Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 26.09.1974, Qupperneq 4

Lögberg-Heimskringla - 26.09.1974, Qupperneq 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 26. SEPTEMBER 1974 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA Published every Thursday by LÖGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. LTD. 512-265 Portage Avenue, Winnipeg, Man. R3B 2B2 Editor Emeritus: Ingibjörg Jonsson Editor: Caroline Gunnarsson President, K. W. Johannson; Vice-President, Dr. L. Sigurdson; Secretary-Treasurer, Emily Benjaminson; Adv’t Manager, S. Aleck Thorarinson. Subscription $10.00 per year — jíayable in advance TELEPHONE 943-9931 “Second class mail registration number 1667” Printed by: GARDAR PRINTING LIMITED »i Blessuð letin hefur sína kostí tíl að bera Iðni og vinnusemi hafa löngum verið talin til stórdyggða og ef sagt er um mann að honum falli aldrei verk úr hendi, er honum ætlað að fagna ummælunum og þakka fyrir. En sefur slíkur maður aldrei? Lætur hann aldrei eftir sér eina örstutta letistund til að njóta lífsins eins og xað á einstöku sinnum að vera, jafnvel í því þrælbundna vinnukerfi, sem öldin okkar hefur smíðað utan um okkur. Vinna og erill hafa sinn djöfúl að draga og blessuð letin er ekki öllum kostum sneidd, þó fáir klappi henní lof í lófa. Á ensku er oft sagt um vinnugefinn mann að hann sé alltaf með nefið við hverfisteininn. Slíkt nef á ekki sjö dag- ana sæla, og ekki væri því of gott að losna úr ánauð endrum og sinn, fá að lifta sér upp til að lofa ylmsætum blæ að þenja út nasdmar og læðast um allar taugar . Þetta færi um sálina eins og fjörgandi vínblanda og það er ein helgasta skylda nefsins hér á jörðu að gefa sér tíma til að gleðja sálina. Þeir einir sem hafa gerst samverkamenn náttúrunnar og vinna flest sín verk imdir berum himni, fá að njóta skilning arvitanna eins og mönnum ber .En til þess verða þeir samt að lofa letinni að leggjast í sig af og til. Vöðvamir eiga það skilið að láta líða úr sér drykkjanga stund á meðan hugur og hönd slá slöku við dagsverkið og augun reyna að seðja sig á því, sem fyrir þau ber. Það er gaman að góna út í bláinn á fögrum haustdegi og lofa verkvitinu að hvílast í draumsælum dúr. Sléttumar okkar eru fegurstar á haustin, þegar þær liggja í gullroðn- um fölva undir svölum bláma himins. Þá er sælt að láta aug unleika um þær í algleymingi og sinna því ekki hót, í bili, að þær eru að búa sig undir svefninn, að varla verður þess langt að bíða að breidd verði yfir þær drifhvít sæng, og svo geti íarið að þær svíkist um að skila bændum fullum verka- launum. Svona getur náttúran verið óþjál í viðskiptum við tíma- bundna menn og öll erum við tímabundin, þeir sem yrkja jörðina, heftir árstíðum og veðrúttu, en allir aðrir matvinn- ungar þrælbundnir klukkunni. Klukkan! Þaðer engu öðru fært en letinni aðgera lítið úr klukunni og hún á það skilið að lækkaður sé í henni hrok inn.. Þetta ósvífna óféti leyfir sér að taka ómælda eilífð og búta hana niður í sekúndur, mínútur og svokallaðar klukku stundir. Hver einasta sekúnda skipar okkur svo fyrir verk- umog heimtar sitt. Hvað um mannlega tign? Er það henni virkilega sam- boðið að láta í minnd pokann fyrir taugalausri samsetningu af stálfjöður og hjólum, sem hvorki hugsar eða finnur til og þsirf aldrei að hvíla sig, bara lætur dingulinn dingla fram og aftur dag og nótt? Skollinn hafi það IKIukkan á hvergi heima nema í fom gripasöfnum, en áður en henni er komið þar fyrir á óæðri hillunni, á mannshöndin að trekkja hana upp svo rækilega að fjaðrimar bresti. Þá er hennar almætti lokið. Þá fær maður loksins guðslangan daginn heilaim og ó- skiptan frá morgni til kvölds og lángt fram á nótt, vinnur sín verk þegar svo liggur á manni og kemur öllu af. En blessuð letin. Henni þarf ekki að bjóða heim, hún kemur fyrirvaralaust eins og góður vinur þegar mest liggur á, ekki fer maður að forsmá hana þegar harðstjórinn er horf inn úr heimsmenningunni og maður fær að ráða sér sjálfur. Hún er svo notaleg, blessuð letin, og eiginlega það eina, sem bjargað getur mannfólkinu frá því að drepa sig um aldur fram af ofurkappi og iðjusemi eða þá að sprengja upp allt í kringum sig og sjálft sig með, ef ekki þykja duga eigin kraftar til að fl..ta fyrir framtökunum. » C.G. Árni G. Eylands: Á HÁA-HALLI Hái-Hallur er örnefni á Þingvöllum Gott er af Háa-Halli að horfa yfir þetta land, dalinh og „djúpið mæta”, :•: draumanna Sprengisandi. Auðnir og aldir daga, í einnig Bláskógatúr, !j hjer spyr þig sannmælsk Saga: i „sonur minn — hver ert þú? Hvar eru verk þín vinur, j:j völlurinn sem þú brauzt, j-j kemur knör þinn að landi kapphlaðinn næsta haust? S Margs hefi jeg að minnast, -ji menn hafa Þingvöll gist, ;j; hjer er allt skráð til skila, skuldheimtan: unnið og misst. Leggur þú lóð á metin ;j; landi og þjóð í hag, j!j hefir þú unnið þjer afrek einhver í gær og í dag? Verða þau meiri á morgun, mikil og stærri tök? í Hjer stendur bergið og boðar brattans og kjarksins rök.” I Horfi jeg vítt af Halli háum, um sviðið bjart, j;j skil — jeg á skuld að inna, ■jjj skulda stórt og margt. ■;! >1 Skil, jeg á skuld að gjalda. Skjaldbreiður, Hrafnabjörg, leyfið mjer leið að halda, jjj leggja minn skerf á hörg. jjj Veit jeg, mitt land, hann er ljettur, !j! litlu jeg valdið fjekk, jj! tök mín færri en fjöldans ;j; er fastara að starfi gekk. Veit þú mjer land mitt að lifa að lokum eitt Bláskógavor, j; hjer kýs jeg að ganga um grjótið * og grámosann síðustu spor. j;j Á. G. E. !j! FIDELITY Different loving Is not loving different people But changing the quality of the emotion applied. Belonging and becoming We grow together as we change And differences become us as we Become our differences. You must love with an open hand And eyes which accept all that they see And I must love the best in you Even when if isn’t there. Change so that I do not change And I will do the same, only differently. — Betty Jane Wylie „Eg ætla að flytja í góða veðrið vestur við haf, það er ekki lifandi hérna í Winni- peg. í gær rotaði ég múskitu sem var að sjúga blóðið aft- an úr hnésbótunum á mér og nú er ég að frjósa á tán- um,’ heyrði ég kellingu segja þegar ég var að bíða eftir bössinu í morgun. Hún var í pínupilsi og með bókabagga á herðunum, en samt er hún kelling þessi aumingi. „Frjósa*a tánum!” sagði strákurinn, sem stóð hjá henni, ég sem er að hugsa um að fara vestur að hafi til að komast í snjó, af því ég get ekki beðið eftir honum í Winnipeg. Hann er alltaf fljótari á sér á haustin þar vestur frá. Svo hypja ég mig heim aftur þegar fer að snjóa hér og rigna þar.” Strákurinn var með hár niður fyrir mitti og svo snot ur í framan að ég hélt hann væri systir stelpunnar þang- að til ég tók eftir káboy skón um, sem hann varjneð á fót unum. „Þegar maður er í striga buxum og réttum skóm, boðra múskiturnar mann ekki,” sagði stráksi. „Þær hafa aldrei komist í hné- sbæturnar á mér og nú ná þær ekki í mig aftan á háls- inum heldur, af því þær flækja lappimar í hárinu á mér. Winnipeg er besta borg í heimi ef maður kann að lifa.” Eg bara vona að það verði aldrei hjón úr þessum krökk um, hugsaði ég, því hún væri vís til að teyma hann á hárinu, kannski eitthvað suð ur á eyðimerkur í Bandaríkj unum, bara til að komast úr rokinu á Portage og Main. — En þetta blessað rok á Port- age og Main er einmitt það sem gerir súpermenn úr okk ur hérna í Winnipeg. Það feykir engum nema útlend- ingum frá Toronto, Montreal eða Vancouver. Þá vildi ég heldur sjá af þessum strák í veðrið austur á Atlants 'ströndum ,þar sem það er hetjum hæft. Þá kom bössið og stelpan klifraði um borð en strákur- inn sagði, „goodbye, see you later maybe”. Svo stikaði hann af stað, sagðist ætla að labba þessar fáu mílur út á háskóla. Hann fer ekki að flýja veðrið í Winnipeg pilt- urinn sá, bara hamast við að lifa þangað til hann dettur í sundur, og það er tími þang að til. C.G.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.