Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 27.07.1972, Qupperneq 1

Lögberg-Heimskringla - 27.07.1972, Qupperneq 1
Siater Laufey Olson, Jan. 71 fh Advent Lutheran Church, 3000 North Hamline Ave., ST. PAUL. Minn. 55113 íslenzki fóninn á borgarhöllinni í Winnipeg 7. september íslenzki fáninn verður dreginn að hún á borgarhöllinni í Winnipeg að morgni hins 7. seplember næstkomandi, og svífur yfir borginni til kvölds. Þá verða vinalengslin sem tókust milli Winnipeg og Reykjavíkur 7. september, 1971, ársgömul. Þann dag undirritaði Geir Hallgrímsson, borgarstjóri Reykjavíkur staðfestingarskjal um vinállubönd milli borg- anna, en áður hafði Siephen ‘ Juba, borgarstjórinn í Winnipeg, undirritað skjalið. Hö gberg - ^etmöfer insla Stofnað 14. jan. 1888 Stofnað 9. sept. 1886 86. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 27. JÚLÍ 1972 NÚMER 25 Fjölmennið á Islendingahátíðina á Gimli 6. ágúst 1972 FJALLKONAN Rósa Johnson Hún var bláklædd, bros- mild og björt yfirlits, Fjall- konan, þegar hún leit inn hjá Lögberg-HeimSkringlu einn lengsta sólskinsdag ársins. Síðdegissólin kynnti geislamdi bál á gluggarúðunum, svo kæfandi hiti var inni á skrif- stofu blaðsins. Við Fjallkon- an flúðum því í forsæluna hinumegin á götunni, og dreyptum á svaladrykk í kaffihúsi þar. Frú Rósa Johnson lagði frá sér fangfylli af bréfum, sem öll voru frímerkt og snyrti- lega samanbundin. Hún sagð- ist þurfa að koma þeim í póst- inn á heimleiðinni. Helzt kom til hugar að líkja þeSsari byrði við kveitibindi, því þama var Fjalflkonan með uppskeruna af dagsverkinu, og Rósa er sléttubarn, sem ólst upp á bú- jörð foreldra sinna Péturs og Jóhönnu Pétursson í grennd við Lundar, Man. Bréfin hafði hún skrifað eftir hádegi þá um daginn, því auk heimilisann- anna gegnir hún skrifstofu- störfum fyrir tvo syni sína, sem reka eigin fyrirtæki. „Það eru tvíburarnir, Jón Pétur og Helgi Carl,“ sagði hún. Þá var það orðið ljóst að annar tvíburimn ber nafn Péturs, föður Rósu, enn hinn hefir hlotið nafn föðurafa síns, Helga Johnson. Rósa var fámál um sjálfa sig. Henni er hugstæðari eig- inmaðurinn, böm þeirra fimm og barnabörmn sem nú eru orðin 13. Með innilegri hlýju ti'lkynnti hún að hún væri nú orðin amma níu drengja og fjögurra stúlkma. En þegar henni var bent á að það væri ekkert viðvanimgs handbragð á bréfunum sem hún væri með, viðurkenndi hún að hún hefði numið verzunarfræði í æsku og verið við skrifstofu- störf þartil hún giftist Jóni Gustaf Johnson, syni Helga og Astu Johnson í Winnipeg, sem nú eru bæði látin. Hún kom unglingur til' Winnipeg og vann stutt bil við Eaton’s verzlunina, en fór svo til Sas- katoon, Sask., og stundaði þar nám. Eftir að útskrifast af verzlunarskólá, leitaði hún aftur til Winnipeg og komst þar að vinnu á skrifstofu. Jón og Rósa búa nú í Winni- peg, en voru um hríð í Regina, Sask., því Jón hefir lengi skip- að ábirgðarstöður hjá Westing- house Canada Limited, og er nú framkvæmdarstjóri fyrir- tækisins á starfssviði þess í Vestur fylkjunum (Westem Framhald á bls. 3. Brian Jakobson forseti dagsins Nýt-f- leikfélag stofnað fyrir íslendingahótíðina Hirðmeyjar Fjallkonunnar Hið nýuppsprottna Vestur- íslenzka leikfélag vissi ekkert hvað það hét fyrrenn íslend- ingadagsnefndin tilkynnti að það héti „New Iceland Drama Society," eða „Leikfélág Nýja íslands." Hingað til hefir leik- félagið varla fundið til tilveru sinnar að öðru leyti en því að 26 nemendur við Manitoba háskólann hafa gengið að verki eins og einn maður í hvert sinn sem þeir hafa kom- ið saman til að æfa „Gullná Hliðið“ eftir Davíð Stefáns- son. í ensku þýðingunni, sem leikfélaigið hefir til meðferð- ar nefnist leikritið „The Golden Gate.“ Þessir nemendur háskólans hafa haft það á tilfinningunni síðan snemma í fyrravetur að þeir væru að verða að leikfé- lagi. En frá byrjun máímán- aðar hafa þeir verið of upp- teknir við leikæfingar til að gera sér rellur útaf nafngift og öðmm smámunum. Enda er í mörgu að snúast þegar verið er að búa fjögurra þátta leikrit undir sýningu. ÍSlendingadags nefndinni þótti bera vel í.veiðar þegar unga fólkið bauðst til að sýna leikinn á íslendingahátíðinni dagana 5. og 6. ágúst, á Gimli Air Base, en þegar farið var Framhald & bls. 3. Pamela Maureen Downey Katherine Joyce Young John P. Sigvaldason flylur minni Canada Dr. Páll S. Árdal flylur minni íslands

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.