Alþýðublaðið - 19.11.1960, Page 7

Alþýðublaðið - 19.11.1960, Page 7
^*WWW*WWrWWWWm**WWWMWWMMWIimwwWMW%WM%HWWVWWWMWWWWWW mmwwwwwWWMHWwwwmmr STJÖRNMÁLAÁLYKTUN 18. Þ SUJ EnNGANGUR UNGIR jafnaðarmenn aS- hyllasí hugsjónir jafnaðar- stefnunnar (sósíalismans) um frelsi, jafnrétti og bræðralag og vinna að því að gera þær að veruleika á ís- lancli. Til þess að ná því markmiði telja þeir nauðsyn Iegt aS afnema auðvalds- skipulagið (kapítalismann) og koma á hagkerfi jafnaðar- stefnunnar í staðinn. Þeir leggja á það áherzlu, að þær róttæku breytingar verða að eiga sér stað á grundvelli l'aga og þingræðis og telja einræðisaðferðir kommiín- ista við framkvæmd sósíal- isma svik við frelsishugsjón jafnaðarstefnunnar. Þess vegna telja ungir jafnaðar- menn, að lýðræði verði að rikja í þjóðskipulagi jafnað- arstefnunnar. Ungir jafnað- armenn eru þeirrar skoðun- ar, að sagan hafi leitt það í ljós, að starfsaðferðir jafnað armanna séu réttar, en að- ferðir kommúnjista rangar. Kúgun alþýðunnar í A-Ev- rópu. þar sem kommúnistar hafi reynt að framkvæm'a sósíalísma á grundvelli ein- ræðis eiðir í ljós, að hugsjón ir sósíalismans hafi verið fótum troðnar um leið og hið nýja þjóðskipulag hafi verið innleitt. Hins vegar hafi sú kenning kommúnista að ekki værj unnt að framkvæma sósíalisma án byltingar ver- ið afsönnuð í ýmsum lönd- um. Ungir jafnaðarmenn vilja minna á, að jafnaðarstefnan er sprottin upp úr þeim jarð vegi, er kúgun auðvaldsskipu lagsins á verkalýðnum skap aði. I fyrstu kom jafnaðar- stefnan aðeins fram sem gagnrýni á ríkjandi hagkcrfi, en síðan þróaðist sú gagn- rýni í tillögu um nýtt þjóð- skipulag. Framltvæmd jafn- aðarstefnunnar mun færa þjóðinni þær kjarabætur, er hún stefnir að. Hér á landi hefur Alþýðu- flokkurinn frá upphafi unnið að framkvæmd jafnaðarstefn unnar á lýðræðisgrundvelli. Flokkurinn er myndaður af verkalýðnum sjálfum og hef ur alla tíð unnið að hættum kjö'rum vcrkamanna og ann arrá launþega, jafnframt því sém hann hefur unnið að framkvæmd jafnáðarstefn- unnar á íslandi. Þess vegna skipa ungir jafnaðarmenn sér undir merki Alþýðu- flokksins. RÍKI3REKSTUR OG ÁÆTLUNAMBÚSKAPUR í fyrstu var þjóðnýting tal in mikilvægasta úrræðið til þess að koma á hagkerfi jafnaðarstefnunnar. Með þjóðnýtingu atviunutækj- anna skyldi komið í veg fyrir arðrán og tekjujöfnuður tryggður. Enn er þjóðnýting og ríkisrekstur atvinmi- tækja eitt af úrræðum jafn- aðarstefnunnar, en frá því að tillagan um þjóðnýtingu kom fyrst fram, hafa komið fram ýmis önnur úrræði, er náð geta hinum sömu mark miðum og þjóðnýtingu cr ætlað að ná. Þannig má nú jafna tekjumar í þjóðfélag- inu með margs konar fjár- máiaaðgerðum ríkisvaldsins, svo sem með stighækkandi sköttum og almannatrygg- ingum. Ríkisvaldið hcfur einnig nú á tímum aðstöðu til þess að hnfa fullkomið eftirlit með atvinnulífi þjóð- félagsins og getur tryggt hag nýtingu atvinnutækjanna enda þót þau séu ekki til þjóðnýtt. Af þessum breyttu aðstæðum leiðir, að þjóðnýt- ing eða ríkisrekstur er ekki eins ntkilvægt úrræði til framkvæmdar jafnaðar- stefnu og áður. En cngu að síður telja ungir jafnaðar- menn, að ríkisrekstur sé nauðsynlegur við vissar að stæður. Hér á landi telja ungir jafnaðarmenn, að rík- ið eigi að hafa forustu uni framkvæmdir á sviði stór- iðju og eiga og reka þau stór iðjufyrirtæki, er reist vcrða. Auk þess telja ungir jafnað- armenn, að hin stærstti og mikilvægustu atvinnutæki þjóðarinnar eigi að vera rek in af hinu opinbera. Ungir jafnaðarmenn vilja benda á, að annað höfuðúr- ræði jafnaðarmanna hefur frá upphafi verið áætlunar- búskapur. Þingið telur, að mikilvægi áætlunarbúskapar hafi aukizt að sama slcapi sem nauðsyn ríkisrelcsturs hefur minnkað. Það er ein- mitt enn nauðsynlegra fyrir þjóðfélagið að hafa örugga heildarstjórn á atvinnulífinu og skipuleggja atvinnulífið fram í tímann, ef atvinnú- fyrirtækin eru flest í einka- eign, heldur en ef þau væru þjóðpýtt. Ungir jafrraðar- menn telja, að einmitt i okk ar litla og fámenna þjóðfé- lagi sé brýn nauðsyn á áætl unarbúskap, end'a hafi skipu lagsleysi í íslenzkum þjóð- arbúskap átt ríkan þátt í því öngþveiti, er lengstum Iiafi ríkt í efnahagskerfi okkar. FÉLAGSMÁL 18. þing SUJ telur, að sam fara áætlunarbúskap og tak- ' mörkuðum ríkisrekstri heri að leggja mikla áherzu á um bætur á syið félagsmála. Þingið fagnar hinum miklu endurbótum á almannntr.ygg ingunum, er gerðar voru undir forustu Alþýðufíokks- ins og núverandi ríkissijórn ar á þessu ári og telur þingið að halda beri áfram á sömu braut. Þingið vill íterka fyrri samþykktir um nauðsyn úr- bóta á sviði húsnæðismála. Telur þingið að stuðla beri að því, að allir eigi þess kost að eignast eigið húsnæði, en þó verði bæjarfélög að reisa leiguíbúðir fyrir þá, er ekki hafi aðstöðu til þess að kaupa eigin íbúðir, Þingið telur, að óviðunandii sé með öllu hvernig nú sé komið fyrir Byggingasjóði verkamanna. Byggingafélagi verkamanna sé nú gersamlega ókleift að FYRRI HLUTI selja verkamönnum íbúðir með viðráðanleum kjörum og telur þingið að þörf sé skójtra úrbóta eigi félagið að geta gegnt hlutverki sínu. Skorar 18. þing SUJ á al- þingi og ríkisstjórn að gera myndarlegt átak til þess að bæta verulega hag Bygginga sjóðs verkamapna. Einnig skorar þingið á alþingi að gera nú þegar ráðstafan- ir til þess að Húsnæðismála- stofnun ríkisins verði raun- hæf stofnun, er beiti sér fyrir aukinni samræmingu (stöðlun) £ byggingu íbúðar- husa sv!o sem tíðjk'ast um alla Evrópu og má fullyrða, að með raunhæfum aðgerð- um væri hægt að stórlækka byggingarkostnað. Þingið tel ur. að koma ætti á fót bú- skaparaðstoð, þannig, að hið opinbera aðstoðaði nýgift hjón við að stofna heimili og eignasf húsnæði. Þingið lýsir yfir fyllsta stuðningi sinum við skyldu sparnað og telur að halda beri honum áfram. Þá telnr þingið orlof húsmæðra vera mál, er Alþýðuflokkuriim eigi að berjast fyrir þar ti! það mál sé örugglega komið í höfn. 18. þing SUJ telur, að hið fyrsta þurfi að endurskipu- leggja lífeyrissjóði einstakra starfshópa og stétta þannig að myndaður verði einn líf- eyrissjóður, sem allir lands- menn verið aðílar að. Sjóð- urinn verði í vörzlu og undir stjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Þingið bendir í þessu sambandi á, að sumar stéttir njóta lífeyrissjóða, en aðrar ekki. Enn fremur bend ir þingið á fordæmi Svía, sem nýlega hafa koniið sér upp heildarlífeyrisjóði fyrir alla andsmenn. Þá telur þing ið brýna nauðsyn á verð- fryggingu lífeyrissjóða. ATVINNUMÁL 18. þing SUJ telur, að nauðsynlegt sé fyrir þjóðina að staldra við og íhuga í hvaða atvinnugreinar hún vilji verja fjármagni sínu næstu árin. Undanfariðhefur f járfesting í sjávarútvegi ver ið gífurlega mikil og þjóð- inni bætzt myndarlegur fiskiskipafloti. Þingið telur, að nú sé tímábært að beina fjármagninu meira inn á svið iðnaðar. Úngir jafnaðar- menn telja, að íslendingar hafi mikla möguleika til upp- byggingar iðnaðar í landinu vegna hinnar miklu vatns- orku, en þeir vilja Ieggja á- herzlu á það, 'að gera verði á- ætlun um framkvæmdir á því sviði næstu árin. íslend- ingár verða að gera sér grcin fyrir hvaða verksmiðjur þeir vilja reisa við framkvæmd fyrstu iðnaðaráætlunarinnar og síðan þarf að hefjast handa. 18. þing SUJ telur, að áður en frekari f járfesting eigi sér stað í sjávarútveginum, þurfi að fara fram allsherjarrann- sókn á skipulagi og hag- kvæmni á sviði sjávarútvegs ins. Vitað er, að mikið skipu lagsleysi ríkir á vissum svið- um sjávarútvegsins og því sé nauðsynlegt að koma þar fram úrbótum. Þingið telur að hagnýta þurfi betur frysti húsakost landsmanna og fiskiskipaflota. í sambandi við þá endurskipulagningu, sem þar er nauðsynleg verð- ur öllu jöfnu að beita úrræð- um ríkisreksturs, bæjarrekst urs, samvinnureksturs og einkareksturs, Þingið telur, að reynslan hafitvíjnælalaust leitt í Ijós, að hagkvæmt sé að refca saman fiskiskip og fiskvinnslustöðvar og því berj að vinna að því að koma slíkum fyrirtækjum á sem víðast og ættu bæjarfélögin sem víðast að hafa forgöngu um stofnun slíkra fyrirtækja og sjálf að reka slík fyrir- tæki, þar sem slíkt þykir henta. Enn fremur telur þing ið að rikið ætti að eiga og reka nokkra togara til at- vinnujöfnunar. IÐNAÐARMÁL 1. Þing SUJ telur sjálf- sagt, að leitað verði eftir er- lendu fjármagni í stóriðnað hér á landi. Tryggja vcrður í því sambandi, að hin er- lendu fjármagnsítök verði ekki of sterk á hverjum tím'a. Að ákveðnum tíma ltðnum verði hin erlendu eignarítök eign islenzka ríkisins. Telur þingið það atriði höfuðskil- yrði. — Jafnframt þessu yerði sett upp uppbyggingar- áætíun stóriðnaðarins. er nái yfir nokkur ár í senn. Þingið telur eðlilegt, að fetað vciði í fótspor Norðmanna í þess- um málum eftir því sem á- síæða er til. 2, 18. þíng SUJ ályktar að efla faeri íslenzka skipasmíði með auknu lánsfé til cndur- nýjunar á véLakosti og allri aðstöðu skípasmíðastöðv- ann'a svo og með auknu láns- fé til nýbygginga svo skipa- smíðastöðvunum sé mögu- Iegt að hefja nýbyggingu án þess að sala fari fram fyrir- fram. E/nnig telur þingið að lækka þurfi tolla á efniviði til iðnaðarins. Enn íreniur á- lyktar þingið að stefna beri að bví að stöðva innflutning fiskiskipa þar sem hægt er að framleiða þá innanlands sambærilega að gæðum og verðmæti. VERÐLAG SEFTIRLIT 18. þing SUJ ítrekar fyrri samþykkúr um nauðsyn öfl- ugs verðlagseftirlits. Þingið fagnar því, að núverandi rík isstjórn skyldi halda verð- Iagseftirliti við þær ráðstaf- anir í efnahagsmálum, er gerðar voru á þessu ári, Tel- ur þingið, að reynslan í sam bandi við gengislækkunina 1950 hafi leitt í Ijós, að öfl- ugt verðlagseftirlit er ein- mitt nauðsynlegt þegar genginu er breytt. Þingið tel ur þó, að róttæk endurskofi- un á framkvæmd verðlags- eftirlitsins þurfi að fara fram, þar eð mikið skorti á að það fylgist nægilega vel með vöruverði og verðlagn- ingu, Þingið íelur, að ekki komi til mála að rýmka á- lagningu í verzluninni. Vill þingið í því sambandi benda strax á, að launþegar hafi orðiS að iaka á sig nokkra kjaraskerSingu vcgna þeirra ráSstafana í efnahagsmálum, er nauðsynlegt var að gera og því sé ekki nema sann- gjarnt að verzlun og annar atvinnurekstur taki á sig hluta byrðanna. HHHtUHHHtHtMMHHMHHHHtHHHHHWHHHI HHHHMHMHtHHMMHHMMtMHWtMMM<HMWMHtHMWMtHHWtHHH<HHMMMHHMMM>l» Alþýðublaðið — 19. nóy. 1960 ^

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.