Lögberg-Heimskringla - 19.09.1974, Síða 4

Lögberg-Heimskringla - 19.09.1974, Síða 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. SEPTEMBER 1974 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA Published every Thursday by LÖGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. LTD. S12-26S Porlage Avenue, Winnipeg, Man. R3B 2B2 Editor Emeriius: Ingibjörg Jonsson Editor: Caroline Gunnarsson President, K. W. Johannson; Vice-President, Dr. L. Sigurdson; Secretary-Treasurer, Emily Benjaminson; Adv’t Manager, S. Aleck Thorarinson. Subscription $10.00 per year — payable in advance TELEPHONE 943-9931 “Second class mail registration number 1667” Printed by: GARDAR PRINTING LIMITED ÓGLEYMANLEGUR HÁTIÐISDAGUR Aldrei hefur verið jafn fjöjmennt á Þingvöllum til foma og var þegar Aljbingi sat þar á 1100 ára afmæli íslensks land- náms 28. júlí í sumar. Og sjaldan mun hin stórbrotna nátt- úrufegurð staðarins hafa notið sín betur en í sólríki þess heilladags. Fast að 60.000 manns streymdu fram og aftur um Almannagiá frá morgni til kvölds, dreyfðust um vellina og hátt upp í fjallshlíðar, þar til björgin voru alklædd fólki í litfögrum klæðum. Þar var drjúgur fjórðungur þjóðarinnar samankominn, og allar kynslóðir- Smáböm trítluðu um grýtta gjána við hlið foreldra, sem báru hvítvoðunga á örmum sér, ungling- ar og aldrað fólk gekk sömu leið og öllum virtist létt um spor, eins og fjallgöngur væru þeim í blóð bomar og grýttir vegir kæmu ekki ónotalega við yljamar. Eftir frásögn Morgunblaðsins, voru 4000 manns komnir til Þingvalla um hádegi daginn áður en hátíðin hófst og bíl- amir streymdu þangað það sem eftir var dagsins. Fólkið var hvaðanæva af landinu en flest frá höfuðborgarsvæðinu. Var talið að rösklega 3000 manns hefði gist þar aðfaramótt laugardagsins 27. júlí. Enda talaði ég við nokkur ungmenni, sem voru ferðbúin þegar þau losnuðu úr vinnu fóstudags- kvöldið. Þau fóru í bílum og á reiðhjólum með tjöld og vist- ir, en sumir lögðu land undir fót og bám mal á baki að sið féðranna Klukkan 10.57 var blásið í lúðra af efri barmi Almanna- gjár og leikið Island farsælda frón. Þá var klukkum Þing- vallakirkju hringt og þingfundur hófst að Lögbergi. Aðeins eitt mál var á dagsskrá, tillaga til þingsályktunar um land- græðslu og gróðurvemdaráætlun til minningar 1100 ára af- mæli samvistar lands og þjóðar. Hér er um að ræða verk- efni, sem eftir áætlun mun kosta ríkissjóð miljarð (biljon) krónur á næstu fimm árum- Þó varð ekki annað merkt en að þær þúsundir skattskyldra borgara, sem hlýddu á mál þing- manna, tækju tillögunni með velþóknvm. Þessa afmælisgjöf töldu þeir aðeins réttmæta skuldagreiðslu þjóðarinnar fjnrir ellefu alda búsetu í landinu, og rányrkju kynslóð fram af kynslóð. En á íslandi hefur mannshöndin ekki verið ein um að eyða gróðri jarðar, þó skæð sé. Þar hafa stórvirk náttúruöfl skapað og eytt í sömu andránni frá aldaöðli. Þar skóp guð og eldur Þingvelli löngu fyrir landnámstíð. Þar eyddu Skaft áreldar blómlegum byggðum og grófu gróður jarðar undir ösku aðeins rúmum 900 árum eftir landnám. Aðeins rúmt ár er nú liðið síðan Helgafell steypti eldi og ösku yfir Vest- mannaeyjar, eyddi þar mannvirkjum og jarðargróðri, en byggði um leið sjómönnum eyjanna betri höfn en þeir hefðu annars getað eignast fyrir offjár. Og nú sækir þetta fólk aft- ur heim til eyjanna fögru, hreinsar þær af gjalli og ösku, græðir hlíðar og tún, byggir upp bæina sína, hrósar happi yfir höfninni og gerir sér von um að gufan sem enn stafar upp úr hinu nýja hravrni búi yfir hitamagni, sem verði beisl- að og endist til að hita upp húsin þeirra næstkomandi hundr að ár. x Landið hefur mótað skapgerð þessa fólks og aldrei verður með sanni sagt að íslendinga hafi skort manndóm til að halda velli að minnsta kosti eins vel og nokkur önnur þjóð hefði gert í því landi, sem feðurnir völdu þeim. Vísindin og tækni nútímans hafa búið þjóðinni betri aðstöðu en liðnar kynslóðir áttu við að búa, til að bæta fyrir eigin syndir og þau spjöll, sem orðið hafa af náttúrunnar hendi. Þessi þjóð sér ekki í aurana til að tryggja sér framtíð í landinu. Hún réðist í að leggja hringveg um landið, og víst má telja það Grettistak að hann varð opnaður Þjóðhátíðarárið. En hann er líka dýrmæt afmælisgjöf, því hann opnar mönn- um, nú og um ókomna mannsaldra víðsýni yfir landið og hlýtur um leið að opna augu þeirra fyrir raunum og afrek- um liðinna kynslóða- C.G. Raeða Skúla Jóhannessonar á Þingvöllum Herra hátíðarstjóri, herra Forseti Islands, forsætisráð- herra, tignir gestir, góðir ís- lendingar. 1 nafni hins íslenzka þjóð- arbrots í Vesturheimi, færi ég heimaþjóðinni hugheilar ámaðar- og hamingjuóskir á þessum merku tímamótum í sögu lands og þjóðar, ellefu alda afmæli Islandsláyggðar. Vér óskum íslandi og ís- lendingum velfamaðar og biðjum þess, að sá huldi verndarkraftur, sem haldið hefur hlífiskildi yfir landi og þjóð frá fyrstu dögum ís- landsbyggðar, megi svo á- fram gera um ókomnar ald- ir. Vér Vestur-lslendingar er- um eigi síður en þér sem ætt landið byggið, stoltir af af- rekum feðra vorra og mæðra og þeirri menningarlegu arf- leifð, sem vér allir erum bornir til- Vér erum þess minnugir, að það vom ekki aðeins frelsisunnandi menn, sem námu og byggðu Island fyrir ellefu öldum. Þetta voru dáðríkir og raunsýnir hugsjónamenn. Hér á þess- um helga og söguríka stað, Þingvöllum, var Alþingi Is- lendinga stofnað 930, og þar með lagður grundvöllur að hinu íslenzka þjóðveldi. Hér voru sett lög svo merkileg, að lögbækumar fornu teljast meðal helztu heimilda um löggjöf germanskra þjóða fyrr á tíð. — Landafundir hinna fomu Islendinga voru mikil afrek. Með fundi Græn lands var brautin rudd til Vesturheims. Leifs Eiríksson ar dagur er nú hátíðlegur haldinn árlega, bæði í Kan- ada og Bandaríkjum Norður ameríku ,til minningar um fund Vínlands. Skáldskapur Islendinga í fomöld var þeim mjög til frama og frægðar, og enn í dag á þjóðin ritsnillinga sem alheimi eru kunnir. Hinir fomu sagnameistarar, svo að eins séu nefndir, þeir Ari hinn fróði Þorgilsson, Snorri Sturluson og Sturla Þórðar- son, sömdu og Skráðu slík öndvegisrit, að aldrei munu fyrnast. Verk þeirra munu um all- ar aldir teljast til gimsteina heimsbókmenntanna. Saga vor, íslendingar, er á öllum öldum saga um dáðir, þessi fámenna þjóð hefir háð lífsbaráttu við margs konar hamfarir óvæginna náttúru- afla, plágur og hörmungar o^ drepsóttir, en komið hert úr hverri raim. Hún hefir fengið að kenna á fátækt og hungri, því að oft var lítil björg í búi, þá er aflaleysi og uppskerubrest bar að- En eins og hin íslenska þjóð hef ir nú. í ellefu aldir borið giftu til að sigrast á erfiðleik unum, vonum vér og trúum, .. að framtíðin sé hennar. Megi niðjar Islends og böm ókom inna alda fá lifað og starfað í anda þess manns er öllum öðrum fremur hefur verið ís lendingum til fyrirmyndar, sjálfstæðis hetjunnar góðu, Jóns Sigurðssonar, er lagði svo traustan gnmdvöll að endurheimt frelsis og sjálf- stæðis þjóðarinnar. Megi það vopn, er hann kunni svo vel að bregða, sverð andans, verða þjóðinni enn sem fyrr beittasta vopnið til trygging ar frelsi og fullveldi. Megi íslensk þjóð fá lifað í þessu fagra og kæra landi um ó- komnar aldir sem þegnar fullvalda ríkis, er aldrei verði fjötrað í hlekki erlends valds. Guð blessi ísland og Is- lendinga. Skúli Johannsson formaSux Þjóíraeknisfélags íslendinga i Vestur- heimi afhendir forsætisráSherra íslands ólafi Jóhannessyni gjöf félagtins. „Ja, nú er ég orðlaus, og vitið varðveiti mig frá því að verða ekki sentalaus líka á næstu 30 sekundunum,” sagði ég við bútserinn hjá Eatons á dögunum.” „Það er upp til þín, mæ dír,” sagði hann og brosti blítt, „en reyndu að bíða 60 sekúndur og þá verðurðu sloppin hóm frí því þá verð ég búinn að selja allt rúllu- pylsu efnið, sem ég á til í búrinu á bak við kánterinn hjá mér. Þú ættir að sjá það! Glænýtt og mátulega ófeitt. Jólapottarnir í Winnipeg gleypa við því.” Allt þettasagði hann á rúm um 20 sekundum og það, sem eftir var af mínútunni lennti í að vikta rúllupylsuefnið, vefja það í grápappír og demba því í fangið á mér. — Svo fór hver konan af ann- ari að kaupa sér í rúllupyls- ur til jólana og engin spurði um verðið nema ég, en ein konan sagði að familían sín yrði bara að gera sig ánægða með ost og spaghetti, hænsna vængi og fóhom það sem eft ir væri vikunnar til þess að geta fengið rúllupylsu á jól- unum, það dót kostaði ekki nema sosem 50 til 60 sent pundið en auðvitað borgaði maður ansi mikið fyrir bein in, og þetta væru bein sem maður mætti ekki einu sinni gefa hundinum sínum ,mað- ur yrði að kaupa dýrari mat einstöku sinnum til þess að hafa bein til að stinga upp í aumingja hundinn. „Vel á minnst,” sagði ég og skokkaði til bútsersins þar, sem hann var í óðaönn að vikta og vefja kjötið. Svo bauð ég honum að koma til mín bráðum, og fá sér súpu. „Maður verður að gera sér mat úr öllum þessum bein- um, sem ég keypti af þér áð- an í óðagoti fyrir dollar pimdið,” sagði ég og þóttist ansi smart. „Bara fáðu mér það aftur,” sagði hann og rétti fram lummurnar, „og takk skaltu hafa, því færri fá en vilja og komdu nú með það.” Þá dró ég inn homin, eins og maður segir, faðmaði að mér þetta dýrmæta herfang eins og það væri óskabarn sem ætti að rífa af mér, og þaut út. Allir verða að velja, hugs- aði ég, hvort þeir vilja held- ur matinn eða eitthvað af sentunum sínum- — Enginn fær að hafa hvorttveggja nú á dögum. Svo fór ég og keypti mér egg í soðið, því allir segja að nóg sé af þeim nú sem stendur. C.G.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.