Lögberg-Heimskringla - 05.12.1980, Síða 1
Seðlabanki Islands Júlí 80
Aðalskrifstofa,
Austurstræti 111»
Re.ykjavik. Tceland
LOGBERG
Stofnað 14. janúar 1888
HEIMSKRINGLA
Stofnað 9. september 1886
Lögberg-
Heimskringla
94. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 5, DESEMBER 1980
NÚMBER 39
Fimm ár frá kvennafrídegi
Þann 24. okt. 1980 .fyrir rétt rúmum
5 árum gerðist sá einstæði og merki at-
burður á Islandi að íslenskar konur úr
öllum stéttum til sjávar og sveita lögðu
niður störf sín til að sýna fram á mikil-
vœgi vinnuframlags síns. Þetta framlag
íslenskra kvenna till hins alþjóðlega
kvennaárs vakti heimsathygli.
Þar sem nú eru liðin 5 ár frá þessum
merkisatburði er ekki úr vegi að rifja
upp með fáeinum orðum hvað gerðist
þennan dag.
Það má með sanni segja að atvinnulíf
í landinu lamaðist að verulegu leyti.
Dagheimili, skólar, verslanir, frystihús
Erlingur Ellertsson formaður ís-
lendingafélagsins í Washington
D.C.
Blómlegt félagsstarf
íslendinga í
Washington, D.C.
Í blaðaviðtali við Erling Ellertsson
formann íslendingafélagsins í Wash-
ington D.C. var frá því greint að með-
limir félagsins væru um 200 talsins.
Félagslíf er fjölbreytilegt og blómlegt
og samkomur margar á ári hverju. Má
þar nefna jólatrésskemmtanir, þar sem
íslensku jólasveinarnir og Grýla koma í
heimsókn. Þá er haldinn bazar og þar
boðnar til kaups íslenskar ullarvörur
unnar af íslenskum konum í borginni.
Þorrablót eru og á dagskrá. Erlingi varð
tíðrætt um áhuga íslendinga á því að
rækja samskiptin við heimaþjóðina
sem vendilegast. Gat hann sérstaklega
um heimsóknir íslenskra listamanna.
íslendingafélagið í Washington hefur
nú sem fyrr nána samvinnu við Sendi-
ráð Islands í Washington og Flugleiðir í
New York.
og leikhús - allt lokað, jafnvel
síðdegisblöðin komu ekki út. Reynt var
að halda bönkum opnum og tóku
karlmenn þá að sér að reyna að leysa
úr störfum kvenna. Margur
karlmaðurinn komst ekki til vinnu
sinnar vegna þess að eiginkonan var
farin og þeir urðu að gæta barn-
anna heima. Sagan hermir að mikið
hafi selst af pylsum í verslunum
daginn áður og að á matsölustöðum
hafi margur viðvaningur verið að
störfum.
Kl.2 síðdegis var haldinn útifundur á
Lækjartorgi og voru þar mættar um 30
þúsund konur. Mikill fjöldi þeirra var
búsettur á Reykjavíkursvæðinu en
einnig komu konurnar utan af landi í
hópum til þess að vera á fundinum.
Dagskrá fundarins stóð í 2 tíma.
Haldnar voru margar ræður, fluttir
leikþættir, sungið og lesin upp skeyti
víðs vegar að innanlands sem utan.
Eftir fundinn komu margar kvenn-
anna saman í svokölluðum "opnum
húsum", þar sem spjallað var um bar-
áttumálin yfir kaffibollum.
Þannig varð þessi dagur hvatning til
Xögberg-
Heimskringla
fær stórgjafir
Systkinin Sigrún, Haraldur,
Pálmi og Helgi Pálsson hafa nýlega
gefið $500.00 í styrktarsjóð
Lögbergs-Heimskringlu í minningu
um móður sína frú Guðrúnu Páls-
son.
Ennfremur hafa þrenn hjón
Sóley og Roy Page, Inga og Baldur
Danielson, Steini og Inga Pálsson
gefið $150.00 í styrktarsjóðinn í
minningu um foreldra og
tengdaforeldra Þorgrím og
Guðrúnu Pálsson.
Við þökkum öllu þessu fólki
örlæti og tryggð.
Ritstj.
Corrections
Unfortunately, the article on Dr. and
Mrs. Paul H.T. Thorlakson's wedding
anniversary (L.H. Nov. 21) contained
two errors: lines 12-13 (third column)
should read "The groom's father per-
formed the holy rites of matrimony."
On p. 3, third paragraph from bottom
shoúld read "The love of books and
learning was evident outside the home
by Mother's twelve years on the Board
of Governors at the University of
Manitoba and Dad's chancellorship at
the University of Winnipeg."
On the front page of the same issue
the word tíuleytið is misspelled in the
last paragraph of cl. no. 1.
íslenskra kvenna um að standa saman í
jafnréttisbaráttunni.
Nú fimm árum síðar spyrja margir
hvort stigin hafi verið skref framávið í
Frá hinu nýafstaðna skákmóti í
Argentinu: Hér teflir Friðrik við
Hort, sem íslendingum er að góðu
Það þarf ekki að kynna Friðrik Ólafs-
son stórmeistara fyrir Manitóbabúum.
Hann kom hér ásamt konu.sinni í boði
íslendingadagsnefndarinnar og lék hér
fjöltefli og lifandi manntafl svo
eitthvað sé nefnt. Þau
hjón létu ákaflega vel yfir ferð sinni
hingað og hafa margir hér að vestan átt
góðar stundir með þeim hjónum síðan
heima á íslandi.
baráttunni, en um það verður ekki
fjallað hér að sinni.
Meðfylgjandi mynd var teknin á
Lækjartorgi þann 24. október 1975.
kunnur, en skák þeirra lauk með
jafntefli.
Nú fyrir skömmu var Friðrik á skák-
móti í Buenos Aires í Argentínu. Þar
bar það m.a. til tíðinda að hann sigraði
heimsmeistarann, Rússann Anatoly
Karpov. Var Friðrik að vonum án-
ægður með þann sigur.
Þetta er í fyrsta sinn sem Friðrik
sigrar heimsmeistara við skákborðið,
þótt hann hafi oft áður unnið fyrrver-
andi eða verðandi heimsmeistara.
Friðrik vann
Karpov í Argentínu