenni, en kvöldverður snæddur ýmist í boði
bæjarstjórnar Akureyrar eða enhverra félags-
samtaka í bæ eða nágrenni.
Má fullyrða, að þessar heimsóknir hafa vakið
almenna ánægju hér og Vestmannadagurinn
stofnað til margvíslegra vináttubanda, sem von-
andi treystast eflaust á komandi árum. Nú höf-
um við smátt og smátt fært móttökurnar að
nolckru leyti út fyrir sjálfan Akureyrarkaupstað
með því að skipuleggja og stuðla að því, að ýmsir
fleiri en Akureyringar ættu þess kost að kynnast
vestur-íslenzku gestunum með því að bjóða þeim
heim til sín.
Á s. 1. árum hafa tvö sveitarfélög í Eyjafirði
haft stórmyndarleg boð, bæði í Freyvangi og
Laugarborg, en einnig Skagfirðinar, ólafsfirðing-
ar, Dalvíkingar og Húsvíkingar. Vitað er að
þetta hefir vakið mikla ánægju gesta okkar vest-
an um haf og ekki síður gestgjafanna.
Keypt hafa verið og gefin til hinnar nýju
bókhlöðu á Akureyri mörg hundruð bindi af bók-
um, tímaritum, blöðum og smákverum, sem gefin
hafa verið út í Vesturheimi og snerta á einhvern
hátt sögu Isl. vestra og bókmenntastarfsemi
þeirra þar í næstum heila öld. Er það hugmynd-
in með bókagjöfunum, að stofnuð verði sérstök
deild í Amts-bókasafninu á Akureyri, er ein-
göngu varðveiti blöð, tímarit, bækur, smáprent
o. fl. sem komið hefur út á íslenzku vestan hafs
og hér heima, ýmist eftir V.-íslendinga eða um
þá. og einnig það, sem komið hefur út á ensku
eða öðrum tungumálum varðandi landnám
íslendinga og sögu þeirra í Canada, Bandaríkjun-
um og Suður-Ameríku. Mun þessi deild verða
nefnd: SAFN TIL SÖGU ÍSLENDINGA í VEST-
URHEIMI.
Þá er að minnast tveggja bóka, sem út komu
á liðnu ári og Þjóðræknisfélagið hér hefur stuðl-
að að, að kæmust á prent, en þær eru: ÆVISAGA
SÉRA JÓNS BJARNASONAR í Winnipeg, fyrsta
íslenzka prestsins í Vesturheimi, eftir séra Run-
ólf Marteinsson, mikið rit, 384 bls. í stóru broti,
og NÝJA ÍSLAND í CANADA, ferðasaga og
greinargerð þeirra manna, er völdu landnámsstað-
inn við Winnipegvatn árið 1875, nú ljósprentað
eftir Ottawa-útgáfunni það sama ár. Útgefandi
beggja bókanna er Árni Bjarnarson á Akureyri.
Sendum við báðar bækurnar að gjöf til Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vesturheimi með þess-
ari skýrslu.
Þá er ástæða til að geta þess, að verið er að
búa til prentunar á vegum félags okkar rit, sem
eingöngu fjallar um samstarf Islendinga austan
hafs og vestan og kemur fyrsta heftið út í vor.
Að lokum má geta þess, að þegar er hafinn undir-
búningur að næsta Vestmannadegi á Akureyri,
og væntum við þess að stór hópur Vestur-íslend-
inga heimsæki okkur með hækkandi sól og nýju
sumri.
F é 1 a g okkar sendir svo Þjóðræknisfélagi
Vestur-íslendinga í Winnipeg, hjartanlegar kveðj-
ur og hamingjuóskir um gifturík störf á Þjóð-
ræknisþinginu 1970. (Árni Bjarnarson, formaður
og framkvæmdastjóri; Gísli Ólafsson, ritari, Pét-
ur Sigurgeirsson, vara-formaður; Jón Thordar-
son, gjaldkeri).
Þingheimur fagnaði vel þessari ágætu skýrslu
og lét í ljósi þakklæti fyrir hinar góðu bókagjafir.
Skógræktarmál: Dr. Beck flutti skýrslu milli-
þinganefndar, hafði hann sent $75.00 til íslands
í Skógræktarsjóð, — gjafir frá einstaklingum og
deildum, og bar fram þakklæti frá Hákoni Bjarna-
syni, skógræktarstjóra í Reýkjavík. Hafði Dr.
Beck á árinu ritað grein í L.-H. um skógræktina
á íslandi, („Viljinn til góðs í grónu trjánum lifir“).
Höfðu þau hjónin, Dr. og Mrs. Beck, í heimsókn
sinni til íslands, á s. 1. sumri, ferðast með Hákoni
til Þingvalla og skoðað reitinn sem helgaður er
V.-íslendngum, og stendur sá reitur í góðum
blóma. Hvatti Dr. Beck alla V.-íslendinga til þess
að styðja vel skógræktarmálið.
Kveðjuílutningur aí hálíu Þjóðraeknisfélagsins
í íslandsferðinni. Dr. Beck var falið, af Þjóð-
ræknisfélaginu að bera kveðjur og heillaóskir til
íslands og íslendinga, í heimferð sinni og flutti
víða þær kveðjur, komu sumar fram í útvarpi og
sjónvarpi, voru prentaðar í Morgunblaðinu og
Vísi, og síðar í Lögberg-Heimskringlu. Bar hann
nú fram skýrslu sína um það efni. Góður rómur
var gerður að, og þingheimur mjög svo ánægður
með þessa ágætu skýrslu.
Framhald í næsta blaði.