Lögberg-Heimskringla - 31.08.1990, Side 8

Lögberg-Heimskringla - 31.08.1990, Side 8
Föstudagur 31. ðgúst 1990 WbZ UífJÍE Hópurinn fyrir utan fiskiðju KASK. Morgunbla«i«/J6n Gunnar Gunnarsson. Hclg-i Austman og frú Lily. Höfn: Á slóðum forfeðranna H8fn. FIMMTÍU manna hópur Vestur-íslendinga á hringferð um landið hafði viðkomu i Austur-Skaftafellssýslu miðvikudaginn 15. ágúst. Þau sem hér eru á ferð eru flest bændafólk og búa vítt og breitt um Kanada allt frá Vancouvereyju í vestri austur til Ottawa, en þar á milli eru um 5.000 kílómetrar. Tildrög þessarar ferðar eru þau að Helgi Aust- man, fararstjóri hópsins og búfræðingur á eftirlaunum að eigin sögn, hefur frá 1975 unnið að skipulagningu bændaferða fyrir íslendinga i Kanada og Bandaríkjunum. í byrjun þessa árs skrifaði Helgi þjóðræ- knifélögum og öðrum er hann taldi að hefðu áhuga á Islandsför. Hafði hann hugsað sér að ná um 40 manns til farar. En fljótlega kom í ljós að áhugi var mikill og endaði með að hópurinn var orðinn 50 manns, en ekki var talið fært að hann yrði stærri í einni og sömu ferðinni. Þau komu svo til landsins 5. ágúst síðastliðinn og hafa síðan ferðast norður og austur um land. Á leið sinni hafa þau notið gestrisni íslenskra bænda og dvalið mislengi á hveijum stað. Þannig var gist í 3 nætur á Hvanneyri og í nágrenni og farið þaðan um Snæfellsnesið og Borgarfjörðinn. Vatnsnesið var skoðað í fylgd Sigurðar Líndals, málsverður snæddur á Blönduósi í boði sveitarfélagsins svo lítið eitt sé nefnt. Hér í sýslu höfðu Guðmundur Jónsson á Höfn, Ingólfur Bjömsson í Grænahrauni og Þrúðmar Sigurðs- son í Miðfelli veg og vanda af mót- tökum ferðalanganna. En þeir voru einmitt á ferð í Kanada á síðastdr ári. Farið var upp að Hoffellsjökli og Geitafelli og skoðuð kirkjan í Hoffelli. Þá var haldið í Byggðasafn- ið á Höfn sem öllum þótti fróðlegt og skemmtilegt að skoða. Eftir það var fiskiðjuver Kaupfélags Austur- Skaftfellinga heimsótt, bæði frysti- húsið og salfískverkunin. Og þáðar veitingar í boði kaupfélagsins í mat- sal fiskiðjunnar. Að þessu loknu var orðið all áliðið og hafði fólk um 2 stundir aflögu án skipulagðrar dag- skrár. Sumir fóru þá í sund — aðrir svipuðust um á staðnum, litu í versl- anir og annað í þeim dúr. En undir kvöldverðarleytið var allur hópurinn kominn í mat á Hótel Höfn. Og þar luku ferðalangamir góðum degi í sýslum jöklanna með kvöldvöku sem þeir settu snarlega saman. Þá af- hentu þeir móttökunefndarmönnum góða bók um sögu Kanada í máli og myndum. Verður henni komið fyrir þar sem almenningur hefur greiðan aðgang. Frá Höfn var svo haldið árla morguns daginn eftir og för heitið Elsti og yngsti ferðalangurinn í þessari íslandsferð. Lilian Sumarliða- son, 90 ára frá White Rock í bresku Kólombíu og Kristján Heidrick, 10 ára. að Skógum en þar og í nágrenni var næsti næturstaður. Það er ekkert kynslóðabil í þess- um hóp þótt aldursmunur sé all nokkur. Yngsti þátttakandinn er 10 ára og sá elsti stendur á níræðu. Þá eru ýmsir í hópnum mikið skyld- ir og tólf þeirra eru náskyld. Það er Sigurðsson-hópurinn sem þau kalla hann. Sá hópur er kenndur við Helgu Sigurðsson sem ásamt systur sinni, bömum ' og bamabömum myndar hópinn. Að sögn Helgu hef- ur allt gengð mjög vel og verið í alla staði ánægjulegt. Alls staðar hefur mætti þeim mikil gestrisni og hlýhugur. Og flestir hafa nú litið augum fæðingarsveit forfeðranna, en þeir munu hafa verið dreifðir um nánast allt land. - JGG Stefanson, Fyrrverandi Formaður Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi Heiðraður Stefan J. Stefanson, fyrrverandi formaður Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi og Olla kona hans hafa verið heiðruð sérstaklega af stjórn Þjóðræ- knisfélags íslendinga í Reyk- javík. Á hátíðarfundi stjórnar Þjóðræ- knisfélagsins, sem haldinn var í Reykjavík 31. júlí var Stefani afhent heiðursskjal ásamt minnispeningi, sem sleginn hefur verið í tilefni af tvöföldu afmæli Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Islands, og félagið Þroskahjálp hefur nú fengið til dreifingar og sölu til ágóða fyrir starfsemi sína. Stefan og Olla hafa tekið virkan þátt í starfsemi Þjóðræknisfélagsins vestan hafs um áratuga skeið. Þau hafa komið til Islands um tuttugu sinnum og ávallt lagt mikla rækt við uppruna sinn, eiga hér marga ættingja og vini víða um land. Á undanförnum árum hafa þau átt mikinn þátt í því að byggja upp Olla og Stefan J. Stefanson ásamt formannl ÞJóðræknlsfélags íslendlnga I Reykjavfk, Jónl Ásgelrssynl. íslenskt minjasafn á Gimli. Olla hefur verið í hlutverki Fjallkonunnar á Islendinga- deginum á Gimli, dóttir þeirra hefur verið formaður Islendinga- dagsnefndarinnar, einnig sonur þeirra og tengdasonur. Þau tala íslensku mjög vel og stutt er síðan barnabarn þeirra kom til íslands til þess að kynnast landi og þjóð, og fór héðan talandi, skrifandi og lesandi á íslenska tungu. Þau hjón hafa um árabil tekið á móti hópum íslendinga sem lagt hafa leið sína til íslendingabyggða í Kanada og greitt götu einstaklinga á margvíslegan hátt. Stefan hefur tekið þátt í að skipu- leggja heimsóknir þjóðhöfðingja Islendinga, hann hafði umsjón með öryggisgæslu þegar Kristján Eldjárn þáverandi forseti kom í heimsókn til Manitoba fyrir röskum áratug og eins þegar Vigdís Finnbogadóttir forseti var þar á ferð á síðasta ári.

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.