Lögberg-Heimskringla - 23.10.1975, Side 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. OKTOBER 1975
Eric Wilson leikur á cello. Móðir hans, Mrs. Thelma (Guttormson) Wilson leilrur undir á pianó, en
systir hans, Mrs. Kerrine Slewart-Hay flettir nótnabiöðunum.
m
Karlakór Reykjavíkur söng í Manitoba Theatre Centre í Winnipeg þegar bislcup íslands var sæmdur
heiðursnafnbót af Winnipegháskóla.
LITRfK SAMKOMA Framh af bls. 1
Kanadísku þjóðinni á aldar-
afmæli Fylkissambandsins
1969, og á þau er greiptur
kafli úr Grænlendingasögu,
er skýrir frá siglingum ís-
lendinga, er könnuðu land í
Kanada á tíundu öld
Mr. Jahannson sagði að
skiltin væru gefin í tilefni
af 100 ára landnámsafmæli
Islendinga í Manitoba, og
sem þakklætisvott fyrir sam
vinnu háskólanna við íslend
inga í því að stofna til ís-
lensku kennslu í þessum
menntastofnunum frá því að
sú fræðigrein var fyrst inn-
leidd árið 1900 í Wesley
College (nú University of
Winnipeg). Ummæli Mr. Jo-
hannsons birtast síðar í heild
á ensku síðum Lögbergs-
Heimskringlu, ásamt ávarpi
Hon. John Munro.
Auk þjóðsöngvanna, söng
Karlakór Reykjavíkur nokk-
ra aðra söngva á íslensku og
ensku, og hlaut lof í lófa.
Icelandic Centennial Childr
en’s Choir, töfraði áheyrend-
ur með 75 þýðum, samstillt-
um barnaröddum ,en sum
börnin eru svo ung og smá
að fætumir ná ekki niður að
gólfi þegar þau sitja.
Þeir sem hafa þekkt Eric
Wilson frá því hann var
bam, biðu þess með óþreyu
að heyra hann enn einu
sinni leika á cello, og urðu
ekki fyrir vonbrigðum. Þar
fór frábær listamaður með
fræg tónverk og hann komst
ekki hjá því að þóknast á-
heyrendum með því að koma
fram oftar en einu sinni. —
Móðir hans. Thelma Gutt-
ormson Wilson aðstoðaði
hann við píanóið.
Eigum við að skrifa öðruvísi
utan á bréf til þín?
Hafðu samband við Manitoba
Health Services Commissiort
ef þú hefur breytt um utaná-
skrift, eða nafn eða skjólstæð-
ingum hefur fjölgað eða
fækkað
MANTrOtA HEJU.TH SERtnCiS (
599 EmörM* StrMt. Wlnnlpag R3G 3H2
Totophona collact 786-7101
.Hjálpaðu okkur að hjálpa þér
NOTICE
The draw on the painting of the Stephan G. Stephans-
son homestead has been postponed until December 6,
1975. We wish to fchank all those who have assisted us
in fchis project. PLease watdh for further announcement.
THE LEIF EIRIKSSON ICELANDIC CLUB
CALGARY, ALTA.
JOAN MAGEE KENNIR ISLENSKU I
WINDSOR, ONTARIO
Framh af bls. 1
an sérkennilega bókmennta-
smekk unglinganna.
Síðar fékk hún stöðu í
bókasafni háskólans í Winds-
or og vannst þar tími til að
grúska í fomensku og fom-
enskum bókmenntum. Hún
skynjaði fljótlega skildleika
fomensku og foríslensku,
og varð það ljóst að norræna
eða forníslenska býr yfir
miklum forða merkra bók-
mennta.
Um sama leyti barst henni
sá orðrómur að hinn danski
norrænufræðingur og rithöf-
undur, Hans Bekker Nielsen,
væri kominn til Toronto til
að kenna þar við Pontifical
Institute of Medieval Studi-
es. Hún réðist í að skrifa hon
um og biðja hann um tilsögn
í norrænu og miðalda holl-
ensku. Hann svaraði í kýmni
að sitt umdæmi að sinni,
væri hrein danska, en hann
væri til í að kenna henni nor
rænu ef samningar næðust
með þeim. Joan brá sér á
fund hans, en hann kannað-
kunnáttu hennarjtók hana í
tima og hiá honum nam hún
fomíslensku í eitt ár. Hann
ráðlagði henni að halda á-
fram náminu og gerði þá
Uppástungu að hún þjálfaði
sig með því að þýða Biskupa
sögur og benti henni sérstak
lega á Lárentíus Sögu Hóla-
biskups. Hún byrjaði þegar
að þýða söguna, og þeg-
ar Hans Bekker Nielsen
sneri aftur til Evrópu, hélt
hún áfram að nema foraís-
lensku hjá dr. ^lermanni
Pálssyni, sem nú er prófess-
or í Edinburgh háskóla í
Skotlandi. Hann hvatti hana
túil að halda áfram með þýð
ingu Lárentíus Sögu og
stefna að því að geta kennt
forníslensku og norræn
fræði í Windsor. Hún hefur
von um að Ijúka við þýðingu
Lárentíusar Sögu i haust
BISKUP ÍSLANDS HEIÐRAÐUR AF
WINNIPEGHÁSKÓLA Framh af bls. 1
Séra Sigurbjörn býr yfir
fjölbreyttum hæfileikum, er
málsnjall og ritsnjall fræði-
maður. tónlistamaður og þýð
andi. Hann var sjö ár rit-
stjóri guðfræðiritsins Víðför
ull, en auk þess hefur hann
ritað fræðigreinar, sem hafa
birst í 10 ritum ,þar á meðal,
“The Church of Christ in
the State of Hitler, “The Re-
ligions of India,” “The Re-
ligions of Mankind” og “Com
mentary on the Revelations
of John.”
Biskupshjónin eiga átta
böm, sex syni og tvær dæt-
ur, þrír synirnir eru prestar
og annar tengdasonurinn vel
þekkt tónskáld. — Kona bisk
upsins, frú Magnea Þorsteins
dóttir, á það sammerkt með
manni sínum að unna söng
og tónlist. Hún er þjóðkunn
hannyrðakona og þaulkunn
Islendingasögunum. — Eftir
þeim stílar hún oft skraut-
saum og önnur frumleg hann
yrðaverk.
Kanslari Winnipegháskól-
ans, dr. P. H. T. Thorlakson,
C.C., M.D. sæmdi biskupinn
doktorsgráðunni.
THE LÖGBERG-HEIMSKRINGLA WISHES TG
OBTAIN AS MANY NEW SUBCRIBERS
AS POSSIBLE.
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA Subscriptlon Form
Name: ...
Address:
Enclosed find $10.00 in payment for subscription
for one year.
Make cheques payable to:
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA,
67 ST. ANNE'S ROAD, WINNIPEG, MANITOBA
R2M 2Y4 CANADA