Alþýðublaðið - 10.11.1960, Qupperneq 2
ÆSOTöCíK!Ka> ÞRJÚ MERKISAFMÆLi
i IBtrtJðrai! GísSl J, Ástþórsson (áb.) og Benedlit Gröndal. — Fulltraar rit-
íXtJðmar: Sigvaldi Hjilaarsson og IndriSi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
i 9j8rgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíi_:
,14 900. — ASsetur: AiþýSuhusið. — PrentsmiSja AlþýðublaSsins. Hveriis-
jfata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuSi. í lausasðlu kr. 3,00 elnt
SrtMaíandi: AiþýSuflokltuiinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrii' Kjartansson.
'l
1
1
JOHN KENNEDY hefur verið kjörinn forseti
Bandaríkjanna í einhverjum sögulegustu kosn-
ingum, sem háðar hafa verið þar í landi. Hann
hefur unnið glæsilegan sigur, þótt atkvæðamunur
sé lítill, sökum þess að Nixon með Eisenhower
&ð bakhjarli reyndist ekkert lamb að leika sér við
og hafði að ýmsu leyti mikilvægt forskot. Frammi
staða Nixons er raunar hin glæsilegasta, er hann
fær yfir 30 milljónir atkvæða, þótt flokkur hans
sé að jafnaði talinn allmiklu minni en Demókrat-
ar'.
Það er augljóst, að persónulegt val milli tveggja
ungra forustumanna hefur verið kjarni kosning-
anna. Þar sem atkvæði skiptust svo jafn milli
þeirra, má kalla það bót í máli fyrir bandarísku
þjóðina, að ekki var um meiri málefnaágreining
að ræða'milli þeirra.
Vænta má, að Kennedy standi nú við loforð
sín og komi þjóðarskútu lands síns á hreyfingu,
en honum hefur fundizt hún liggja við akkeri
undir skipsstjórn hins aldna Eisenhowers. Þarf
slík hreyfing vissulega að koma fram í þróttmeiri
innanríkisstefnu, er leiði til meiri framleiðslu og
•styrks, svo og þeirrar vísindaforustu, sem Banda
ríkjamenn eiga að geta haft. Hún þarf að leiða
til meiri lipurðar og hugkvæmni á sviði alþjóða-
mála, svo að lýðræðisríkin finna nýjan þrótt í bar
áttunni við kommúnismann og hinar nýfrjálsu
þjóðir velji leið frelsis en ekki nýrrar ánauðar.
Kennedy er yngsti maður, sem kjörinn hefur
verið Bandaríkjaforseti og hinn fyrsti þeirra, sem
fæddur er á tuttugustu öld. Hann er hinn fyrsti,
sem yfirvinnur alla trúarlega hleypidóma og nær
kjöri þótt hann sé kaþólskur, og væri betur að
það boðaði öld meira umburðarlyndis í trúar- og
kynþáttamálum.
Fylgzt verður með því af athygli um allan heim,
hvaða menn Kennedy velur í ráðuneyti siít. Hann
á þar ýmissa góðra kosta völ í flokki sínum, ekki
sízt í utanríkismálum, og er vonandi, að þar verði
eftir að Kennedy fIytur í Hvíta húsið meira fram
tak og frumkvæði en verið hefur.
Áskrsftarsímf
Alþyðublaðsins
f
er 24900
Í.DAG á frú Sigrún Marta
Jónsdóttir gjaldkeri Sjúkra-
samlags Sauðárkróks sextugs
afmæli, Síðast liðið sumar
varð maður hennar, Kristján
E. Magnússon skrifstofumað-
ur hjá Kaupféiagi Skagfirð-
inga, líka sextugur, og var
hans þá minnizt hér í blaðinu
og víðar. Og á þessu ári áttu
þau þrjátíu ára hjúskaparaf-
mæli.
Hafa þau um langt árab;l
átt heima á Sauðárkróki, hún
um hálfrar aldar skeið, en
fædd er hún í Stóru-Gröf á
Langholti í Skagafirði, hann
í 56 ár og fæddur á Sauðár-
króki.
Hjónin bæði haía verið at-
hafnasöm í kaupstaðarlífinu,
og góð heim að sækja, er:da
eiga þau rausnarheimili, sem
prýtt er einhverju stærsta
bókasafni úrvals hóka í ein-
staklingseign í Skagafirði, —
stóru hljómplötusafni sígildra
tónverka, ágætum hljóðfær-
um o. fl.
Sígrún hefur gegnt mörgum |
Hjónin Sigrún og Kristján.
trúnaðarstörfum, m. a. verið
kennari, sýsluskrifari og stað-
gengill sýslumanns. Kristján
er hins vegar formaður Bóka-
safns Skagafjarðar, sem hann
tók við af séra Helga Konráðs-
syni, og mörgum öðrum trún-
aðarstörfum gegr.ir hann og
RÖÐULL
RÖÐULL
hefur gegnt, og þau hjón bæði
verið í framboði fyrir Alþýðu-
flokkinn við kosningar til al-
þing's og sveítastjórnar.
Alþýðublaðið óskar þessum
merkishjónum allra heilla í
tilefni þessa þrefalda afmælis
þeirra á'árinú, og sérstakle.ga
frú Sigrúnn með sextugs af-
mælið í dag. Megi þau lengi
’ifa og menningarheiniiJi
þeirra.
Pökkun
Framhald af 16. síða.
Reykvíkingar hafa notfært
sér vel þá heimsendingu kart-
aflna, sem grænmetisverzlun-.
in hefur gengist fyrir, en þó
koma enn fleiri og kaupa kart-
öflurnar sjálfir á staðnum.
Chas McDeviit Shirley Douglas
vinsæla söngparið úr kvikmyndum og sjónvarpi.
HAUKUR MORTHENS —
SIGRÚN RAGNARSDÓTTIR
skemmta ásamt hljómsveit Arna Elfar.
Borð tekin frá í síma 15327 — RÖÐULL
Kennedy 25
Nixon 24
ska, var talningu ekki lokið, en
Kennedy á undan.
Nixon-ríkin eru: Colorado,
Florida, Idaho, Indiana, lowa.
Kansas, Kentuckv. Maine, Mon
tana. Nebraska, New Hampsh-
ire, Norður-Dakota. Ohio, Ok-
lahoma. Oregon, Suður-Dakota,
Utah, Wisconsin og Wyoming,
oo auk þess er hánn á undan i
Arizona, New Mexikó og Was-
hineton.
Þá hafa demókratar unnið
MississipDÍ, en hinir 8 kjör-
menn baðan eru ekki bundnii’
af að k.iósa Kennedy. 6 af 11
kjörmönnum frá Alabama eru
heldur ekki bundnir.
í ýmsum ríkjum voru úrslit-
in miög naum og má geta sér-
staklega Alaska. sein Kennedy
vann með 467 atkvæðum, Haw-
ai, sem hann vann með 172 at-
kvæðum, Illinois. sem hann á
endanum vann, eftir mikla tví-
sýnu með 15.432 atkvæðum af
rúmum 4 milljónum atkvæða.
Minnesota vann Kennedy með
rúmlega 15000 atkvæðum, ehl
Nixon vann New Mexiko með
um 2000 atkvæðum. I
2 ú°- eppy. 1960