Lögberg-Heimskringla - 26.09.1974, Side 6

Lögberg-Heimskringla - 26.09.1974, Side 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 26. SEPTEMBER 1974 VALDIMAR J. EYLANDS: RÆÐA fluft á þjóðhátíð Húnvetningp, að Kirkjuhvammi, laugardaginn 6. júlí 1974 Háttvirtu Húnvetningar— „Ef ég sé fjöll í fjarlægð blána, þá finn ég alltaf sömu þrána.” Þannig farast einu of skáldum vor- um orð, er hann nálgast átthagana eftir langa fjar vist. Þessi orð hafa oft bergmálað í huga mér er ég hefi ferðast hér norður um sveitir. Svo var það og í dag, er ég á norðanverðri Holtavörðuheiði sá blána fyrir fjöllum vestur sýslunnar, og firðina, Hrútafjörð og Miðfjörð, teygja sig eins og löngu- töng og vísifingur á framréttri vinarhönd til að bjóða mig velkominn heim. En það er ekki aðeins hin steinrunna og fljótandi náttúra sem býður mig velkominn í dag, heldur og fóíkið sem hér dvelur. Ég er mjög hrærður og þakklátur fyrir það vinarþel sem ég er hér aðnjótandi, og þann sóma sem mér er sýndur sem ræðumanni dags- ins á þessari glæsilegu og fjölmennu þjóðhátíð. Er ég sé þessi fjöll blána, og verða æ gleggri fyrir sjón minni við heimkomuna, minnist ég þess, að þetta eru gömul fjöll, og að sjórinn sem vér sjáum hér, er gamall sjór. Nú er það sem gamalt er, lítt í hávegum haft með samtíð vorri, hvort heldur það eru menn eða menjar um foma tíð; tískan er að telja allt gamalt úrelt og að engu nýtt. En vér getum tæplega talað þannig um fjöllin. Þau eru bæði minnisvarðar og leiðarsteinar kyn- slóðanna. Þau eru eldri en svo að ártölu verði þar við komið með nokkurri vissu. Væri þau skyni gædd, máli og minni, gætu þau sagt oss langa og stórmerka sögu. Þessi fjöll blánuðu við aðkomu hinna fyrstu landnámsmanna sem reistu byggðir og bú í þessum sveitum. Þeir byggðu fyrstu hús sín og heimili í skjóli þeirra. Þeir miðuðu landa- merki landeigna sinna við gil þeirra og lækjar- drög. Hér nærlendis nam Ingimundur gamli land fyrstur manna, en hann er talinn einn göfugasti fomaldarmaður sem sögur greina. Hingað, í þess- ar sveitir, komu í öndverðu þeir Skinna-Bjöm og Miðfjarðarskeggi, og var sá síðamefndi talinn garpur mikill á sjó og landi. Hér riðu hetjur um héruð á sögu og þjóðveldisöld. í þessum hún- vetnsku sveitum hafa merkar sögur gerst. Auk Vatnsdælu, sem greinir frá fyrsta landnámsmann- inum, em bæði Grettis- og Bandamanna-saga tengdar þessum sveitum. 1 sambandi við þessi há- tíðahöld verður Ásdísar á Bjargi minnst, bestu móðurinnar sem sögur vorar geta um. Þótt miklu munaði um gæfu og gjörvileik Grettis, sonar hennar, varð hann einskonar þjóðhetja og við eng- an annan mann, lífs eða liðinn, em jafn mörg ör- nefni kennd, hér á landi, sem hann. Þessi þöglu og látlausu fjöll hafa verið vitni að mörgum hetjusögum, og einnig að mörgum dapur- legum atburðum. Aldir renna, kynslóðir koma, starfa og hverfa í moldarskaut við rætur fjall- anna. En þessar sveitir hafa á öllum öldum fætt og ahð marga merkilega menn, og fagrar konur. Þannig er það enn- Þessar sveitir hafa lagt Þjóð- félaginu til stóran hóp gáfu og athafnamanna, og margir þeirra em einnig kunnir í fjarlægum lönd- um, og mun sumra þeirra síðar getið. Hér vil ég þó nefna Friðrik Ásmundsson Brekkan, frá Ytri Reykjum, sem var merkur rithöfundur, og hinn þjóðkunna fræðimann og sagnfræðing Jón Jóhan- nesson frá Hrísakoti. Úr þeim sveitum sem mynda austur sýsluna er komin röð af þjóðkunnum lækn- um, á meðal þeirra tveir landlæknar. Gamall Víði- dælingur gleymir því auðvitað ekki að ein fræg- asta ætt landsins er kennd við heimasveit hans, Víðidalinn. Fom frægðarljómi er einnig yfir slík- um stöðum sem Þingeyrum, Breiðabólsstað í Vest- urhópi, Lækjamóti, Víðidalstungu og Auðunnar- stöðum. Þegar hart er í ári hér nyrðra, skemmta menn sér við að rekja ættir bretsku konungsfjöl- skyldunnar til fyrsta bóndans á Auðunnarstöðum. Móðurjörð, hvar maður fæðist, mun hún ekki flestum kær?” Jú, víst er það svo. En þú mun það sannmæli, að sá, sem dvelst alla ævi í heimahög- um, venst svo umhverfi sínu að hann veitir því naumast eftirtekt. Hann sér ekki fjöllin blána í fjarlægðinni, og dagsins önn yfirskyggir glæstar myndir sögunnar. En dveljist menn langvistum í öðrum héruðum, eða fjarlægum löndum fá menn nýja innsýn og næmari skilning á öllu umhverfi æsku sinnar, landi og lýð. Það er því ekki tilvilj- un að mörg innilegustu ættjarðarljóðin hafa verið kveðin erlendis. Þar sannast hið foma spakmæli, að enginn veit hvað átt hefir fyrr en misst, hefir- Þannig kvað séra Jónas Á. Sigurðsson, merkur prestur í Vesturheimi, fæddur að Gröf í Víðidal, en upp alinn ,að Ásbjamarnesi um þetta efni, á þessa leið: Fjær þá átthögum er þráfalt andinn mig ber til þín, fornhelga feðranna strönd Land, með heiðloftið hátt, . þú, sem hjarta mitt átt, — við þig knýta mig kærleikans bönd. Blúgur faðma ég fold, kyssi munhýra mold, lýt þér, fágæta feðranna þjóð. Hvíli höfuð mitt þar, fyrr er vagga mín var. Hlýði fanginn á aldanna óð. II. „Ef ég sé fjöll í fjarlægð blána, þá finn ég allt af sömu þrána.” „Ég hef augu mín til fjallanna, hvaðan kemur mér hjálp.” Þessi fjöll blánuðu ekki aðeins í fjaFlægðinni við aðkomu hinna fyrstu Tandnámsmanna, eða við heimkomu ferðalanga, sem leita átthaganna á ýmsum tímum. Sú var tíðin að þau blánuðu í æ vaxandi fjarlægð, og hurfu loks að öllu, stórum hópum íslenskra manna sem fluttust úr landi vestur um haf, á síðari hluta aldarinnar sem leið. Talið er, samkvæmt manntalsskýrslum, að 15.434 Islendingar hafi flust til Vesturheims, á árunrnn 1870 til 1920- óhætt er að fullyrða að þetta fólk var ekki landhlauparar eða ævintýramenn. Fjöll- in í heimabyggðum þeirra, hér og víða annarsstað- ar á landinu birtust þeim ekki í draumkenndri blámóðu, þau voru um langt skeið, full af snjó árið um kring; hafið var ekki lengur skínandi bjart, það var fullt af hafís langt fram á sumar, ár eftir ár. Þjóðin var langþjökuð af erlendri kúgun og óstjórn. Þjóðlífið var í kyrrstöðu, framfarir litlar og framtíðin uggvænleg. Á þessum árum voru kjör alþýðumanna í mörgum sveitum svo kröpp að hin unga kynslóð sem nú nýtur álls- gnægta í landinu mundi tæpast trúa þeirri sögu þótt sögð væri. En þetta örsnauða íslenska fólk gleymdi samt ekki fjöllunum, en þau tóku á sig aðra mynd, þau urðu tákn hugsjóna, framtaks og fórna. Einkunnarorð þessa fólks var: — ALLT FYRIR BÖRNIN. Það var draumsjón þessa fólks að tryggja framtíð æskunnar, og til þess að hún mætti verða að veruleika fórnaði það tilfinning- um sínum, ættingjum, ættjörð og jafnvel líkama sínum og kröftum í ömurlegra striti en það hafði áður þekkt, fyrst lengi, á dvalarárum sínum vestra. Fyrsta kynslóð vesturfaranna er nú horfin af sviðinu, en óhætt er að fullyrða að hugsjónin um velferð afkomendanna hefir ræst langt um vonir fram. Rúmlega fimmtán þúsundir manna fóru vestur á umræddu tímabili, en nálega fimm- tíu þúsundir manna, af íslensku bergi brotnir, eru nú taldir búsettir í Vesturheimi. Saga vesturferðanna er merkilegur þáttur í heildarsögu Islendinga. Fyrsti „stór hópurinn” fór úr landi sumarið 1874, fyrir nákvæmlega hundrað árum- Hátíðahöld fara nú fram víðsvegar í byggð- um íslendinga vestra, í tilefni af landnáminu þar, og svo mun einnig verða næsta ár. Munurinn er sá, að þér hér heima, á hátíðahöldum yðar, rifjið upp sögu sem er rétt þúsund árum lengri en saga bræðranna vestra. En bæði stofnþjóðin hér, og þjóðarbrotið vestra, hafa margs að minnast og margt að þakka. Vestra munu menn nú minnast fyrsta vestur- fara hópsins og næstum ótrúlegrar sögu sem gerð- ist á skipsfjöl, áður en á land var gengið. Það var síðsumars, árið 1874, að gufuskipið St. Patrick sigldi upp eftir St. Lawrence fljótinu, áleiðis til Quabec í Kanada. — Fjöldi innflytjenda var um borð, á meðal þeirra 365 íslendingar, og höfðu all- margir þeirra hafið sjóferð sína á Borðeyri. Ekki voru margir á meðal þeirra vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir. Þetta var misjafn, og mislitur, öreigalýður, á von- lausum flótta, að talið var frá'hlutskipti sveitar- ómagans. Ég læt einn samtíðarmann þeirra (séra J- A. S.) lýsa þeim í ljóði: Vér komum með trefil, og klæddir í ull 18 og kunnum ei enskuna að tala Við áttum víst langfæstir góss eða gull né gersemar Vesturheims dala. Með sauðskinn á fótum, og sængurföt heit með sjal, og með skotthúfu og poka— Við fluttum þá útgerð í óbyggð og sveit og enskinn við báðum að þoka. Er skipið nálgaðist áfangastað kom lóðs um borð, eins og lög gera ráð fyrir, og með honum umboðsmaður og fulltrúi Kanadastjómar. Kom hann þeirra erinda að segja þessu fólki hvert það ætti að flytjast, og hvar því væri ætlað að setjast að í nýja landinu. Gengu þá fram fyrir fylltrúann tveir talsmenn þess vaðmálsklædda og vankunn- andi lýðs, og báru fram kröfur til stjórnarinnar sem skilyrði fyrir landgöngu og landnámi. Heimt- uðu þeir fyi’st og fremst ákveðna landspiltu, sem þeim sjálfum litist best á, að afstaðinni landkönn- un, fyrir sig og niðja sína, og aðra af þjóðflokki sánum, sem síðar kynnu að bætast í hópinn. 1 þessu nýja landnámi skyldi þeim heitið fullkomnu frelsi til sjálfsstjómar og að þeir mættu óhindrað rækja trú sína, tungu og menningarerfðir. Mun fulltrúa hinnar bresku krúnu hafa þótt búand- karlar þessir gera sig digra að setja slíka kosti, en þó var að þeim gengið, og þau heit haldin af stjóm inni. Nokkm síðar stofnuðu þeir ríki í ríkinu, og nefndu Nýja Island, með landstjóm og öllu skipu- lagi sem þar til heyrir. Það er merkileg og söguleg staðreynd, að íslendingar urðu fyrst stjómarfars- lega sjálfstæðir í Vesturheimi, frá því á hinni fomu þjóðveldisöld, og télja sögufróðir menn að þetta hafi ýtt undir frelsis baráttuna hér heima, sem þó var ekki borin fram til fullnaðar sigurs fyrr en áratugum síðar. Rétt er að geta þess að Nýja ísland leið undir lok í áranna rás, sem sjálf- stætt lýðveldi, er það varð innlimað í ríkisheild- ina. En nafnið helst, og á þessu svæði eru afkom- endur fmmherjanna hvað fjölmennastir í Norður Ameríku- Þess má geta, til fróðleiks, að sextán fjölskyld- ur úr Húnavatnssýslunni, sem þá var óskipt, vom í þessum hópi innflytjenda, sem að ofan greinir. Nokkrar þeirra áttu síðast heima hér í Miðfirðin- um eða á Vatnsnesinu. í hópnum vom hjón frá þessum bæ, Kirkjuhvammi; hétu þau Raín og Rósa, en Jón var föðumafn beggja. Ekki er mér kunnugt um ættfærslu þeirra, örlög eða afkom- endur, ef nokkrir voru. Þau em fyrir löngu horf- in yfir móðuna miklu, eins og allir hinir sem mynuduðu landnámssögu Íslendinga fyrir vestan haf. Þess skal getið að þessar sveitir hafa átt, og eiga enn, atkvæðamenn í hópi Vestur Islendinga. Vil ég fyrstan nefna Ásmund P. Jóhannsson, frá Húki. Hann var ekki aðeins frábær fjáraflamað- ur, en einnig einlægur íslands vinur ,og lét ekki í því efni sitja við orðin tóm. Hann var einn helsti hvatamaður að stofnun kennaraembættis í ís- lensku og íslenskum fræðum við Háskóla Mani- tobafylkis, en stór hópur ungmenna af ýmsum þjóðum leggur nú stund á íslensk fræði við þá stofnun. Þessu fyrirtæki til framdráttar lagði As- mundur fram, sem fyrsta tillag í stofnsjóðinn, upphæð sem nú mun samsvara fjögur hundruð þúsund íslenskum krónum. Minnugur heimasveit- ar sinnar, og frægasta sonar hennar, nefndi hanp

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.