Alþýðublaðið - 17.11.1960, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 17.11.1960, Blaðsíða 14
Björgunarstörf . . . Framhald af 7. síðu. landsdrottningar stundaði þar nám. í Gordonstoun beitti dr. Hahn uppeldisaðferðum sín- um, lagði höfuðáherzlu á að gera nemendur sína hæfa til að taka öllu, sem að höndum bar, með ró og festu. En hann vanrækti ekki hina bóklegu hlið og fékk marga þekkta menn til að kenna þar. Skóla- gjöldin fóru algerlega eftir efnahag foreldra nemendanna. En íþróttirnar eru ekki tak mark í sjálfu sér að skoðun Hahns, heldur tæki til þess að auka sjálfsvirðingu drengj anna Og vinnan var morgs konar Drengirnir urðo að ]æra að sigla, þeir unnu á bændabýlum og önnuðust l'eit að týndum mönnum og björg- unarstörf á sjó og landi. Hahn segir: „Ég neyði drengina til þess að öðlast reynslu. Því ó- geðfelldara, sem þeim er eitt- hvert starf, þeim mun meiri á- stæða til þess að láta þá fást við það, því aðeins á þann hátt komast þeir yfir erfið- leikana.“ Björgunarstörf og slysa- varnir eru eins og fyrr segir mikilvægur liður í starfsemi drengjanna hans Hahns. Hann lætur þá annast gæzlu við ströndina til þess að koma skipum í hafsnauð til aðstoð- ar. Það er tru dr. Hahn- að í H. M. V. Þvottavélar 3 stærðir með og án suðu. Nýkomið mikið úrval af: LOFTLJÓSUM VEGGLÖMPUM BORÐLÖMPUM Ávallt fyrirliggjandi mikið úrval af heimilistækjum. LUKTIN H.F. Snorrabraut 44 Sími 16242. þessu björgunarstarfi fái menn útrás fyrir þörf sír.a til að drýgja hetjudáðir. Hann telur, að æskumenn séu í sjálfu sér andvígir „góðverk- um“, sem aoeins eru fram- kvæmd til ao „gera góðverk". Aftur á móti sé þeim eðlilegt að vera stoltir af því, er leitað er til þeirra þegar á ríður og þá séu reyndar alfest.ir menn reiðubúnir að leggja s:g fram. 1953 hætti dr, Hahn starf- inu sem skólastjóri í Gordon- stoun og hóf undirbúning undir Atlantic College. Hug- myndin er nú að komast til framkvæmda, en mörg fjár- málafyrirtæki hafa heitið hjálp sinni. Hahn ætlar fvrst að stofna skólann í St Don- ats-kastala, en síðar eiga fleiri að fylgja á eftir. Og hann dreymir um, að drengir frá kommúnistalöndunum . komi einnig í skóla sinn. Dr Kurt Hahn segir að fimm atriði séu táknræn fyrir úrkynjun vorra tíma: Minnk- andi líkamleg hæfni (sem staf ar af hinum fullkomnu flutn- ingatækjum). Skortur á sjálf- stjórn (stafar af aukinrii notk un deyfilyfja). Skortur á fram kvæmdasem; (allir vilja helzt vera áhorfendur, en ekki ger- endur) Minnkandi hæfni til verka (orsökin er hnignun handíða) og loks minnkandi samúð. En Hahn telur að þetta megi lækna með einfödum aðferð- um. Taka verður upp jákvæða afstöðu til hlutanna, treysta meðfæddum góðleik fólks og trúa á fegurðina. Mannleiki er fyrsta og síðasta boð dr. Kurt Hahn skólamannsins og Gyð- ingsins, em fangelsaður var af hatursmönnum fólkslns og dreymir nú um nýskipan skólamála og uppeldisaðferða. ÍÞRÓTT1R Framhald af 10. síðu. Til félagsins kom í helmsókn eitthvert sterkasta knattspyrnu lið, sem komið hefur til íslands, Dynamo Moskvu og lék hér 3 leiki. Er ætlast til að Fram endurgjaldi heimsókn þessa á næsta ári og er undirbúningur að þeirri ferð hafinn. Eftirtalin félög komu með yngri flokka og gistu í félags- heimili Fram og léku hér leiki: Vestri ísafirði, Þór Vestmanna- eyjum og íþróttabandalag Akraness. Flokkar félagsins fóru flest- ir keppnisferðir út á land. 2. flokkur fór til ísafjarðar, 3. flokkur til Akureyrar, 4. flokk- ur til Vestmannaeyja og 5. flokkur til Akraness og er mót- tökuaðilum á viðkomandi stöð- um þakkaðar ágætar móttökur og fyrirgreiðsla. Allmikill áhugi var fyrir knattþrautum K S í og luku 27 drengir bronseprófi, 6 silfur- prófi og 1 gullprófi, Helgi Númason. Um æfingar þessar sá að miklu leyti Hallur Jóns- son. Auk íþróttastarfsemi hélt fé- lagið uppi víðtækri starfsemi fyrir yngri flokka félagsins, að nokkru í samvinnu við Æsku- lýðsráð Reykjavíkur. Var hér um að ræða skemmtifundi, tafl kvöld o. fl. HANDKNATTLEIKUR Formaður handknattleiks- nefndar var Guðni Magnússon en þjálfarar Axel Sigurðsson, Sveinn Ragnarsson og Guðni Magnússon. Á árinu sigraði Fram í 3 mótum. Meistaraflokkur vann II. deild með yfirburðum og færð- ist upp í I. deild. 3. flokkur vann Reykjavíkur mót og 2. flokkur kvenna vann íslandsmót í útihandknattleik. Bikar sem bezti handknatt- leiksmaður félagsins hlaut Hilmar Ólafsson. Þjálfari hefur verið ráðinn Karl Benediktsson, hinn kunni handknattleiksmaður, en hann sótti þjálfaraámskeið í ‘Vejle í Danmörku sl. ár og vænta fé- lagsmenn mikils af starfi hans. FÉLAGSSVÆÐI Bæjarstjórn Reykjavíkur út- hlutaði félaginu svæði við Miklubraut á 50 ára afmæli fé- lagsins 1958. Vegna fram- kvæmda bæjarins hefur ekki verið unnt að ganga frá endan- legu skipulagi og hafa staðið yfir samningar milli bæjaryfir- valda og félagsins um stærð og legu svæðisins. Er máli þessu nú svo langt komið að hægt er að sjá fram á byrjunarfram- kvæmdir á árinu. Á svæði þessu, sem er norðanmegin Miklubrautar, verða 3 fullstór- ir leikvellir auk handknattleiks- vallar og sparksvæðis. STJÓRNARKOSNING Fráfarandi formaður, Har- aldur Steinþórsson, baðst und- an endurkosningu eftir 5 ára formennsku og var honum sér- staklega þakkað mikið og vel unnig starf í þágu félagsins. — Formaður var kjörinn Jón Magnússon, Aðrir stjórnarmeðlimir eru Hörður Pétursson, varafor- maður, Sæmundur Gíslason, gjaldkeri, Sveinn Ragnarsson, ritari. Sigurður Hannesson, fjármálaritari, Birgir Lúðvíks- son, formaður knattspyrnu- nefndar og Svan Frðgeirsson formaður handknattleiksnefnd- ar. í 'varastjórn voru kosnir: Böðvar Pétursson, Björgvin Árnason og Gylfi Hinriksson. Endurskoðendur voru kosnir: Jón Jónsson og Kristján Frið- steinsson. Tvö met A SUNDMÓTI ÍR í gærkvöidi dóttir 2 íslen/k met. í 50 ni. setti Hrafnhildur Guðmunds- bringusundi á 38,7 sek. og 100 m. á 1:23,6 mín,. 14 17. nóv. 1960 — Alþýðublaðið SLYSAVARÐSTOFAN er op- in allan sólarhringinn. — Læknavörður fyrir vitjanir er á sama stað kl. 18—8. Sírni 15030. :*-:':*^**'*'*:*:v*:*>x; t tó?v— •;.V. Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug: Hrímfaxj er væntanlegur til Rvk. kl. 16, 20 í dag frá K- mh. og Gias- gow. Flugvél- in fer tíil Glas- gow og Kmh. kl. 08,30 í — Innanlands- flug: I dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Eg- ilsstaða, Kópaskers, Patreks- fjarðar, Vestmannaeyja og Þórshafnar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyr- ar, Fagurhólsmýrar, Hornal': , ísafjarðar, Kirkjubæjarkl. og Vestmannaeyja. fyrramálið. Loftleiðir h.f..: Leifur Eiríksson er vænt- anlegur frá New York kl. 08, 30, fer til Glasgow og London kl. 10.00. Eimskipafélag fslands h.f.: Dettifoss kom til Rvk 13.11. frá New York. Fjali- foss fór frá Lon i- on 15.11. til Rott erdam, Antwerpen og Ham • borgar. Goðafoss fer frá Rvk kl. 20.00 í kvöld 16.11. til Flateyrar, Súgandafjarðar, ísafjarðar og norður- og aust urlandshafna. Gullfoss fór frá Kmh. 15.11. til Leith og Rvk. Lagarfoss fór frá Flateyri 15. 11. til Súgandafjarðar, Ísaíj., Hólmavíkur, Siglufjarðar, — Dalvíkur, Húsavíkur, Norðfj. cg þaðan til Hamborgar, — - London, Grimsby og Hull. — Reykjafoss fór frá Rotterdam 15.11. til Hamborgar, Kmh., Gdynia og Rostock. Selfoss fór frá Hamborg 411. til New York. Tröllafoss fer frá Vest- mannaeyjum 18.11. til Siglu- fjarðar, Akureyrar, Seyðis- fjarðar, Norðfjarðar og Eski- fjarðar og þaðan til Liver- pool. Tungufoss fer frá Rvk annað kvöld 17.11. til ísa- fjarðar, Sauðárkróks, Húsa- víkur, Akureyrar, Siglufj. og Eskifjarðar og þaðan til Sví- þjóðar. Skipaútgerð rikisins: Hekla er í Rvk. Esja er væntanleg til Akureyrar í dag á vesturleið. Herðubreið fer frá Rvk síðd. í dag austur um land til Akureyrar. Þyrill er á leið frá Rvk til Rotterdam. Herjólfur fer frá Vestmanna- eyjum kl. 22 í kvöld tii Rvlc. Baldur fer frá Rvk í kvöld til Snæfellsness-, Hvamms- fjarðar- og Gilsfjarðarhafna. Hafskip h.f.: Laxá fór 15. þ. m frá Pat- ras, áleiðis til Cagliare. Jöklar h.f.: Langjökull er í Leningrad. Vatnajökull er í Rotterdam og fer þaðan í kvöld áieiðis til Rvk. Frá Guðspekifélaginu: Rvík urstúkan heldur fund í kvöld, fimmtudaginn 17. þ. þ. kl. 8,30 síðd. á venjuleg- um stað. Fundur þessi er af mælisfundur. Sigvaldi Hjálmarsson flytur erindi: „Guðspeki í nútlíð og fram- tíð“. Þá flytur Gretar Fells erindi, er hann nefnir „Guð- spekin og ég,“ auk þessa verður einsöngur: Björn Þorgeirsson- með undirleik Skúla Halldórssonar. Kaffi að lokum. Gestir velkomnir. ALÞINGI: — Fundur samein aðs þings í dag 17. nóv. — 1. Rannsókn kjörbréfs. 2. Fyrirspurnir: a) Samstarfs nefndir launþega og vinnu- veitenda. b) Lífeyrissjóður fyrir sjómenn, verkamenn o. fl. c) Rannsóknarmál ríkisins. — Fundur í E-D, einnig í dag: 1. Ræktunar- sjóður og Byggingarsjóður sveitabæja. 2. Skemmtana- skattsviðauki. 3. Bjargráða- sjóður íslands. Dagskrá N-D í dag: 1. Happdrætti Há- skólans. 2. Heimild til að veita Friedrich Karl Lúder atvinnurekstrarleyfi. Æskulýðsfélag Laugarnes- sóknar: Fundur í kirkju- kjallaranum í kvöld kl. 8,30. Fjölbreytt fundarefni. Séra Garðar Svavarsson. Fimmtudagur 17. nóvember: 12,00 Hádegisút varp. 13,00 „Á frívaktinni“. — 14,40 „Við, sem heima sitjum.“ 15,00-16,30 Mið degisútvarp. —■ 18,00 Fyrir yngstu hlustend urna. 18,30 Þing fréttir. — Tón- leikar. — 19,30 Fréttir. — 20,00 Einsöngur: Rússneski bassa- söngvarinn Mark Reshetín syngur; (Hljóðr. á samsöng í Þjóðleikhúsinu 6. þ. m.). 20, 30 Kvöldvaka: a) Lestur forn rita: Lárentíusar saga Kálfs- sonar; IV. (Andrés Björnss.). b) Ólafur Sigurðsson á Hellu landi flytur vísnaþátt úr Skagafirði. c) Guðrún Á. Sím onar syngur íslenzk lög. d) Siglingar til Englands á stríðs árunum, — frásögn Bessa Gíslasonar skipstjóra (Stefán Júlíusson rithöfundur). — 21,45 íslenzkt mál (Ásgeir BI. Magnússon cand. mag.). 22,00 Fréttir. 22,10 Upplestur: Kafli úr ævisögu Halldórs Kiljans Laxness, eftir Peter Hallberg (Þýðandinn, Björn Th. Björns son les). 22,30 Kammertón- leikar. 23,05 Dagskrárlok. LAUSN HEILABRJÖTS: 242—44 = 193 ■ : ~f" — 11x11 = 121 22+55 = 77

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.