Alþýðublaðið - 19.11.1960, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.11.1960, Blaðsíða 1
MWWWWWWWMtWWWWW mmuD 41. árg. — Laugardagur 19. nóv. 1960 — 264. tbl. AÐALFUNDI LÍÚ lauk í fyrrinótt. Sverrir Júlíus son var endurkjörinn for maður sambandsins. Var ákveðið að fundur yrði haldinn að nýju ekki síð ar en 12. desember n.k. en þá skal tekin endan- leg ákvörðun um það hvað gera skuli af hálfu LÍÚ til að tryggja við- unandi starfsgrundvöll á komandi ári. Ákveðið var að hefja ekki róðra nema náðst hafi samning ar við fiskkaupendur um kjör og fiskverð. í lok fundarins fór Lúðvík Jós- epsson miklar hrakfarir. Flutti hann tillögu um að LIÚ setti ríkisstjóninni bein skilyrði og hefði í hótunum en tillaga hans var kolfelld og hlaut að" eins 2 atkvæði. Ályktun LÍÚ um afkomuhorf ur útvegsins hijóðar svo: ,,Fundurinn teiur, að í lög- unum um efnahagsmál, sern. tóku gildi 20. febrúar s. 1„ hafi ekki verið^tekið nægilegt tillit til þarfa sjávarútvegsins. Þar við hefur bætzt stórkostlegt | verðfall á fiskimjöli og lýsi um- I fram það, sem gert var ráð fyr- ir. Auk þessa hefur orðið mikill aflabrestur hjá togurunum og miikill hallarekstur á síldveið- unum á sumar- og haustvertíð. Af þéssum ástæðum hefur heildarafkoma útvegsins á þessu ári orðið mjög slæm og fjöldi útvegsmanna og útgerð- arfyrirtækja komizt í greiðslu þrot, svo að ekki hefur verið hægt að inna af hendi nauðsyn- legar greiðslur, t. d. eru vá- tryggingariðgjöld báta- og tog araflotans í almennum vanskil um Framhald á 2. síðu. 1 FYRIR tíu árum koin liann hingag og kepnti við íslenzka íþróttamenn, nú er hann á góðri lerð að verða kvikmyndastjarna. Stúlkunum íslenzku kvað hafa litist afbragðs vel á hann. Munið brð eftir hon um — og þekkið þð hann aftur, stúlkur? Þetta er Bob Mathías, sem varð tugþrautarmeistari á Ol- ympíuleikunum í London fyrrr tólf árum. Hér er hann (pilsklæddur að bezt verður séð) í myndinni ,Stríðshetjan frá Krít“. Toppfundur London, 18. nóvember. (NTB-Reuter). ADENAUER kanzlari Vest- ur-Þýzkalands mun dvelja í Lundúnum 12.—13. desember næstkonrand/ og ræða við Mac millan, forsætisráðherra Breta.. Er hinn síðarnefndi sá, er til viðræðna þessara býður. Kunnugir fullyrða að einkum verði rætt um möguleikana á toppfundi austurs og vesturs 1961 og Berlínarvandamálið. París, 18. nóvember, (NTB-Reuer-AFP). 66 ÞINGMENN í fulltrúa- deild franska þingsins, 25 jafn- aðarmenn, 24 óháðir íhalds- menn og 17 radikalir, lögðu í dag fram vantrauststillögu á stjórn Debrés vegna áætlunar- innar um að koma á- fót eig/n atómher Frakka. Þar með er allt tilbúið fyrir önnur meirihátt- ar átökin um tillögu stjórnar- WWWWWWWWWtWWWWMWWWWWWtWWW ^ ^ hHjómplötuklúbburinn Á 4. og 5. síðu blaðsins í dag er framhald plötuli'stans, sem HljómplötukJúbbur Alþýðublaðsiiis byrjaði að birta í gær. Á þriðjudag komum við með síðasta kafla 1/stans — jazz- og dægurlagaplötur. Pöntunarseðill fyrir væntanlega meðlimi cr á 14. síðu. Við göngum út frá, að þú vitir nú þegar hvað hér er á ferðinni. Við sögðum rækilega frá bví í gær: Alþýðublað/ð hefur stofnað hljómplötuklúbb og meðlimir fá plöturnar á kostnaðarverði. Annars veitir afgreiðsla blaðsins (14900) allar upplýs- ingar. innar á þrem vikum. Debré hef ur áður lýst því yfir, að krefj- ast traustsyfirlýsingar vegna á- ætlunarinnar. I fyrra skiptið | var vantrauststillaga stjórnar- andstöðunnar felld með 207 at- kvæðum og skorti aðeins 70 at- kvæði til að fella stjórnina. I þetta skipti er hætta á, að enn fleiri meðlimir stjómar- andstöðunnar greiði vantraust- inu atkvæði, þegar það kemur til atkvæðagreiðslu í næstu viku, sennilega á mánudag eða þriðjudag, Stafar það af því, að margir íhaldsrruenn hafa skelfzt vegna hinnar frjálslyndu af- stöðu de Gaulles, forseta, til lausnar Algiersmálsins. Áætlanir um atómherinn og stefna de Gaulle í Agiermálinu hafa skapað það ástand, að póli- tískt baktjaldamakk hefur auk izt með hverjum deginum og sýnir að bæði de Gaulle og and stæðingar hans í Algiermálinui berjast við tímann. Öfgafullum þjóðernissinnum er Ijóst, að takist de Gaulle að | halda þjóðaratkvæði muni yf- ir gnæfandi meirihluti frönsku þjóðarinnar styðja Algierstefnu hans, en þá er grundvöllurinn fyrir að halda núverandi á- standi í Algier fallinn á brott. Jafnvel öfgamennirnir viður- kenna, að þá muni herinn í Alg ier ekki gera neina uppreisn gegn stjórninni í París. Þeim er líka ljóst, að án stuðnings hersins er vonlaust að koma á óháðri franskri stjórn í Algier eða steypa fimmta lýðveldinu. Af þessum sökum neyta öfga menn allra bragða til að koma í veg fyrir þj óðaratkvæðið — Næsta alvarlega athöfn þein’a gegn stjórninni verður því at- kvæðagreiðslan í næstu viku. Framhaid á 14. siðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.